Bjarmi - 01.05.1998, Blaðsíða 9
kvæntust og fluttu að heiman og
ég var ein eftir. Ég þurfti því að
finna mér verkefni. Ég tek meðal
annars þátt í starfi KFUM og
KFUK og ég er með biblíuleshóp
hérna heima. Mér finnst skipta
miklu máli að gera það sem mér
flnnst gaman og að reyna hjálpa
fólki sem þarf á þvi að halda. Þá
hef ég engan tíma til að vera ein-
mana. Nýjasta verkefnið mitt er
að ég á nú þrjú lítil bamaböm og
það finnst mér stórkostleg gjöf
Guðs og þau hafa fyllt svolítið
tómarúm sem var innra með mér.
Hvað hefur sú reynsla sem þú
hefur gengið í gegnum kennt þér
fyrst og fremst þegar þú horfir til
baka?
Hún hefur kennt mér að trúin
á Jesú getur bjargað mér í hvaða
erfiðleikum sem er og að þegar ég
er lengst niðri er Guð hjá mér. Ég
veit að ég er hans barn og að
hann elskar mig. Mér finnst ég
koma út úr þessu með sterkari
trú en þegar allt lék í lyndi. Þetta
hefur einnig sýnt mér að ég á
marga vini sem láta sér annt um
mig og eru tilbúnir til að hlusta
og biðja og það er ómetanlegt.
Það hefur einnig kennt mér að
biðja fyrir öðrum og reyna að
heimsækja og hringja í fólk sem
er að ganga í gegnum erfiðleika.
Aður hélt ég mér meira til hliðar
en nú veit ég hvað það var mikil
huggun að fólk kom til mín og
hringdi í mig þegar mér leið illa.
Sem hjúkrunarkona er ég einnig
farin að skilja betur fólk sem á
við sjúkdóma að stríða og að-
standendur þess. Það hjálpar
mér að hugga og likna. Ég er
Guði þakklát fyrir að hafa leitt
mig og varðveitt í gegnum erfiða
tíma.
*>
Halldór Reynisson
1
Ný dögun
samtök um sorg og sorgarviðbrögð
Ný dögun er nafn á samtök-
um um sorg og sorgarvið-
brögð og hafa þau starfað í
nokkur ár. Bjarmi hafði
samband við sr. Halldór
Reynisson. prest í Neskirkju í Reykjavík,
og bað hann um að segja í stuttu máli
frá samtökunum en Halldór á sæti í
stjóm þeirra.
Samtökin Ný dögun helga sig starfi fyrir
syrgjendur. Þau standa fyrir fræðslu-
fundum um sorg og sorgarviðbrögð, svo-
nefndum „opnum húsum“, þangað sem
syrgjendur geta leitað og fengið stuðning
í sorg sinni, og útgáfu fréttarita og blaða
um sorg og sorgarviðbrögð.
Samtökin voru stofnuð 8. desember
1987 og var sr. Sigfinnur Þorleifsson
sjúkrahúsprestur íýrsti fonnaður þeirra.
Tildrög voru þau að veturinn á undan
hafði komið saman hópur syrgjenda
undir handleiðslu Páls Eiríkssonar geð-
læknis og m.a. staðið fyrir fjölsóttri nám-
stefnu um sorg og sorgarviðbrögð í
Reykjavík og á Akureyri. Til að byija með
vom fræðslufundir haldnir i Hallgríms-
kirkju og simavakt var sett upp með að-
stöðu á Borgarspítalanum. Seinna vom
fundir samtakanna svo í Laugarnes-
kirkju og safnaðarheimili Grensáskirkju
en em nú í Gerðubergi í Efra-Breiðholti.
Starf Nýrrar dögunnar er með eftirfar-
andi hætti:
1. Fræðslufundir em að jafnaði einu
sinni í mánuði frá því í september
og fram í apríl-maí. Á þessum fund-
um er fjallað almennt um sorg og
sorgarviðbrögð, barnsmissi, for-
eldramissi, andvana fæðingar og
fósturlát, sjálfsvíg, sorg unglinga og
svo framvegis. Fýrirlesarar em sér-
fræðingar, s.s. sálfræðingar, lækn-
ar, hjúkmnarfræðingar og prestar,
en einnig tala syrgjendur sjálfir.
Fræðslufundirnir eru að jafnaði
íyrsta íimmtudag í hveijum mánuði
i Gerðubergi og hefjast kl. 20.
2. Opin hús em að jafnaði mánaðar-
lega og þangað geta syrgjendur leit-
að eftir stuðningi og ráðgjöf. Yfir-
leitt em þar nokkrir sjálíboðaliðar,
sjálfir úr hópi syrgjenda sem starfa
undir leiðsögn sálfræðings. Opnu
húsin em að jafnaði þriðja fimmtu-
dagskvöld í hverjum mánuði í
Gerðubergi og hefjast kl. 20. Yfir-
leitt em ekki opin hús á sumrin.
3. Ný dögun er með símatíma annan
hvem fimmtudag kl. 18 - 20. Síma-
númer samtakanna er 557 4811.
4. Þá hefur Ný dögun staðið fyrir
nærhópum fyrir syrgjendur og em
6-10 manns í hverjum hópi.
Stjóm Nýrrar dögunar 1998 - 1999 kosin
á aðalfundi 16. apríl 1998 er þannig
skipuð:
Sr. Gylfi Jónsson, fomiaður
Elísabet Ingvarsdóttir, gjaldkeri
Dagný Hildur Leifsdóttir, ritari
Arndís Sævarsdóttir
sr. Halldór Reynisson
í varastjórn eiga sæti:
Guðrún Ásgrímsdóttir
Rósa Guðnadóttir
Vilhelmína Þorsteinsdóttir
Heimilisfang Nýrrar dögunar er:
Ný dögun, samtök um sorg og
sorgarviðbrögð
Menningarmiðstöðinni Gerðubergi
v/Austurberg
111 Reykjavik
Halldór Reynisson er prestur í Neskirkju í Reykjavik.