Bjarmi - 01.12.1931, Side 37
BJARMI
213
34. útg„ eftir Ricard, 3 kr., vinsælasta
æsgubók Dana. Da tœndte sig Lyset,
12 g'óðar jólasögur eftir sr. Þórð Tómas-
son, 96 bls., 2,50.
Frá De Unges Forlag í Árósum:
I Smeltediglen, æfisaga Amelíu Sieve-
kings, er starfaði að líknarmálum í Ham-
borg og víðar, um miðja síðustu öld, með
framúrskarandi dugnaði og fórnfýsi, og
varð að ýmsu leyti fyrirmynd þeirra
kvenna, er best hafa síðan starfað að þeim
málum á Norðurlöndum, 3 kr.
Rövere og Soldater, eftir Keng Pulu.
Dansku r verkfræðingur, er verið hefir
mörg ár eftirlitsmaður við saltnámur víðs-
vegar í Kína og Kínverjar kalla Keng
Pulu, skrifar þessa bók. Munu margir les-
endur hennar sammála Gunnar Engberg,
er segir í formála hennar, að hún hafi
frætt sig meira um Kína en nokk'ur önn-
bók. 160 bls., 3,50 kr.
Gyldenröde Blomster, skáldsaga frá Ind-
landi, eftir I. B. Rose. 3,50.
Jeg saa han sóm Barn, 64 stuttar ræð-
ur fyrir unglinga, eftir Skak Barfod,
136 bls., 2,00 kr.
Frá »Fosterlandsstiftelsen« eða heima-
trúboðinu sænska eru nýkomin: Julkárven
(32. ár) og Julottan (36. ár), bæði lit-
prentuð með sögum og mynd,um, aðallega
ætluð börnum, kosta 40 aura og 55 aura
sænska. Julgávan (25. ár) er mikið stærri
(verð 1,25) og efnismeiri. Er þar meðal
annars allítarleg frásögn með myndum frá
hátíðahöldunum miklu í Stokkhólmi liðið
vor, þegar fjelagið var 75 ára.
Hátíðin stóð 5 daga (17.—21. júní). Og
voru þá fluttar ræður og erindi alla þá
daga og aðsókn geysimikil. »Fósturlands-
stofnunin« er lang'stærsta heimatrúboðs-
fjelag Norðurlanda, en rekur jafnframt
kristniboð í Asíu og Afríku og sjómanna-
heimili í mörgum erlendum höfnum. Urðu
því umræðuefnin margbreytt á hátíðinni
og ræðumenn margir. I þeim hóp var
Stadener biskup, kirkju og kenslumálaráð-
herra Svía, Bernadotte konungssonur, sra
Germazion Ghebre frá Austur-Afríkp, Em-
anuel Raman frá Indlandi o fl. Annars er
eftirtektarvert, að þessi fjelagsskapur hef-
ir jafnan átt örugga leiðtoga meðal greifa,
baróna, herforingja og dómara. Formenn-
irnir hafa verið 10 þessi 75 ár og ekki
nema tveir þeirra prestar. Er Beskow
hirðprestur, formaður 1892—1899, þeirra
kunnastur. Tveir hershöfðingjar hafa ver-
ið formenn á þessari öld, Axel Rappe frí-
herra (1906- 1918) og B. Malm (1918—
1922). Eskil Levander yfirkennari er for-
maður nú.
Á stofnfundinum, 1856, mættu 26 menn.
Þrír voru guðfræðingar, en hinir flestir
vor.u úr aðalsmanna og lögfræðinga hóp.
Miklar trúarvakningar höfðu farið um
Svíþjóð þá undanfarið, og því fjekk fje-
lagið 76 fulltrúa út um alt land (»provins-
ombud«) þegar á 1. ári. Var 21 prestur í
þeim hóp. Árstekjur urðu þó einar 7712
kr. fyrsta árið, en á einum hátíðafundin-
um liðið vor voru gefnar 59 þús. kr. í »af-
mælissjóð« fjelagsins, og þegar taldar voru
um kvöldið allar aðkomnar gjafir til hans,
var sá sjóður orðinn rúmar 117 þús. kr.
Til »Fósturlandsstofnunarinnar« teljast
nú 371 kristniboðsdeild, 31 hjeraðsdeild,
680 æskulýðsfjelög og 954 sunnudagaskól-
ar með 70 þús. þörnum. Kristniboðar þess
eru 88 (og' 27 á eftirlaunum), sjómanna-
prestar 3, og 4 aðstoðarmenn óvígðir, og
leikprjedikarar heima fyrir yfir 200, sem
umboð hafa frá fjelagsstjórninni, auk
fjölda annara sjálfboðaliða.
Alt þetta margbreytta starf er fyrst og
fremst unnið af leikmönnum, en þó hafa
margir ágætir prestar verið framarlega í
hópnum og starfið er kirkjulegt í orðsins
bestu merkingu. Væri meira en lítið æski-
legt að vjer Islendingar kyntumst því bet-
ur en verið hefir.