Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 10

Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 10
stund. Margt er það, sem í hug þess kemur, er vakir, meðan aðrir sofa. Loks sagði drengurinn. — Pabbi, ég get ekki sofið. — Ertu ekki enn farinn að sofa, barn? — Nei, sagði drengurinn, ég get ekki sofið, og það er vegna þess, að ég gerði dálítið ljótt. Ég braut rúðu, pabbi, og ég ætlaði að þegja yfir því, en svo finnst mér það svo ljótt, að ég get ekki sofið. — Jæja, væni minn, hvernig vildi þetta til? Þá kom frásögn þess, hvernig atvikin geta stundum snúizt, þegar maður ímyndar sér, að gangstétt meðfram hús- vegg geti verið knattspyrnuvöllur. —Jæja, þetta fór mjög klaufalega, Ari minn, sagði pabbi lians, en af því að þú segir mér þetta eins og er, eins og það gerðist, þá vil ég ekki ávíta þig. Ég skal strax í fyrramálið fara til fólksins í húsinu. Ég skal borga rúðuna fyrir þig og sjá um, að hún verði sett í glugg- ann. Þú kemur með mér. — Já, ég skal koma með þér,“ sagði Ari, síðan sneri hann sér til pabba síns og þakkaði honum á þann eina veg, sem á valdi hans var. Og nú brá svo við, að drengurinn gat strax sofnað. Síðan leið nóttin. Það þarf víst ekki að taka það fram, að þeim feðgum var mjög vel tekið af eiganda hinnar brotnu rúðu morguninn eftir. Því að það, að hrjóta rúðu óvilj- andi er ekki annað en óhapp. Hitt að vilja ekki kannast við það, er meira en óhapp. Það er oft gaman, meðan maður er bara níu ára. Þennan umrædda morgún, ',.ÍÍ! <iíui er þeir hittust á ný frændurnir, var allt svo einstaklega gaman. — Ég er búinn að segja það, sagði Ari, greindi nú frá öllu því, sem viö hafði borið, og brosti út að eyrum. Það birti yfir svip Harðar eins og af sólskini og hann sagði fullorðinslega: — Þetta þykir mér vænt um. Ég ætl- aði aldrei að segja það. Ég lofaði að þegja. Maður á aldrei að svíkja það, sem maður lofar. Þetta er stutt saga, því að nú er henni lokið. Yel getur verið, að sumum finn- ist þetta ekki merkileg saga. Mér finnst þessi saga með þeim beztu, sem ég hef lesið. Það skiptir nefnilega ekki máli fyrir litlu þjóðina okkar, í hvaða knatt- spyrnufélagi æskumenn hennar kjósa að vera. Hitt skiptir máii, hvort þeir eru góðir menn eða ekki góðir menn. Það væri gaman, ef allir hefðu það dreng- lyndi að þora að játa yfirsjónir sínar og kappkostuðu að halda öll loforð sín eins og drengirnir, sem sagan er um- Það væru góðir menn. Það væru góðir Islendingar. Einn órgangur af Vorinu er alls 192 blaðsiður, tvídólka. Ódýrara lesefni við barna hæfi er vart fóanlcgt. Sýnið vinum ykkar „Vorið", svo að þeir geti gerxt kaupendur. 56 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.