Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 8

Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 8
Hverju okkar gæti t. d. dottið í hug að gangstétt meðfram húshlið á fjölfarinni götu í Reykjavík sé ágætis knattspyrnu- völlur? Engu okkar dytti það í hug. Þeir voru ekki lengur aðeins tveir níu ára menn. Hér á ónefndri gangstétt í Reykjavík stóðu allt í einu tvö fuil- skipuð knattspyrnulið, sem hétu Hörður og Ari, en gangstéttin var orðin fyrir- myndar knattspyrnuvöilur. En nú eru Hörður og Ari ekki góð nöfn á knatt- spyrnuliðum. Það liggur í augum uppi. Því var það, að Ari sagði: -—- Ég er Valur. Hvaða félag ert þú? — Ég er líka Valur, svaraði Hörður. — Nei, sagði Ari. Það er ekkert gam- an að svoleiðis. Þú verður að vera eitt- hvert annað félag. — Þú getur alveg eins verið eilthvert annað félag. Ég er alllaf með Vai, sagði Hörður. — Nei, ég verði ekki annað félag. Ég sagðist vera Valur fyrr en þú. Þess vegna verður þú að vera annað íélag. Þú verð- ur að vera K.R., Víkingur eða Fram. Hörður er mjög réttsýnn og góður drengur. Hann sá strax, að dálítið var satt í þessu, sem Ari sagði. Hann hætti þess vegna að þræta, eins og sumir okk- ar hefðu vafalaust gert. — Jæja, ég verð þá víst að vera Fram, annars held ég alitaf með Val, sagði Hörður. Þar með var þetta klappað og klárt. Leikurinn gat hafizt. Nei, það var eftir að setja leikreglur. Það hefur ýmsa kosti, að tvö félög séu aðeins tveir menn, þó að þeir kostir verði ekki taldir hér. Hins vegar hefur það einnig ókosti, og skal hér minnst á einn. Þegar liðin eru ekki fjölmennari en hér var, verður ann- að liðið að vera í marki, en liitt að sækja á eða þá að hvorugt liðið er i marki, en bæði sækja á. Með öðrum orðum heitir það að rífast um boltann. Þeir frændur tóku þann kostinn. Ekki var mikið út á markstengurnar að setja, þar sein önnur var heilt hús en hin ljóskersstaur. Og hófst nú leikurinn. Liðin röðuðu sér upp. Einn, tveir, þrír, sagði knattspyrnufélagið Valur, en knattspyrnufélagið Fram spyrnti fast i knöttinn, svo að hann skoppaði eftir vellinum. Fram sótti leikinn allfast, náði knettinum og hefði sett fyrsta markið, ef Valur hefði ekki komið stormandi og spyrnt út á miðjan völl, það er að segja út á miðja götu. — Þið megið ekki vera í knattspyrnu hér, sagði einhver náungi, sem fram hja gekk. Síðan var ekki meira um það. Nú þutu bæði liðin á eftir knettinum og var ekki laust við hrindingar. Knatt- spyrnuféiagið Valur varð á undan og spyrnti. Þetta var frámunalega glæsilegt skot, en því miður geigaði knötturinn fram hjá markinu. Það kvað við hált hrot- hljóð. Hvað var þetta? Ekki annað en það, að knötturinn rak sig á hús. Nú hefði að vísu ekki gert svo mikið til, ef knötturinn hefði ekki endilega þurft að reka sig á viðkvæm- asta hlett hússins. Hann flaug sem se beint í stóru rúðuna i stofuglugganum a miðhæð hússins. Stóra rúðan var ekki lengur stóra rúðan. Hún var nokkrir tugir allavega glerbrota, sem sáldruðust niður á götuna. Félögin voru Iieldur ekki nein félög. Þau voru bara tveir niu 54 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.