Bjarmi - 01.12.1931, Blaðsíða 36
212
B JAíRMI
og- aftur um Norður-Svíþjóð með 2 leið-
togum Fósturlandsstofnunarinnar sænsku
og flutti þar ræður og erindi oft tvisvar
á dag í eitthvað 3 vikur, og fólk fór langa
vegu frá sumarvinnu að hlusta á þá.
Det fjerde Segl, skáldsaga eftir Kvelle-
stad, 248 bls., 4 kr. Ekpatruljen, eftir
Ingrid Lang, saga frá norskum kvenskát-
um, 2 kr. Nigarsfolket, skáldsaga úr
norskri sveit eftir Lars Berg, 192 bls., 3,75.
Dápen. Asting docent skrifar þar gott
rit um skírnina. 64 bls., 1,20.
Frá Lohses forlagi í Kaupmannahöfn
hafa Bjarma borist þessar bækur:
Toner sem klang, eftir Marie Dinesen,
200 bls., verð 2,50 kr. d. Þessi bók er
æfisaga ágætrar þýskrar konu, er dó í
fyrravor, rúmlega sextug. Jlún hjet Eva
von Thiele-Winklers. Faðir hennar var
stórefnaður greifi í Schlesíu, og þótti lítið
til koma í fyrstu er Eva dóttir hans kaus
að verða hjúkrunarkona, og þótti miklu
skemtilegra að flytja fátæklingum hjálp
og tala um frelsarann ,við alskonar fólk,
en að sækja veislur og dansleiki baróna
og greifa. — Seinna breyttist hann þó og
veitti henni bæði fje og fulla samúð, er
hún stofnaði hverja líknarstofnunina á
fætur annari, og enda fór svo, að fáir
mannúðarfrömuðir voru ástsælli hjá Þjóð-
verjum og fáir aðalsmenn meir virtir en
»systir Eva«. Þótt hjerlendis muni fáir
þekkja störf hennar, — þá eru samt nú
hjúkrunarsystur, er lærðu hjá henni, og
uppeldisbörnin hundruðum saman
víðsvegar um heim. Kristniboð var eitt af
áhugamálum hennar, enda fóru margar
hjúkrunarkonur til Asíu frá Friedenshort,
en svo eru líknarstofnanir »systur Evu«
nefndar. — Aldrei bað hún menn um fje,
en þó kom nægilegt. — Bókin segir vel frá
þessu öllu og flytur margar myndir.
Fra Bönnens Verden, eftir D. G. Mon-
rad, 180 bls., verð 2,50 kr. — Þessi bók
eftir Monrad biskup (f. 1811, d. 1870) hef-
ir oft verið prentuð fyrri bæði á frum-
málin,u og öðrum tungumálum. — Sr. Jón
Bjarnason sneri henni á íslensku, — og er
hún alment talin meðal bestu bóka um
bænina.
Helga Fonner, eftir Lilli Hubschmann
Pedersen, 236 bls., 2,50 og Manden der
sejrede, eftir Joseph Hocking, 334 bls.,
4,50 kr., heita tvær nýprentaðar skáldsög-
ur hvor annari betri. Hjúkrunarkona er
aðalpersónan í fyrri sögunni, en ungur
prestur, sonur ensks lávarðar, í hinni
sögunni.
I Fangenskab blandt kinesiske Kom-
munister, eftir H. B. Lewis kristniboða,
68 bls., v. 65 aurar. Er þar átakanleg
frásaga um Porteus kristniboða og frú
hans, er kommúnistar hertók.u í fyrra, og
Ingibjörg Ölafsson gat um í Bjarma liðið
sumar.
Julestjernen, 2,25. Jtd, 3,50. Hjepnmenes
Jidebog, 2,10. De imges Julebog. De Gamles
Jidebog, 0,75. Börnenes Julebog, 0,50.
Klokkerne kimer, kristniboðs sögur, 1,50.
Jideklokken, 1 kr. Julesne, eftir Jenny
Becker, 104 bls., 2 kr., alt góðkunnar jóla-
bækur með sögum og myndum.
K. F. U. K.s Julebog, 1,50.
Derude fra, kristniboðssögur, 0,50.
Kammerlierre S. Bamer, minningarrit
eftir sr. A. Fibiger. Barner kammerherra
(d. 1921) var um 30 ára skeið meðal trú-
föstustu og duglegustu kristindómsstarfs-
mönnum Dana, og arfleiddi að lokum
heimatrúboðið danska að búgarði sínum,
Eskildstrup á Sjálandi og ,um 100 þús. kr.
að auk. öðrum 100 þús. kr. skifti hann
meðal ýmsra annara kristilegra fjelaga og
líknarstofnana. Á Eskildstrup er nú sum-
arheimili presta, heimatrúboða og fram-
kvæmdarstjóra K. F. U. M. og K.
Johannesrösten, stór og vönduð bók um
Jóhannes skírara, eftir Axel Malmström,
174 bls. — Den fjerde Nattevagt? ræða
eftir Axel Biilow, 40 bls. — Ungdomsliv,