Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 24
Og eins ef kirkjan biður kristniboðana á hinum stöðvunum að koma á fund til Arba Minch, þá geta þeir ekki komist til baka sama dag og þá verðum við að hafa einhveija aðstöðu. Við vorum svo heppin að þegar kristniboðið dró starfsfólk sitt úr starfinu á sjúkrahúsinu þá losnuðu íbúð- ir á sjúkrahúslóðinni og þær hafa síðan verið notaðar sem gestahús. Hvernig líst ykkur á að vera komin heim? Gulli: Það er ekki auðvelt eftir að hafa búið í Eþíópíu um 15 ára skeið. Maður er tengdur Eþíópíu tilfinningalegum böndum og börnin okkar hafa verið nánast alla sína ævi í Eþíópíu. Ýmislegt sem hér þykir sjálfsagt að allir viti, vita þau ekki. En að öðru leyti er auðvitað gaman að koma aftur til íslands og fá að taka þátt í starfi í Guðs ríki hér líka. Vallý: Hjarta okkar er í Eþíópíu, það verður eflaust alltaf þar. Gulli: Hér finnur maður meira fyrir lífs- gæðakapphlaupi og stressi. Vallý: Eþíópar tala alltaf um að tíminn komi. Hér er sagt að tíminn fari. Þar úti hefur fólk tíma fyrir hvert annað því það tekur sér tíma. EJ einhver sem les viðtalið veltir þvíJyrir sér hvort hann haji kristniboðsköllun, hvernig getur hann orðið viss? Gulli: Ef þú lifir í samfélagi við Guð og lest orð hans og finnst að Guð sé að benda þér á að það sé þörf fyrir kristni- boða, þá koma fram áleitnar spurning- ar eins og: „Er þetta kannski eitthvað fyrir mig?“ Oft eiga menn í baráttu og hugsa: „Nei, ég get þetta ekki,“ og reyna að ýta þessu frá sér. Svo koma spurn- ingarnar aftur og óróleiki. Það er merki um að Guð er að kalla. Það getur komið fram á svo margan hátt. Sumum finnst þeir fá mjög ákveðin skilaboð frá Guði, að hann sé að kalla á þá, en aðrir fá óbeinni skilaboð með því að þeir vita stöðugt um þörfina og verða ekki í rónni fyrr en þeir gefast upp og segja: „Ég er fús til að fara.“ Svo geta menn reynt þetta kall og rætt við leiðtoga kristniboðsins um það hvað sé best að þeir geri. Vallý: Ég held það sé mjög mikilvægt fyrir þá sem eru að velta þessu fyrir sér að biðja Guð allan tímann að sýna sér hvort þetta sé hans vilji því ef Guð ætlar mér ekki að fara út þá er ekki rétt að ég fari. Auðvitað er þetta ekki alltaf jafn skýrt, en við getum beðið Guð um leið- sögn og að loka þá leiðum ef liann ætlar sér eitthvað annað en við héldum. Gulli: Ég held að mörgum í dag finnist kristniboðið svo fjarlægt að það sé eitt- hvert voðalegt átak að fara út en Guð kallar okkur til að ávinna aðra menn. Einu sinni heyrði ég mann segja að það þyrfti eiginlega köllun til að fara ekki. Guð segir skýrt í orði sínu: „Farið út um allan heim.“ Og við ættum að hlýða þessari skipun. Það þarf því ekkert síð- ur sérstaka köllun til þess að gera eitt- hvað annað. En auðvitað er þetta fyrst og fremst spurning um það að vera fús til þess að leyfa Guði að nota sig, til þess sem hann vill. Vallý: Hvort sem það er heima eða á kristniboðsakrinum. Viljið þið segja eitthvað Jleira að lokum? Gulli: Við viljum gjarnan fá að þakka þeim sem hafa staðið á bak við okkur og beðið fyrir okkur. Það hefur verið ómetanlegt, bæði fyrir okkur og börnin okkar sem hafa verið á heimavist. Þau eru athyglisverð þessi farartæki kristniboðanna.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.