Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 32

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 32
hafið fengið í hálft annað ár, hafði smátt og smátt breytt útliti hennar. Litla, glettnislega andlitið hennar var nú orðið þungbúið og þrútið. Hinn granni og liðugi líkami hennar var einnig orðinn feitlaginn og þu.nglamalegur. í fyrstu lét móðir hennar sem hún sæi það alls ekki, bæði sín og Janis vegna. En dag nokkurn hafði skólafélagi einn hrópað til hennar: „Heyrðu, feita, ætlar þú ekki í megrunarkúr?“ og þegar Janis kom heim úr skólanum var hún utan við sig af örvæntingu. „En það er satt, mamma,“ sagði liún með grátstafinn í kverkunum, „ég hef breytzt. Og krakk- arnir skammast sín fyrir mig.“ Móðirin var hrærð, þegar hún faðm- aði barnið sitt. Hvernig átti hún að hjálpa henni í gegnum þessa nýju raun? Skömmu síðar sagði hún hægt: „Heldur þú, að það skipti guð nokkru, hvernig þú lítur út, elskan mín? Hann spyr að- eins, hvernig þinn innri maður sé, hvernig þú hugsir.“ Þetta róaði Janis um stund. En hún jafnaði sig þó ekki að fullu, fyrr en næsta föstudag. Þá kom hún þjótandi inn, hljóp út að glugganum og gægðist forvitin út á milli gardínanna. Faðir hennar lagði frá sér dagblaðið og spurði: „Hvað er að þér, ungfrú góð?“ „Mér? Æ, ég læt bara ganga á eftir mér,“ svaraði hún og brosti ómótstæði- lega. „Hugsaðu þér, pabbi, Ricky Lewis reyndi að na mér alla leiðina heim úr skólanum.“ Babson tók aftur upp dagblaðið og sagði í hálfum hljóðum: „Guð blessi hann.“ HEIÐURSSÆTIÐ í desember var komið á j ólakortasölu í skólanum. Sá nemandi, sem seldi flest skyldi fá að launum bók um heilaga Teresu. Janis ákvað að gera allt, sem hún gæti, til þess að vinna. Heilaga Ter- esa var eftirlætis-dýrlingur hennar, hún hafði nú í heilt ár verið að endurbffita mynd af henni, sem hafði verið gömul og illa farin. En þegar Janis kom heim af sjúkra- búsinu, höfðu hin börnin þegar heim- sótt öll húsin í nágrenninu. Að undan- skildri fjölskyldu hennar og næstu ná- grönnum voru hreint engir, sem vildu kaupa af henni kortin. Janis var á leið upp í herbergi sitt, döpur í bragði: „Ef ég bara þyrfti ekki alltaf á þetta leiðinda sjúkrabús,“ taut- aði hún, en þagnaði skyndilega. „Já, en þar get ég einmitt selt jólakortin,“ hróp- aði bún himinlifandi. „Já, auðvitað kaupir systir Craig heilan kassa. Og systir Jessamyn og Freda og — heyrðu, pabbi, hvenær förum við þangað næst? Eftir að hafa gengið um sjúkrastofur og barnadeildina hafði hún selt svo mörg kort, að hún hafði vinninginn yfir öll skólasystkin sín. Sigri hrósandi kom hún heim með bókina, sem hún Ias spialdanna á milli. Hamingjusöm á svip sagði bún við Charmaine: „Heilaga Teresa er stóra systir mín á himnum, eins og þú ert hér niðri á jörðinni.“ Til þess að láta í Ijós þakklæti sitt bjo hún til jötu úr pappa og fór með hana á barnadeild sjúkrahússins. „Haldið þér, að nokkur staður sé fyrir hana? spurði hún deildarhjúkrunarkonuna. 78 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.