Vorið - 01.06.1964, Side 17
lr sig> og bíður. Bráðum mun hún ávarpa
hann.
En það gerir hún ekki. í stað þess
staðnæmist hún fyrir framan ívar og tal-
ar við hann. Og ekki aðeins það, hún
faðmar hann að sér. En þernurnar
klappa saman lófunum eins og í brúð-
kaupi.
En ívar gleymir ekki félaga sínum.
Hann segir eitthvað og bendir. Og svo
Veit Guðbrandur ekki af sér fyrr en
hann er umkringdur af 5 stúlkum.
Fegurðardrottningin hælir honum fyr-
i® það, að hann sé góður drengur.
— Þakka þér fyrir, að þú hefur hjálp-
bróður mínum.
Og hún kyssir hann á kinnina þessu
til staðfestu.
Guðbrandur er utan við sig og fylg-
ist ekki með öllu sem gerist.
— Hún segir bróðir minn.
— Er fegurðardrottningin systir þín?
— Já, segir ívar. — Og við fáum
bílferð heim í dag með henni í blóma-
bílnum, segir hann.
Hann er utan við sig og áttar sig
ekki strax á þessum boðskap. Hann er
alltaf að hugsa um, að Ivar skuli vera
bróðir fegurðardrottningarinnar.
— En þá ert þú nokkurs konar prins,
segir hann, — eins konar krónprins.
Og þetta er svo skemmtileg hugmynd,
að þeir hlæja báðir lengi að henni.
E. Sig. þýddi.
tJRSLlT
>*
I
fEUÐLADM-
KEPPIIMI
í síðasta hefti var tilkynnt um verðlaunakeppni, sem Vorið og Flugfclag íslands
stóðu að. Var það ritgerðasamkeppni um efnið INNANLANDSFLUG FLUGFÉLAGS
ÍSLANDS OG GILDI ÞESS FYRIR LANDSMENN.
Þótttaka var heldur lítil, en úrslit urðu þau, að Ingibjörg Angantýsdóttir, Sól-
garði, Eyjafirði, hlaut 1. verðlaun, ferð til Skotlands, Valgerður Jónsdóttir, Vorsa-
bæ II, Skeiðum, 2. vcrðlaun, flugfcrð fró Reykjavík til Akureyrar og Erlingur
Hjólmarsson, Vallholti 21, Akranesi 3. verðlaun, flugferð fró Reykjavík til Vest-
mannaeyja.
Sveinn Sæmundsson, blaðafulltrúi Flugfélags íslands og Eiríkur Sigurðsson,
ritstjóri Vorsins, dæmdu um ritgerðirnar.
Vorið flytur Flugfélagi íslands beztu þakkir fyrir þessi höfðinglegu verðlaun
og óskar börnunum til hamingju með ferðalögin innanlands og utan.
(
VORIÐ 63