Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 44

Vorið - 01.06.1964, Qupperneq 44
KONUNGURINN OG MATSVEINARNIR Þegar Persival konungur var í góðu skapi, var hann kátasti konungur sem til var. Hann gat skemmt sér við „Skip er komið að landi,“ við prinsessuna í marga klukkutíma. Hann kærði sig ekki um það, þótt léttadrengirnir létu litlu skúturnar sínar sigla í gullbaðkerinu sínu risastóra. Og hann varð alls ekki uppnæmur, þótt hann heyrði hlátrasköll úr hallargarðinum eða söng stofustúlkn- anna, þegar þær nudduðu skínandi hand- föngin á hurðunum. En þegar Persival konungur settist til borðs, voru allir í höllinni þöglir sem mýs. Ekkert kom konunginum meir úr jafnvægi en ef eitthvað var að matnum. Meðan konungurinn mataðist, stóðu allir í höllinni á öndinni. Stúlkurnar læddust á tánum. Hirðsveinarnir stóðu stjarfir. En hræddastur var matsveinninn. Konungurinn sat við annan enda stóra borðsins í veizlusalnum. Enginn sat nokkru sinni til borðs með honum, vegna þess að hann vildi einbeita sér að matnum. Ef konungurinn var ánægður með hann, þurrkaði hann sér glaður með hvítu, stóru munnþurrkunni um munninn. Og þá heyrðust söngur og hlátrar í höllinni. En ef konunginum fannst fiskurinn of steiktur eða sósan of feit, ýtti hann stólnum frá borðinu, varð eldrauður í framan og öskraði: „Þessi matsveinn er bannfærður úr ríki mínu!“ Fréttin var fljót að berast til eldhúss- ins. Og þá tók yfirmatsveinninn af sér kappann, raðaði niður í ferðatöskuna sína og lagði af stað. Þar næst lét fyrsti matsveinn á sig kappann yfirmatsveins- ins. Og annar matsveinn lét á sig húfu fyrsta matsveins. Þriðji matsveinn setti upp húfu annars matsveins og síðan varð eldhúsráðsmaðurinn að ferðast utn konungsríkið í leit að þriðja matsveini- Dag nokkurn náði ráðsmaðurinn 1 lítinn mann, sem hét Jolly Jó, sem átti að verða þriðji matsveinn. Jolly Jo vai' lítið stærri en Alisa prinsessa. Til þesS að geta unnið verk sín í eldhúsinu, vaf hann neyddur til að standa á palli. Hann var þybbinn, hló hátt og var hávaða- samur. Það sem Alísu prinsessu fannst skemmtilegast við hann var, að hann sagði svo margt skrítið. Hann vissi allt um dísir og álfa og tunglskinsnætui'- Þessa furðulegu hluti hafði Alísa prins- essa aldrei heyrt um fyrr. Þegar hun var ekki í leiknum: „Skip er komið a'ð landi,“ við pabba sinn eða var í tón- listartímum, sat hún á háum stól í e^' húsinu og hlustaði á Jolly Jo. Einn daginn fékk konungurinn plóinu- búðing. Honum fannst of margar plóxn- ur í honum. Hann ýtti stólnum frá borð- inu, eldroðnaði í framan og öskraðx- „Þessi matsveinn er bannfærður úr ríkx r i a mmu! Og vegna þess að allir hækkuðu um eitt þrep, lét Jolly Jo á sig húfu annars matsveins og hélt áfram að segja sögur- Tveim vikum síðar setti Jolly J° a sig húfu fyrsta matsveins. 90 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.