Vorið - 01.12.1972, Blaðsíða 14

Vorið - 01.12.1972, Blaðsíða 14
Eru til litir, sem við sjáum ekki? Hver er sá veggur víöur og hár, vcenum settum röndum; gulur, rauður, grœnn og blár, gerður af meistara höndum? Heili okkar hefir tök á því, að taka við áhrifum frá ljósöldum utan við okkur, sem berast honum gegnum augað og sjóntaug- arnar. Þessi ljósáhrif greinir hann í ýmsa liti. Þó að okkur sýnist sólskinið gult eða gylt á litinn, þá eru í því margar tegundir litgeisla, eins og sýnir sig, ef það fellur gegnum glerstrending, eða ef sól skín á úða af fossi, eða í regnskýi. Þá brotna geislarnir og mynda friðarboga. Bf við berum alla liti, sem mannlegt, auga getur greint, saman við nóturnar á orgeli, eða slaghörpu, þá svara litirnir til einnar einustu áttundar (átta nótna). Lit- irnir fyrir ofan og neðan þessa áttund eru til, þó að við getum ekki séð þá. Ef augu okkar gætu séð þá, þá væru þeir óefað ólíkir öllum þeim litum, sem við þekkjum. Það, sem er neðan við rauða endann á áttundinni, sem við sjáum, myndi líta út eins og aðrir litir, en sem okkur er auðvit- að ókleift að ímynda okkur. Og það sem er ofan við fjólubláa endann á áttundinni, bæri okkur nýja og óþekkta liti, sem alltaf hafa þó verið til. Nú hafa vísindamenn sannað það skýrt og greinilega, að skordýr, t. d. maurar, geta séð litgeisla utan við hina fjólubláu, geisla sem augu okkar eru blind fyrir. Hvernig þeir líta út fyrir þeirra sjónum, er okkur hulin ráðgáta. Samt sem áður er gaman að vita til þess, að til eru lífverur, sem geta skynjað fleiri nótur en áttundma okkar, — verur, sem eru skyggnar á undur og æfintýri heilla ljósheima, sem lokaðir eru mannlegum augum. SKRÍTLA Franska heilbrigðisráðuneytið lét nýlega framkvæma ýmsar rannsóknir í sambandi við heilbrigðismál, og þá kom í ljós, að einungis fjórði hver Prakki átti tann- bursta, og að minna en 10 prósent af frönsku þjóðinni burstaði tennurnar reglulega. Á 15 af hundraði þeirra heimila, sem notuðu tannbursta, voru allt upp í fimm manns um sama burstann! Þetta gefur tilefni til að rifja upp gamla sögu um tvo menn, sem ferðuðust í sama klefa á farþegaskipi. Þegar annar vaknaði einn morguninn, sá hann hvar hinn var í óða önn að bursta í sér tenn- urnar með tannbursta þess fyrrnefnda. Hann sagði því reiðilegri röddu: „Hvað í ósköpunum eruð þér að gera? Þetta er tannburstinn minn, sem þér eruð að nota.“ „Ó, svaraði hinn, „þér verðið að afsaka. en ég hélt að hann tilheyrði skipinu. 14 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.