Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1931, Síða 15

Bjarmi - 01.12.1931, Síða 15
B JA-RMI 191 þeir vita ekki, hvernig þeir geti komist undan valdi þeirra. — Engan þarf að furða á því, þótt heiðnir menn viti þetta eigi; hitt er furðulegra, að fjöldi kristinna manna skuli ekki þekkja eina veginn, Drottin Jesúm Krist. B. J. ísl. ------------ Sr. Stefán Jónsson f. 21. nóv. 1860 — d. 1. nóv. 1931. »Það líður frá mörgu brjósti bæn og' blessunarþökk fyrir árin væn, sem hann var þeim hjartfólginn bróðir, sem sáluhirðir og sveitar skraut og sannur vinur í gleði og þraut, sem best reynast guðsmenn góðir« Svo kveður B. Þ. Gröndal í erfiljóði um sr. Stefán frá Staðarhrauni, sem Vísir flutti 15. f. m., og jeg býst við að allir kunnugir taki undir þau ummæli. Ljúf- menska hans og gestrisni er mjer sjerstak- lega minnisstæð frá fyrstu samfundum, og því betur sem jeg kyntist honum, því vænna þótti mjer um hann. Það var gott að koma að Staðarhrauni, hvort heldur var á nótt eða degi, um það get jeg borið, - en best þótti mjer að vera einn á ferð með prófastinum, þegar hvor- ugur þurfti að hraða sjer, og því næði gott til að tala um áhugamál. Foreldrar sr. Stefáns voru Jón bóndi í Ilítarnesi Stefánsson prófasts í Stafholti og kona hans Marta Stefánsdóttir prests Stephensens á Reynivöllum. Föður sinn misti hann 7 ára gamall og ólst eft'ir það upp hjá föðurbróður sínum, sr. Þorvaldi Stefánssyni í Hvammi. Árið 1884 útskrif- aðist hann úr prestskólanum og var vígð- ur vorið eftir aðstoðarprestur afa síns i Stafholti, en fjekk Hítarnesþing 1887 og Staðarhraunsprestakall 1892; var þá Hít- arnes sameinað því, nema Kolbeinsstaða- sókn lögð til Miklaholts. Hann var próf- astur frá J916 til 1927, er hann slepptí alveg embætti. Síðustu árin var hann hér í Rvík, farinn að heilsu. Ilann kvænt- ist 1894 eftirlifandi konu sinni, Jóhönnu Katrínu Magnúsdóttur frá Syðra-Lang- holti, er reyndist rnanni sínum hinn besti förunautur og studdi mjög að þeim höfð- ingsbrag, sem jafnan var á heimili þeirra. Börn áttu þau ekki, en ólu upp 2 börn sr. Arnórs heitins á Hesti, þau sr. Lárus í Miklabæ og frú Guðrúnu á Skinnastáö í öxarfirði. Ujafli' afliciitar ltjarina: Prestlaunasjóður Strandarkirkju: 2 kr. Hallgrlmskirkja: Kona við Hvalfjörð 5 kr., M. Hd. Akrauesi 10 kr., G. Kr. Skeljavík kr. 2,50. ,161akveðjan 1031 er farin af stað frá lteykja- vík og send barnakennurum um alt land. Efni hennar var nú, sem fyrri, þýtt eða fært í letur í Rvlk, en ritið prentað í Höfn, og af því að setjarar hafa ekki skilið íslenskuna, er í smá- grein vitnað í myndir, sem áttu að fylgja, en hafa ekki komist að. — Lesendur virði á betri veg. Fái eitthvert barnaheimili enga Jóla- kveðju um jólin, reynir afgreiðsla Bjarma að bæta úr, sje hún látin vita bráðlega.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.