Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.05.1998, Qupperneq 23

Bjarmi - 01.05.1998, Qupperneq 23
Þungamiðja kristninnar hefur flust frá Vesturlöndum til hins svokallaða priðja heims. Árið 1960 bjuggu 2\3 allra kristinna manna á Vesturlöndum en nú hefur petta snúist við og a.m.k. 2\3 kristinna manna býr í priðja heiminum um pessar mundir. Sífellt er verið að stofna kristni- boðshreyfingar íhinum ungu kirkjum sem eru ávextir starfs vestrænna kristniboða. sitt alvarlega til þess að kristniboðs- starfið geti haldið áfram, en lítið eða ekkert var fjallað um hvernig fara ætti að þessu eða hvað gera þyrfti. Sem sagt, ágæt ráðstefna sem leiddi ekki til at- hafna. Hugtakið kristniboð var skil- greint svo vítt að í rauninni var allt sem kirkjan gerir kallað kristniboð og hið sértæka kristniboð, það að fara með fagnaðarerindið til annarrar menningar, varð mjög óljóst. Pretoría 1997 Seinni ráðstefnan, sem Torbom gerði að umtalsefni, var haldin á vegum AD 2000 and Beyond hreyfingarinnar (Árið 2000 eftir Krist og síðar - hreyfingin) og var kölluð GCOWE 97 eða Global Con- ference on World Evangelization 97 (Al- þjóðaráðstefna um alheimskristniboð '97). Þátttakendur voru um 4.000 frá 135 löndum. AD 2000 hreyflngin er eins konar framhald Lausanne hreyfingar- innar sem Billy Graham og fleiri góðir menn höfðu forystu um að stofna. Markmið beggja hreyfinganna hefur ver- ið að vinna að eflingu kristniboðs á meðal þeirra þjóða þar sem kristni er lítið eða ekkert þekkt. Ráðstefnan í Pretoríu var vinnuráðstefna þar sem umfjöllunarefnið var hvemig gera mætti framtíðarsýn margra kristinna manna að veruleika: „Kirkja á meðal allra þjóða og fagnaðarerindið til allra manna fyrir árið 2000.“ Draumurinn getur ræst Að mati Torbjoms er ártalið 2000 auka- atriði og e.t.v. er óraunsætt að ætla að draumurinn verði að veruleika svo fljótt en aldrei fyrr í sögunni hafa kristnir menn haft eins mikla möguleika til að ná til annarra þjóða og nú, í gegnum út- varp og sjónvarp, tölvur og prentað mál. Ef til vill gæti þetta orðið að vemleika í okkar kynslóð, t.d. eftir 20 ár. Síðustu 45 árin hefur Biblían eða hlutar hennar verið þýdd á lleiri tungumál en frá dög- um Krists til ársins 1950 samanlagt. Nú hefur Biblían eða hlutar hennar alls verið þýdd á 2.167 tungumál og 1.600 þýðingarverkefni em í gangi og 1.000 til viðbótar em í athugun. Þungamiðja kristninnar hefur ilust frá Vesturlöndum til hins svokallaða þriðja heims. Árið 1960 bjuggu 2/3 allra krist- inna manna á Vesturlöndum en nú hef- ur þetta snúist við og a.m.k. 2/3 krist- inna manna búa í þriðja heiminum um þessar mundir. Sífellt er verið að stofna kristniboðshreyfingar í hinum ungu kirkjum sem eru ávextir starfs vest- rænna kristniboða. Vöxturinn í þessu starfl er slíkur að árið 1970 vom næst- um engir kristniboðar sendir frá kirkjum þriðja heimsins en á þessu ári senda kirkjur þriðja heimsins álíka marga kristniboða og kirkjur Vesturlanda. Um aldamótin 2000 er talið að kirkjur Vest- urlanda muni senda um 120.000 kristniboða en kirkjur þriðja heimsins um 160.000. Þau lönd í þriðja heimin- um, sem senda flesta kristniboða, eru Brasilía, Nígería og Suður-Kórea. Þessi tilfærsla á þungamiðju kirkj- unnar sást vel á ráðstefnunni í Pretoriu en þá voru aðeins 20% þátttakenda frá Vesturlöndum, 60% voru frá Afríku en hinir voru frá Suður-Ameríku og Asíu. Með öðrum orðum, kristniboð er ekki lengur málefni kristinna Vesturlanda- búa heldur allra kristinna manna. Guð hefur reist upp nýtt kristniboðsfólk í þriðja heiminum sem þráir að ná þeim þjóðum heimsbyggðarinnar sem enn hafa ekki fengið fagnaðarerindið um Jesú Krist - í okkar kynslóð. Síðustu tíu árin hefur mikið starf ver- ið unnið við að afla upplýsinga um út- breiðslu fagnaðarerindisins og stöðu kristninnar meðal þjóðanna. Gengið hefur verið út frá þeirri skilgreiningu að þjóð sé menningarheild sem talar sama tungumál. Samkvæmt henni búa um 12.000 þjóðir á jarðarkringlunni. Talið er að enn sé ekki búið að ná til 2.000 þeirra. Samkvæmt því eru minna en 2% þeirra sem tilheyra þeim mótmælendur eða minna en 5% nafnkristnir. Á ráðstefnunni í Pretoriu var lagður fram listi 579 þjóða sem ekkert kristi- legt starf er unnið á meðal og ekki vitað til að nein áform séu uppi um að hefja þar starf. Ráðstefnugestir voru beðnir um að taka einhverjar þessara þjóða að sér og reyna að fá kirkjuleiðtogana heima eða stjómir kristniboðsfélanna til að skuldbinda sig til að hefja starf á meðal þeirra. Loforð vom gefin um að reyna að hjálpa a.m.k. 400 þjóðum. Lof- orðin komu fýrst og fremst frá kirkjum þriðja heimsins. Verðum við gerendur eða áhorfendur? Til þess að fagnaðarerindið nái út til allra þeirra þjóða, sem enn hafa litinn eða engan kristinn vitnisburð, verðum við kristið fólk á Vesturlöndum að auka samstarfið við hinar nýju kristniboðs- hreyfingar í þriðja heiminum og finna góðar og ef til vill nýjar leiðir til þess. Ekki er nokkur vafi á að kristniboðs- skipunin verður framkvæmd þvi að hún er skipun frá Guði (Mark. 13,10) og hann vakir yfir henni. Spurningin er hins vegar hvort kristnir menn á Vest- urlöndum, ísland með talið, verði áhorf- endur eða þátttakendur. Við verðum af mikilli blessun ef við verðum ekki þátt- takendur. Kjartan Jónsson er íramkvæmdastjóri S.Í.K.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.