Bjarmi - 01.05.1998, Blaðsíða 28
Guðmundur Karl Brynjarsson
Öflugt æskulýðsstarf
í Ölafsvlk
ndanfarin fimm ár hefur
verið starfrækt æskulýðs-
starf í Ólafsvík sem er
samvinnuverkefni kirkj-
unnar í Ólafsvík og Lands-
sambands KFUM og K. Má þetta teljast
nokkuð óvenjulegt því allir starfsmenn
æskulýðsstarfsins koma frá Reykjavík.
Þeir sem verið hafa með að mestu frá
upphafi eru Baldur Hallgrímur Ragnars-
son, nemandi í ensku við Háskóla ís-
lands, og Haraldur Guðjónsson, strætis-
vagnastjóri hjá SVR.
Útsendari Bjarma var sendur i það
verkefni að tala við Harald og Baldur af
þvi tilefni að starfið í Ólafsvik er fimm
ára gamalt. Því miður var Haraldur
upptekinn þegar viðtalið var tekið svo
Baldur sat einn iýrír svörum.
Geimverur, sem aldrei
komu, ollu upphafi
starfsins
Reykjavík, Egill Skúlason og Guðmund-
ur Kárason, en þeir höfðu lengi verið við-
loðandi kristilegt starf í KFUM og Kristi-
legum skólasamtökum. Þeir bjuggust þó
ekki við að sjá verur af öðrum hnöttum
en vildu íylgjast með hvað myndi gerast.
Egill og Guðmundur fengu næturgist-
ingu heima hjá vinkonu þeirra og áttu
langt spjall við foreldra hennar. Þegar
það kom upp úr kafinu í samræðunum
að þeir væru í KFUM hvöttu hjónin þá
Egil og Guðmund til að hefja kristilegt
unglingastarf í Ólafsvík. Eftir þetta gerð-
ust hlutimir hratt. Kirkjan í Ólafsvík og
Landssamband KFUM og K vom tilbúin
að skipta með sér kostnaðinum, sem af
starfinu myndi hljótast, svo ekkert var að
vanbúnaði. Þeir félagar fengu mannskap
úr Reykjavík til liðs við sig og farið var
hálfsmánaðarlega vestur. Fmmheijamir,
ásamt þeim Agli og Guðmundi, voru
Hugrún Hjaltadóttir, Haraldur Guðjóns-
son o.fl. Viðtökumar fóm fram úr björt-
ustu vonum. Fjöldi unglinga mætti og að
lokinni samveru var boðið upp á spjall og
fyrírbæn. Unglingamir vom mjög forvitn-
ir um kristna trú og þegar hefðbundnum
fundum lauk mynduðust gjama langar
biðraðir í persónulegt samtal við leiðtog-
ana. Unglingastarf KFUM og K á Ólafsvik
hefur gengið í gegn um töluverðar breyt-
ingar síðan það hófst. Fljótlega varð
mætingin mun dræmari en í fyrstu en
starfinu var haldið úti eftir sem áður,
hálfsmánaðarlega yfir vetrartímann."
Yngri systkini taka við af
þeim eldri
Hvemig hefur starfið gengið í vetur?
„í vetur hafa fundirnir verið betur
sóttir en hin fýrri ár. Starfsmenn auk
okkar Haraldar hafa verið Katla Þöll
Guðmundsdóttir, Katrín Jónsdóttir, Jón
Viðar Ásmundsson og Sigrún Kapítóla
Bjarnþórsdóttir. Krakkamir, sem koma
Hvemig hófst þetta alltsaman Baldur?
„Segja má að upphaf Ólafsvíkurstarfs-
ins hafi verið í nóvember 1993 þegar fólk
þyrptist á Snæfellsnes hvaðanæva af
landinu og heiminum öllum þvi von var á
geimverum hingað til lands. Þangað fóm
meðal annars tveir ungir menn frá