Vorið - 01.09.1966, Side 20

Vorið - 01.09.1966, Side 20
ingu fyrir föður sínum og bankastjóran- um eftir þetta. Nei — aldrei! Nú voru þeir komnir alllangt út á vatnið, og alltaf heyrðist sama laglausa ópið og öskrið frá þeim, eins og binum ánni á ströndinni. Sverrir horfði til skiptis á þessar tvær hryggðarmyndir. Þá sá hann, að full- trúinn datt kylliflatur um þúfu og stóð ekki upp aftur, en Hansen tollstjóri sett- ist niður við hlið hans. En í sama bili heyrðist óp utan af vatninu og Sverrir sá, sér til mikillar skelfingar, að bankastjórinn var að reyna að standa upp í bátnum, en faðir hans, sem reri, og ekki hafði ennþá misst allt vit, var að reyna að sefa hann, og fá hann til að sitja kyrran. En það bar engan árangur, og eftir nokkrar árang- urslausar tilraunir til að fá hann til að setjast, hvolfdi bátnum allt í einu. Sverrir stóð í fyrstu hreyfingarlaus af skelfingu. Faðir hans og bankastjór- inn úti í vatninu í þessu ástandi! Og án þess að hugsa sig um, þaut hann af stað. Hann var vel syndur og sterkur eftir aldri. En þetta ætlaði þó að verða hon- um ofraun. Á meðan hann synti kná- lega út vatnið, sá hann föður sínum skjóta við og við upp, og hann sá að hann var að reyna að busla í vatninu og halda sér uppi, en bankastjór.inn sást hvergi. Þegar hann komst loksins á staðinn, bar sem slysið vildi til, var faðir hans búinn að drekka mikið vatn, og var að sökkva í þriðja sinn, en með fádæma snarræði tókst Sverri að ná í bann og halda honum á floti. En það varð Sverri hræðileg þrek- raun að bjarga hinum drukkna manni til lands. En þegar honum fannst hann ekki geta meira, þá sagði hann við sjálfan sig: Eg SKAL bjarga honum pabba mín- um — og honum tókst það líka. ---------Viku síðar en þetta skeði, voru þeir feðgar staddir við gröf banka- stjórans. Hann hafði fundist í vatninu og lá nú í hinni dimmu og köldu gröf í kirkjugarðinum. HiIIe póstmeistari var ekki vanur að láta tilfinningarnar hlaupa með sig, en í þetta skipti grét hann, en það hafði Sverrir aldrei séð fyrr. Hann studdi báðum höndum á hinar grönnu axlir sonar síns og stundi fram þessum orð- um: „Sverrir, góði drengurinn minn, þú varst vitrastur af okkur öllum. Þú, dreng- urinn minn, varst meira karlmenni en við allir hinir. Getur þú fyrirgefið pabba þínum að hann lítillækkaði sig svo að verða að öðrum eins ræfli eins og hann var á ströndinni við fjallavatn- ið? Og hann, sem nú er horfinn sjónum okkar, — við vitum vel, að hann var góður maður, þrátt fyrir allt, og átti gott hjarta. En til hvers er að tala um það nú? Ó, að þetta hefði aldrei komið fyrir!“ En á meðan tárin, tár iðrunar og sorg- ar, runnu niður kinnar póstmeistarans, tókust faðir og sonur í hendur og lofuðu hvor öðrum, að þeir skyldu aldrei bragða áfenga drykki. Það loforð hafa þeir báðir baldið og aldrei séð eftir því. H. J.M. þýddi. 114 VORIÐ

x

Vorið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.