Vorið - 01.09.1966, Page 25

Vorið - 01.09.1966, Page 25
grenitoppana, og hátt yfir höfði hans ^júga nokkrar krákur í hring. hað er gott að liggja svona og finna ekki til líkamans. Nú ættu þau að vera vöknuð af miðdegisblundinum lieima. hann fer að hugsa um, hvernig þetta nmni fara. Lúðvík hlýtur að leita hans °g finna hann þar sem hann liggur. — ^ara að það yrði sem fyrst, þá væri það iiðið hjá. hn brátt fær hann annað að liugsa Ufn, því að nú er eins og líf sé að vakna og frá í líkamanum. Hann finnur til í hnakkanum og það leiðir niður bakið. Hann svíður í enn- ’ð og annað eyrað er víst hálf rifið af. ð það hendir sviðinn. Og nú koma til- finningarnar víða. Hann finnur til i handleggjunum og höndunum alveg fiam í fingurgóma. Það er eins og rif- úeinin hafi færst inn á vissum stað, og það er eitthvað mikið að hægri fætin- Urn- Sársaukinn rífur hann og slítur. I’að er eins og verið sé að leinja hann allan. P’yrir stuttri stundu fann hann ekkert til og honum leið vel — en nú er annað. Hann byrjaði að lireyfa sig, reyndi að snúa sér á magann og vita hvort hann »æl;i risið upp. Já, vissulega finnur hann llk en þetla tekst. Hann getur snúið sér °g notað handleggina. Honum heppnast að ná hægra fætinum inn undir sig og risa upp. Hann stendur á fætinum og Sveiflar handleggjunum. — Þetta er kraftaverk. I'm hann hefur sársauka og sviða í éllum líkamanum. En eigi að síður get- Ul hann snúið höfðinu og notað báða •’andleggina og annan fótinn. — Og Áki verður að gæta þess að velta ekki um aflur, því að hann hefur ekkert til að styðja sig við. Hann gerir sér ljóst, að hann hefur hrapað niður fj allshlíðina og er allur helaumur. Áki hallar sér aftur á bak og lítur upp. Hann er með nokkra blóðbletti í andlitinu og hann er kafrjóður eftir á- reynsluna. Rauð rönd á vinstri hönd gefur til kynna, að hann hefur rifið sig, og vinstra hnéð á buxunum er flett i sundur eftir greinigrein. Loks kemur liann auga á hækjurnar hærra uppi. Þær liggja þar eins og hann hafi kastað þeim frá sér fyrir fullt og allt, og bros læð- ist yfir andlit hans. — Það væri ekki svo vitlaust, sagði hann við sjálfan sig. — Fyrst ég gat komið hækjunum þarna upp, þá hlýt ég að geta sótt þær aftur, hugsaði hann. Hann lagðist á fjóra fætur og byrjaði að skríða upp. Hann beitti öðruin fæt- inum og báðum höndunum. Hann hefði átt að reyna þetta fyrr. Honum miðar ótrúlega fljótt upp á við. Hann þarf lieldur ekki að óttast að horfa niður, þegar hann snýr sér að fjallinu. Hann heldur sér fast í lyngið, svo að engin hætta er á, að hann hrapi niður. Hann er kominn hátt upp og situr með hækjurnar í fanginu á sama slað og þeg- ar hann hrapaði. Allt í einu litur hann upp og veifar. — Halló, halló, ég er hér, kallaði hann. Langt niðri á flötinni koma þau út úr greniskóginum. Fyrst stara þau í kringum sig. Svo líta þau upp og ætla ekki að trúa sínum eigin augum, þegar VORIÐ 119

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.