Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 39

Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 39
Veslingur, þú átt það meira en skilið!“ kom honum nú ekki til hugar að efast um þetta lengur, heldur tók á rás heim til sín með hangikj ötslærið og færði það dóttur sinni; hún var bústýra 'há föður sínum, er var ekkjumaður. ^lúlkunni þótti þetta góður búbætir sv°na rétt fyrir jólin og varð svo mikið Urnj að hún gáði ekki að spyrja föður Slnn, hvernig honum hefði fénast það. ^jálfur hirti djákninn ekki að skýra fieinum frá, hvert gustukaverk postul- arnir hefðu gert á sér. Um kvöldið fengu ^au feðgin sér góðan bráðlætisbita af lasriiiu. Nú víkur sögunni til prestsins. Á að- langadagskvöldið laumast hann út í klrkju, til þess að sækja jólagjöfina anda konu sinni, en grípur í tómt eins °S nærri má geta. Lætur hann nú greip- 31 sópa um alla kirkjuna, en lærið finn- Ur hann ekki að heldur. „Hver þremill- jj111 getur verið orðinn af því?“ tautaði ann fyrir munni sér. Loks gefur hann U13P leitina og fer að finna djáknann, er °num var kunnur að ráðsnilld og vits- lnnnum og jafnan hafði verið hans einka arhvarf í öllum vandamálum. »Komið þér sælir, djákni minn!“ Sagði prestur. „Þér skylduð vænti ég 6kkl hafa orðið var við hangikj ötslæri, sem ég skildi eftir undir altarinu í gær? egar ég fór að vitja þess áðan, var það aIlt á burt.“ ^jáknanum varð heldur hverft við jPurninguna, og vissi hann ekki gjörla, 1Verju svara skyldi. „Po — postul- atnir! ‘ stamaði hann í hálfgerðu of- boði. „Postularnir? Hvað er um þá?“ sagði prestur. „Þeir, þeir — það eru þó aldrei þeir, sem hafa rænt hangikjötinu yðar, prest- ur minn? Þeir voru komnir alveg á helj- arþrömina, veslingarnir, og fengu ekki svo mikið sem mál á kroppinn á sér í jólagjöf. Svo hafa þeir líklega tekið hangikjötslærið lieldur en ekkert!“ „Þér munuð eiga kollgátuna,“ sagði prestur. „En það skal verða þeim dýr- keyptur biti!“ Hann var skapbráður, karlsauðurinn. Og hvað haldið þið svo að hann hafi gert? Hann gekk rakleiðis út í kirkju, tók líkneskjur guðsmann- anna, mölbraut þær og fleygði brotun- um á eldinn. Söfnuðurinn varð nú að vera dýr- lingalaus, og létu menn sér það allvel lynda. En einn góðan veðurdag fær prestur boð frá keisaranum, að hann ætli að vera við messu hjá honum í postulakirkjunni, er hann komi að taka skatt af löndum sínum. Þetta þótti klerki ill tíðindi, og voru nú góð ráð dýr. Hann fer samt að finna djáknann. Djákninn veltir vöngum um stund og segir síðan: „Þér eigið tvo syni, prestur minn, sem eru hér um bil jafnháir. Nú skuluð þér klæða þá postulabúningi og láta þá standa á allarinu í stað Páls og Péturs.“ Þetta þótti presti óskaráð. Hann dubb- aði upp drengina og skipaði þeim upp á altarið. Svo kom keisarinn, og hóf prest- ur guðsþjónustuna eins og ekkert væri um að vera. I fyrstu gekk allt ágætlega. En þegar prestur er í bezta gæti að lesa upp pistil- inn, verður sankti Páli litið út um glugg- ann og sér að geithafur Péturs bróður VORIÐ 85

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.