Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1931, Page 4

Bjarmi - 01.12.1931, Page 4
180 B JAiRMI »Eigum við að verða samferða?« spyr hinn. »Hvert ertu að fara?« Hann steinþegir enn. »Kannske þu eigir engan samastað?* Það var eitthvað í hijóm raddarinnar, sem kom honum til að svara í lágum róm: »Nei«. »Komdu þá heim með mjer. Það er skammt hjeðan«. »Nei, þakka þjer fyrir«. »Þaö verður tekið vel á móti þjer. For- eldrum mínum þykir vænt um, ef þú kemur«. »Þau þekkja mig ekkert«. »Það gjörir ekkert til«. »Nei, jeg vil það ekki. Láttu mig vera!« Þá er lögð hönd á axlir honum: »Þú mátt ekki láta svona. Mig langar svo fjarska mikið að þú komir heim með mjer. Átt þú ekki foreldra sjálfur?« »Nei«. »Eru þau dáin — bæði?« »Já«. »Þá skaltu einmitt koma með mjer. Þn saknar þín enginn. Alla langar heim um jólin. Þá má enginn vera einmana úti«. Þeir gengu þegjandi um hríð. »Segðu mjer annars eitthvað um for- eldra þína. Þótti þjer ekki ósköp vænt um þau?« »Pabbi dó þegar jeg var lítill«. »En mamma þín?« »Hvort mjer þótti vænt um hana móð- ur mína —!« »Já, auðvitað hefir þjer þótt vænt um hana. Og henni um þig. Segðu mjer eitt- hvað um hana og jólin ykkar. IJann svaraði engu. En gráturinn sat um hann. »Það hlýtur að vera sárt að missa hana móður sína. En það hlýtur einnig að vera afar sárt fyrir foreldra að missa börnin sín. Ef það værir nú þú sjálfur, sem værir dáinn, og hún mamma þín saknaði þín um jólin. Sárara væri það þó. Nú er hún heima hjá Guði — og heldur þar jól«. Ungi maðurinn leit þegjandi til sam- ferðamannsins. »Af hverju þegirðu? Trúirðu ekki á Guð?« »Jeg hefi lítið orðið var við Guð«. Það var beiskja í rómnum. »Þetta máttu ekki segja! Trúði móðir þín ekki á Guð?« »Jú«, svaraði hann ofur hægt. »Þarna sjerðu það«. »Hversvegna tók hann þá mömmu frá mjer? Maður verður ekki mikið var við Guð, þegar aðseturstaðurinn er á heimilis- lausra hælum og svo úti á þjóðveg'inum«. »Guð er einnig hjá þeim, ef þeir vilja sjálfir hafa hann með sjer. Honum þykir engu síður vænt um þá menn«. »Hvað veist þú um það?« »Jeg veit það, og það er einmitt það, sem jólin sýna okkur«. »Þú prjedikar dável, þykir mjer!« »Jeg segi einungis sannleikann«. Þeir voru komnir í hliðargötu. Ökunni maðurinn tók um herðar unga mannsins og leiddi hann með sjer. Hann fylgdi hon- um eftir eins og í leiðslu; hann var ör- þreyttur og vissi tæplega, hvar hann var staddur. Spölkorn frá veginum var lítið, afskekt hús. Það logaði ljós í tveim gluggum, öðr- um megin við inngöngudyrnar. ökunni maðurinn leit inn um gluggana. Ljósið fjell í andlit hans, — það var sviphreint, ung'- legt andlit; yfir því hvíldi sálrænn, bjartur blær, sem heilög alvara var fólgin í. Aug- un fyltust af tárum. Svo fór hann að inn- göngudyrunum og lauk upp. Ljósrák lagði fram í fordyrið, um rifu fyrir ofan hurð- ina. Hann drap að dyrum. III. Gömlu hjónunum í litla húsinu hafði verið örðug' jólatilhugsunin. Þau höfðu þó ekki nefnt það hvort við annað. Það hefði ekki orðið til annars en að ýfa upp sárið.

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.