Vorið - 01.12.1972, Blaðsíða 12
OG ALLT UPP Á EINN DISK
JÓLAÞULA
Komdu til mín fyrsta kveldið jóla.
Ég skal gefa þér einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín annað kveldið jóla.
Ég skal gefa þér tvö hænsni,
einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín þriðja kveldið jóla.
Ég skal gefa þér þrjár kökur,
tvö hænsni,
einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín fjórða kveldið jóla.
Ég skal gefa þér f jögur föt,
þrjár kökur,
tvö liænsni,
einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín fimmta kveldið jóla.
Ég skal gefa þér fimm feit,
fjögur föt,
þrjár kökur,
tvö hænsni,
einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín sjötta kveldið jóla.
Ég skal gefa þér sex svín með grísum,
fimm feit,
fjögur föt,
þrjár kökur,
tvö hænsni,
einn fisk,
og allt upp á einn disk.
Komdu til mín sjöunda kveldið jóla.
Ég skal gefa þér sjö sáðsæði,
sex svín með grísum,
fimm feit,
fjögur föt,
þrjár kökur,
tvö hænsni,
12
VORIÐ