Bjarmi - 01.03.1999, Page 18
Rætt við Pip Wilson, framkvæmdastjóra KFUM
í Romford á Englandi, um starf meðal unglinga
að er ekki algengt nú á dögum
að sjá menn um sextugt í
unglingastarfi. Siðustu dag-
ana í janúar dvaldi hér á landi
Pip Wilson, framkvæmdastjóri
KFUM í Romford á Englandi, og hélt
hann námskeið á vegum Biblíuskólans
við Holtaveg. Bjarmi fékk að fljóta með í
útsýnisferð með Pip einn föstudagseftir-
miðdag og forvitnast um manninn
og starfið sem hann er í forsvari
fyrir. Þá kom í ljós að hann á ým-
islegt sameiginlegt með áfanga-
stöðum okkar í þetta skiptið, Gull-
fossi og Geysi.
„Ég er falleg manneskja,“ segir Pip
Wilson þegar ég bið hann um að
segja mér eitthvað um sjálfan sig.
„Ég trúi þvi að ég sé falleg mann-
eskja en ég var orðinn fertugur
þegar það laukst upp fyrir mér.
Fram að þeim tíma var ég að hafa
áhyggur af því hvernig ég gæti orð-
ið öðruvísi en ég er. Ég vildi vera
grannur í stað þess að vera feitur,
ég vildi vera menntaður í stað þess
að vera heimskur, ég vildi líta vel út í
stað þess að vera ljótur og svo framveg-
is. Þótt ég hafi orðið kristinn þegar ég
var tuttugu og eins árs uppgötvaði ég
það ekki fyrr en ég var orðinn fertugur
að Guð tekur mér eins og ég er. Guð
elskar mig nákvæmlega eins og ég er og
þrátt fyrir það hvemig ég er. Guð elskar
hverja manneskju nákvæmlega eins og
hún er. Þetta ferli í lííi mínu hefur verið
mér mjög mikilvægt og ræður miklu um
það hver ég er. Það hefur líka skipt
miklu máli varðandi þær aðferðir sem ég
nota í starfi minu með ungu fólki. í þrjá-
tíu ár hef ég unnið með fólki sem hefur
átt við erfiðleika að stríða og jafnvel verið
skaddað á ýmsan hátt. Sú vinna hefur
krafist þess af mér að ég spyrði sjálfan
mig út frá hverju ég ætlaði að ganga. Ég
vil ganga út frá því að allir menn séu fal-
legar manneskjur (beautiful human per-
sons). Ég trúi þvi að Guð líli á sköpun
sína og hugsi: Það sem ég gerði var gott.
Þannig vil ég líta á sjálfan mig og aðra.
Það eru allir mikilvægir í augum Guðs
og það er hlutverk okkar að elska fólk og
vera fulltrúar Guðs hér á jörðinni.
Að öðru leyti má segja um sjálfan mig
að ég er unglingastarfsmaður fyrir
KFUM í Romford.“
Hvemig starjar KFUM í Romford?
„KFUM í Romford er eitt af tvö
hundruð KFUM-félögum á
Englandi. Það hefur 5500 félags-
menn, 140 launaða starfsmenn
og um 200 sjálfboðaliða. Við
erum staðsett í austurhluta
London þar sem um hálf milljón
manna býr. Félagið hefur starfað
í yfir 90 ár. Til að byrja með var
þar aðeins lítil bygging en íyrir
þrjátíu árum var byggð ellefu
hæða blokk, meðal annars með
íþróttaaðstöðu og kapellu. Ég
varð framkvæmdastjóri KFUM í
Romford fyrir þrettán árum og
það hefur verið mitt hlutverk að
móta hugmyndafræðina og
markmið félagsins. Hugmynda-
fræði KFUM snýst um fólk — að elska
fólk. Við, eins og önnur KFUM-félög,
leggjum áherslu á líkama, sál og anda
og trúum því að maðurinn sem heild
þurfi að vaxa. Menn þurfa að stunda
einhvers konar líkamsrækt til þess að
líkaminn verði ekki rekald, þjálfa sálina