Vorið - 01.06.1964, Page 16

Vorið - 01.06.1964, Page 16
er svo gaman. þeir brosa hvor til ann- ars, svitna og brjótast áfram, þar til þeir hafa komist í fremstu röð. Hér sjá þeir allt sem gerist á hátíðinni. Þú ert röskur piltur, segir Ivar og tekur í hendina á Guðbrandi. Svo beyg- ir hann sig niður og hvíslar að honum: Þú þarft ekki að sjá eftir því. Og hann brosir eins og hann búi yfir einhverju leyndarmáli. Þá kemur hreyfing á fólksfj öldann á torginu og allir horfa upp að ræðu- stólnum og leiksviðinu í kringum hann. Nú er komið að því, hugsar fólkið. Eftir stundarkorn fá þeir að sjá hana, fallegustu stúlkuna í bænum, — hana, sem var kjörin fegurðardrottning. Aðeins dómararnir vita, hver það er, en bráðlega kemur hún fram á leiksvið- ið með fjórum þernum sínum. Þá fá allir að sjá, hver hefur orðið fyrir val- inu og eftir þeirri stund bíða allir. — Nú kemur hún, heyrist hvíslað á torginu. Fólkið klappar saman lófunum, því að þarna koma stúlkurnar og á und- an fer fegurðardísin sjálf klædd í ljós- bláan kjól með blómakrans í hárinu og glitrandi festi um hálsinn. Þernurnar eru í Ijósrauðum kjólum og nærri því eins skrautlegar. ívar beygir sig niður að Guðbrandi, brosir leyndardómsfullur eins og áður, og hvíslar einhverju að honum. En Guð- brandur er með hugann við það, sem hann sér á leiksviðinu, og áttar sig ekki á því, hvað ívar segir. Þá byrjar lúðrasveitin að leika, svo kemur söngur og hver ræðan eftir aðra. Fegurðardrottningin brosir og hneig- ir sig í allar áttir. Hún hreyfir sig dá- lítið á leiksviðinu en þernurnar standa kyrrar. Guðbrandur starir stöðugt á fegurð- ardrottninguna. Hún er ekki aðeins fal- legri en allar hinar, en honum finnst hann þekkja hana. Og svo horfir hún svo oft í áttina, þar sem hann situr, eins og hún sé að horfa á hann. — Get- ur verið, að hún þekki mig? hugsar hann. Og í hvert sinn verður hennar blíða bros ennþá bjartara. Ef hann hefði ekki stöðugt starað á hana, þá hefði hann tekið eftir, að félagi hans hagaði sér dálítið einkennilega. Hann veifar alltaf með annarri hækj- unni. Varla getur honum nægt hin hækj- an, og það lítur út fyrir að fatlaði drengurinn standi án alls stuðnings, og hann er kátastur allra. Loks fara stúlkurnar niður af leik- sviðinu. Fólkið hrópar fagnandi húrra fyrir þeim. Það víkur til hliðar, svo að þær geti farið þangað sem þær viljæ Þá fyrst verður Guðbrandur undr- andi, því að fegurðardrottningin ásamt þernunum virðast stefna beint til hans. Nú sér hann andlitsfall hennar greini- lega, og samstundis er hann viss í sinni sök: — Jú, þessa stúlku hafði hann áður séð. Hann hefur þó ekki vitað nafn hennar fyrr en í dag. En hann hefur verið með henni í strætisvagninum, og alls ekki vitað, að hún væri nein feg- urðardrottning. Hann undrast yfir þessu og skilur hvorki upp né niður í því. Hann þor- ir varla að líta upp, en horfir niður fyr- 62 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.