Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.10.1998, Qupperneq 26

Bjarmi - 01.10.1998, Qupperneq 26
NOREGUR NOREGUR Áhersla á aukið sjálf- stæöi heimatrúboösins innan kirkjunnar Anfin Skaaheim, aðalframkvæmdastjóri norska heimatrúboðsins, segir í viðtali að hann vilji sjá heimatrúboðsfélögin þróast í átt til meira sjálfstæðis innan kirkjunnar með eigin kvöldmáltíðar- og skírnarathafnir. Samkvæmt hefð er norska heimatrúboðið sjálfstæð hreyfing innan norsku kirkjunnar og heimatrúboðsfólk hefur gjarnan sótt kirkju á sunnudagsmorgnum en komið síðan saman á eigin samkomum á kvöldin. Astæður fyrir áherslu á aukið sjálfstæði eru einkum tvær að mati Skaaheims. Annars vegar eru gömul landfræðileg sóknamörk úrelt og henta ekki þörfum nútímans. Hins vegar er það kenn- ingarlegur ágreiningur innan norsku kirkjunnar á síðari árum, nú síðast varðandi málefni samkyn- hneigðra. Skaaheim álítur að það sé í raun veru- legur guðfræðilegur klofningur í norsku kirkjunni nú um stundir sem geri það að verkum að það sé víða orðið erfiðara en áður fyrir heimatrúboðsfólk að taka þátt í opinberu starfi kirkjunnar. Heima- trúboðsfólk hefur jafnan verið fúst til að taka að sér ábyrgðarstörf í söfnuðunum, s.s. í sóknar- nefndum og fleiru, en nú sé það ekki eins sjálf- sagt, einkum ef það kemur niður á starfi þess fyr- ir heimatrúboðsfélögin. Skaaheim leggur áherslu á að ekki megi líta á þessar nýju áherslur sem fyrsta skref heimatrú- boðshreyfingarinnar út úr norsku kirkjunni og hann er þeirrar skoðunar að eftir sem áður sé hlutverk hreyfingarinnar innan þjóðkirkjunnar mikilvægt. ENGLAND Anglikanskir biskupar gegn samkynhneigö Biskupar anglikönsku kirkjunnar í heiminum komu saman til fundar fyrir skömmu en slík- ur biskupafundur er haldinn tíunda hvert ár. Þar var samþykkt með yfirgnæfandi meirihluta sú ályktun að sambúð samkynhneigðra samræmdist ekki boðskap heilagrar ritningar. 526 biskupar greiddu ályktuninni alkvæði, 70 voru á móti og 45 sátu hjá. Það voru einkum biskupar frá Norð- ur-Ameríku sem voru fylgjandi því að viðurkenna samkynhneigð. Biskupafundurinn getur einungis ályktað um málið þar sem hann hefur ekki vald yfir anglikönskum kirkjum einstakra landa. Ný plata meö Solvi Hopland Norska söngkonan Splvi Hopland, sem komið hefur hingað til lands og er því mörgum ís- lendingum að góðu kunn, gaf í vor út nýja geisla- plötu undir heitinu „Den er min venn“. Þetta er önnur platan hennar en sú fyrri hefur selst í yfir 2000 eintökum. Þá plötu gaf hún út sjálf en nú er það hljómplötufyrirtækið Tylden & Co sem gefur plötuna út. Splvi segist með plötunni vilja koma því á framfæri að líf með Guði gefur jákvæða lífs- gleði. Hún vill að fólk uppgötvi þá innri upp- sprettu sem hún á í trúnni á Guð og taki sjálft að leita hennar. Jafnframt vill hún benda á að krist- in trú snertir daglegt líf. Ýmsir þekktir Norðmenn koma við sögu á nýju plötunni, m.a. Kjell Magne Bondevik forsætisráðherra, Valgerd Svarstad Haugland barna- og fjölskyldumálaráðherra, An- fin Skaaaheim aðalframkvæmdastjóri norska heimatrúboðsins og fleiri. ÍSRAEL Mikil fjölgun / Israelsríki nútímans er 50 ára í ár. Ibúum hefur fjölgað mikið á þessum 50 árum eða úr 800 þúsundum árið 1948 í 5,9 milljónir nú. 43% þessarar fjölgunar, eða 2,7 milljónir, eru vegna innflytjenda. Ekkert annað land í heiminum hefur tekið á móti jafnmörgum innflytjendum ef miðað er við hlutfall af íbúatölu. ÍRAK Stór farmur af Biblíum Stór flutningabíll flutti fyrr á árinu stóran farm af Biblíum og skýringarritum til íraks. Meðal annars var um að ræða 140 þúsund barnabiblíur, tíu þúsund skýringarit við Biblíuna og 115 þús- und dagatöl með biblíuversum. Það var Biblíufé- lagið í Jórdaníu sem stóð að þessu. Nokkrir söfn- uðir í Bagdad voru heimsóttir af þessu tilefni. Áformað er að fara með aðra sendingu með um 200 þúsund Nýja testamentum sem stjórnvöld í írak hafa heimilað að dreifa til kristilegra skóla í landinu.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.