Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1931, Blaðsíða 12

Bjarmi - 01.12.1931, Blaðsíða 12
188 BJARMI bátnum upp eftir Han-ánni, og stundum verið mápuð á leiðinni. Umferðum er .að mestu leyti hætt á Hangjang, enda í hönd- um kommúnista á stórum svæðum. Nú var útlit fyrir að kommúnistum mundi takast að stöðva bílferðirnar líka. Læknirinn okkar og fylgdarmaður hans biðu í Hwayuen eftir bílferð, í 5 vikur. Þegar þeir loksins komust af stað, töfðust þeir víða á leiðinni, en komu til Laohokow á 8. degi. Lögðust þeir þar báðir í blóð- sótt, og eru ekki búnir að ná sjer enn þá. Við vorum hepnari. Snemma morguns daginn eftir að við komum til Hwayuen, ókum við úr hlaði, og komum á öðrum degi til Laohokow. Var það glæfraför mikil. Ræningjarnir höfðu stöðvað bílana hvað eftir annað, rænt far- angri og peningum, og drepið einn mann daginn áður. Á hættulegustu stöðunum ókum við með geysi hraða. Hermenn stöðv- uðu okkur einu sinni, og tróðust nokkrir þeirra inn í bílinn. Vorum við eftir það 20 manns í bílnum, en sæti aðeins fyrir tólf. svo að þá leið kemst nú enginn til Hankow, nema fuglinn fljúgandi. Eiga kommúnist- ar og ræningjar sök á því. Kom það okk- ur ekki á óvart. Frá ferðalagi mínu til útstöðvanna mun jeg segja ykkur í næsta brjefi. Sem stend- ur eru góðar horfur á að okkiur gefist ný og óvænt tækifæri til að flytja þessu fólki fagnaðarboðskap friðarins. Nýr kristniboði fluttist hingað í sumar, Anda, skólabróðir minn úr Noregi, ásamt konu sinni. En hún hefir verið kenslukona í Laohokow og er skólasystir Herborgar. Svo vinna hjer tveir kventrúboðar noskir, 5 kventrúboðar kínverskir og 8 trúboðar. Verður sagt frá því í næsta brjefi hvernig við skiftum með okkur verkum, og gjöri jeg mjer von um að geta sagt ykkur góðar frjettir. Tengchow, Honan, 5. okt. Í931.. Ólafur ÓlafsHon. Frá Kína. Það berast margar hroðalegar frásögur frá Kína um þessar miundir. Grimmilegar innanlandsstyrjaldir, vatnavextir, hung- ursneyð og ófriður við Japan valda svo margháttaðri eymd, að ókunnugir geta ekki gjört sjer glögga grein fyrir, þótt eitthvað lesi um það í frjettablöðum. Aðalstjórn K. F. U. K. í Kína, sem er að undirbúa alþjóðaþing þess fjelagsskap- ar í Kína 1933, sendi t. d. í október í haust ávarp til K. F. U. K. í öllum löndum, til að biðja um hallærishjálp út af vatna- vöxtum og skora á allar kristnar konur um víða veröld að beita áhrifum sínum til þess að stórveldin vestrænu komi í veg fyrir yfirgang Japana í Manschjúríu, og þakkar um leið framkomu alþjóðastjórnar K. F. U. K. í Genf, sem sneri sjer til þjóðabandalagsins í haust og bað það stilla til friðar. Svipuð áskoriun hefir komið frá K. F. U. M. í Kína, og hefir t. d. K. F. U. M, í Danmörku birt áskorun um almenn sam- skot í þessu augnamiði. Segir þar, að flóð- ið mikla í sumar hafi farið yfir akurlendi, sem sje ,um 130 þús. ferkílómetra (Island er um 100 þús. ferkm.), og 12 miljónir manna hafi orðið fyrir stórtjóni af þess völdum. Kínversk stórblöð flytja átakan- legar áskoranir um hjálp og erlendir kristniboðar eru víða í bjálparnefndum með bestu mönnum þarlendum. — Sam- kvæmt eldri reynslu, bjargast Kínverjar við lítið. 10 kr. ísl. nægja t. d. einum Kín- verja í 4 mánuði frá því að deyja úr hungri, og 33 kr. heilli fjölskyldu. Danska stjórn- in gaf í haust meðalaforða gegn farsóttum og víða annars staðar eru stórfeld sam- skot hafin. Rauði krossinn í Bandaríkj.un- um gaf t. d. 100 þús. dollara. En Kína er víðlent, og víða er þar vinnu- friður og árangur mikill af kristniboði.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.