Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 26

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 26
KOBBI: Mig er sjálfsagt að dreyma. POTTUR: Alls ekki, góði. Tak mig! Tak mig! Taktu mig núna! Tak mig í skiptum fyrir kúna! KOBBI: Jæja þá, pottur góði — hérna góði maður, vildi ég sagt hafa. Hún Búbót er úti í fjósi. Komdu með mér að ná í hana. Komdu. TOBBA: Heyrðu, Kobbi! — Nú, hann er farinn. Jæja. — Hvað er þetta? Hvar hefur hann fengið þennan pott? Ekki eigum við þrífættan pott, það er ég viss um. Eg er svo aldeilis undr- andi. Nú, þarna ertu, Kobbi minn. Heyrðu, hvaða pottur er þetta? KOBBI: Eg fékk hann í skiptum hjá umferðasala, sem kom hér við. TOBBA: í skiptum fyrir hvað? KOBBI: í skiptum fyrir hana Búbót. TOBBA: Fyrir hana Búbót! Ertu alveg frávita, maður? Er þessi farandsali farinn? Náðu í hann. Kallaðu á hann. Flj ótur! KOBBI (kallar): Heyrðu, góði maður! Hæ . . ! Þetta er undarlegt. Ég sé hann hvergi. Hann er allur á bak og burt. Hann hefur bókstaflega orðið upp- numinn. Það sézt hvorki til lians né kýrinnar. TOBBA: Er hann horfinn? IJvaða vit- leysa. KOBBI: Komdu hérna út og sjáðu. TOBBA: Já, það er engan að sjá. — En ertu viss um, að það hafi nokkur komið? KOBBI: Við skulum líta út í fjós og sjá, hvort Búbót er þar. — Nei, nei, Búbót er horfin. — Ég liélt mig væri ef til vill að dreyma, en það hefur ekki verið. TOBBA: Þetta er ljóta áfallið. Nú er úti um okkur. POTTUR: Ekki harma og hljóða, heldur grípa pottinn góða! Tak mig, skúrið, skyggnið, fágið! skarpar! Fastar! Svo ég gljái. KOBBI: Flýttu þér, Tobba, og náðu í tuskur! TOBBA: Til hvers? KOBBI: Til þess að gera eins og pottur- inn segir. Fljót nú, Tobbu-tetur. Eg sæki vatn og dálítinn sand. TOBBA: Jæja, Kobbi minn, ég er nú með tusku í hendinni. KOBBI: Golt, þá þværð þú hann að innan og ég að utan. POTTUR: Takmig! Skúrið! Skyggnið! Fágið! (Þau gera það). Skarpar! Fastar! Svo ég gljái! TOBBA: Sj áðu, hann tekur alveg stakka- skiptum. Það er gaman að fága, þegar sér svona fljótt mun. POTTUR: Bóndi! Fastar á botninn hjá þér! Betur má! Fastar! —Já, nú líkar mér! KOBBI: Ljómandi er hann orðinn fallegur innan í hjá þér, Tobbu-tetur. Hvað gerum við næst, pottur góði? POTTUR: Set mig hérna út á hlað! Svona, fljót nú — gerið það! BÆÐI: Já, já. KOBBI: Ég skal lyfta honum, opna þú dyrnar, Tobba. TOBBA: Hérna — æ, misstu hann nú ekki, Kobbi minn. 72 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.