Vorið - 01.09.1966, Page 37

Vorið - 01.09.1966, Page 37
lokaði gluggahlerunum, til þess að eng- lnn sæi til sín og setti slagbrand fyrir ^yrnar. Síðan sneri hann hringnum á ílngri sér og sagði: „Ég vil eignast hundrað þúsund dali undir eins.tc Þegar hann hafði þetta mælt, tók að rigna peningum, ’hörðum og gljáandi ^ölum. Þeir skullu á höfði hans, herð- Urn og höndum. Hann hljóðaði og æpti hástöfum og ætlaði að stökkva til dyr- anr>a, en áður en hann komst þangað, föll hann til jarðar, marinn og blóðug- Ur- En peningunum rigndi jafnt og þétt, °S að lokum var þunginn svo mikill, að gólfið brast í sundur og gullsmiðurinn steyptisi, ásamt peningunum, beint ofan 1 djúpan kjallara. En peningunum rigndi etln, unz komin voru hundrað þúsund °S þá lá gullsmiðurinn dauður í kjall- aranum og allir peningarnir ofan á hon- Uln. Þarna fundu svo nágrannarnir hann °S sögðu: „Það er mein, þegar gæfan verður þung sem farg.“ Svo komu erfingjarnir og skiptu öll- Urn auðnum á milli sín. Meðan þessu fór fram, hélt bóndinn Slaður heim til sín og sýndi konu sinni hringinn. »Nú er búið bazlið hjá okkur, góða min>“ sagði hann. „Nú höfum við höndl- aÓ hnossið. Við skulum hugsa okkur vel Uln> hvers við eigum að óska.“ Konan fann undir eins þjóðráð. ’dlvað segirðu um það,“ sagði hún, „að 'ið óskum okkur stærri akurs. Akurinn °kkar er svo lítill. Það gengur stór geiri 11111 í akurinn okkar, sem aðrir eiga. Við skulum óska okkur, að við eigum hann.“ »f*að finnst mér ekki ómaksins vert,“ svaraði bóndinn. „Ef við vinnuin vel og okkur vegnar sæmilega þetta árið, getum við sennilega keypt geirann og eigum samt óskina eftir.“ Og svo unnu þau af kappi allt árið, og aldrei hafði þeim gengið jafn vel. í árslok gátu þau keypt akurgeirann og höfðu þó talsvert fé afgangs. Nú fannst konunni heillaráð að óska sér að eignast kú og hest. Bóndinn lét glamra í skildingunum í vasa sínum og sagði: „Ekki skulum við eyða óskinni í slíka smámuni, heillin góð. Kúna og hest- inn eignumst við hvort sem er.“ Og það voru orð að sönnu. Um næstu áramót höfðu þau eignast andvirði kýr- innar og hestsins og meira en það. Þá neri bóndinn glaður höndunum saman og sagði: „Enn eigum við óskina eftir og höf- um þó eignast allt, sem við viljum. Þetta kalla ég meira en lítið lán.“ En konan taldi um fyrir manni sín- um að láta nú ekki dragast lengur að nota óskina. „Ég botna ekkert í þér,“ sagði hún. „Áður fyrr kveinaðir þú og barðir lóm- inn og óskaðir þér allra skapaðra hluta, sem þú áttir ekki, en nú, þegar þú getur eignast hvað sem þú girnist, þá vinnur þú baki brotnu og lætur beztu árin líða. Konungur, keisari, stórbóndi gætir þú orðið, með allar hirzlur fullar af pen- ingum, en þú getur ekki ráðið af, hvað velja skuli.“ „Hættu nú þessu sífellda nuddi, heill- in,“ sagði bóndi. „Við erum ung og líf- ið er langt. Hver veit, hvað síðar kann að höndum að bera, og þá getum við þurft á hr.ingnum að halda. Vanhagar VORIÐ 131

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.