Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1999, Síða 23

Bjarmi - 01.03.1999, Síða 23
Hvemig lýsti það sér? „Ég velti því fyrir mér þennan vetur hvað ég ætti taka mér fyrir hendur í líf- inu og að hverju ég ætti að stefna. Ég varð að taka einhverja ákvörðun í því sambandi. Ég tókst á við spuninguna um það hvers vegna við lifum á þessari jörð og hvernig við eigum að nota líf okkar. Þegar ég mat það með augum Biblíunnar fannst mér kristniboð vera æðst alls. Hvað getur maður gert betur með líf sitt en að þjóna Guði sem kristniboði? Það er erfitt að útskýra þetta en fyrir mér var enginn annar möguleiki til. Kristniboðsköllunin varð svo sterk að ég komst ekki undan henni og tók þá erfiðu ákvörðun að verða kristniboði. Þess vegna fór ég líka í kristniboðsskólann. “ Tíminn á kristniboðaskólanum var lærdómsríkur en einnig erfiður því að Leifur fann sig knúinn til að taka af- stöðu til margra mála sem fjallað var um í náminu. Stundum voru nemend- urnir sendir í prédikunarferðir út á land. Það hafði áhrif á hann að hitta fólk sem lifði íyrir það að aðrir eignuð- ust trú á Jesú Krist. „Við vorum 15 í bekknum. Nú eru bekkjarfélagamir að dreifast út um allan heim sem kristniboðar. Það verður fróð- legt að fylgjast með þeim á næstu árum. Stundum sótti að mér efi og ég spurði sjálfan mig hvort ég hefði tekið rétta ákvörðun. Ýmsar spurningar leituðu á mig: Er Guð raunverlega að kalla á mig? Er ég nógu góður til að fara í þetta starf? Hvað með allar hætturnar? Af hverju ekki að starfa heima og fara í betur launað starf? Það var gott að eiga bekkjarfélagana að. Við hjálpuðum hver öðrum." Hvaða þýðingu hajði kristniboðavígslan Jyrirþig? „Mjög mikla. Vígsludagurinn hefur verið mér fjarlægur í fimm ár en nú er komið að því að halda af stað til Afríku. Vígslan var staðfesting á köllun minni, bæði fyrir sjálfan mig og þá sem senda mig. At- höfnin var mjög góð og innileg. Ég er mjög ánægður með að biskupinn okkar skyldi hafa vígt mig. Það var einnig gott að heyra hvemig hann talaði um kristni- boðið. Stundin hafði mikil áhrif á mig. Það er mikilvægt að hafa fólk heima sem biður fyrir manni og stendur að baki starfinu úti á kristniboðsakrinum. Án þess er ekki hægt að reka kristni- boð. Vonandi tekst mér að halda góðu sambandi við kristniboðsvini og vera duglegur að skrifa." Kirkjan er alþjóðleg Er ekki nóg að gera hér heima á íslandi? „Jú, auðvitað. Ég kom heim úr ensku- námi í Englandi rétt fyrir jólin. Margir nemendanna vom að undirbúa sig und- ir að fara til starfa sem kristniboðar. Það var gott að kynnast þessu fólki. Þá kynntist maður á nýjan hátt hinni al- þjóðlegu kirkju Krists. Guð hefur kallað okkur til að fara og gera allar þjóðir að lærisveinum. Þeirri skipun er hlýtt um allan heim nú á tímum. Fólk fer frá ótal mörgum löndum til annarra þjóða með hinn kristna boðskap. Ef við glötum tengslunum við hina alþjóðlegu kirkju og kristniboð kirkjunnar þá held ég að við týnumst í naflaskoðun. Það er mjög slæmt að missa tengslin við kristna bræður og systur í öðmm löndum. Ég hitti nýlega þrjá Asíubúa sem voru á leið út sem kristniboðar. Einn þeirra var frá Suður-Kóreu á leið til Suður-Afríku, annar Japani á leið til Indlands og sá þriðji Indónesi á leið til Kasakstans. Það eru margir þátttak- endur í kristniboði í hinni alþjóðlegu kirkju Krists. Ég hvet fólk til að afla sér upplýsinga um þetta starf þvi að það er mjög áhugavert." Til Kenýu Leifur mun starfa í Pókothéraði í Kenýu. Ákveðið hefur verið að hann muni búa í Chepareria, íslensku kristniboðsstöð- inni, ásamt fyrrverandi bekkjarfélaga frá kristniboðaskólanum og fjölskyldu hans. Mikill vöxtur hefur átt sér stað í lúth- ersku kirkjunni í Pókothéraði undanfar- in ár. Um þessar mundir eru 98 söfnuð- ir í héraðinu, auk þess sem starf er unn- ið á 33 stöðum til viðbótar með það að markmiði að þar verði einnig stofnaðir söfnuðir. Leifur mun taka þátt í þessu starfi með því stofna nýja söfnuði, byggja þá upp og taka þátt í fræðslu- starfi Biblíuskólans í Kapenguria.“ Ferðu úl með einhveija drauma? „Já, þann draum Guðs að breiða ríki hans út um heim. Lengi var starfað á meðal Pókotmanna án þess að miklir ávextir sæjust. Nú er starfið hins vegar farið að bera ávöxt. Ég sé að draumar og hugsjónir kristniboðanna sem hafa starfað á undan mér eru að rætast. Það er draumur Guðs. Minn draumur er að halda starfinu áfram og taka þátt í að flytja nágrannaþjóðflokkunum hinn kristna boðskap með þvi að efla kristni- boðshugarfar kristinna Pókotmanna. Það er bæn mín að augu kirkju ís- lands og almennings á íslandi rnegi uppljúkast fyrir því hvað kristniboð er og mikilvægi þess. Oft er rætt um mik- ilvægi hjálparstarfs. Það er mikilvægt og margir vinna mjög gott starf á því sviði en kristniboð er ekki alveg það sama. í kristniboði er lögð áhersla á boðun trúar á Jesú Krist en kristniboð- ar reka oft hjálparstarf líka. Þegar kristniboð er rekið í Japan þarf ekki að stunda hjálparstarf þar vegna þess að þjóðin hefur allt lil alls. En fólkið þarfn- ast hins kristna boðskapar ekkert síður en við. Það er einnig bæn mín að fleira ungt fólk vilji þjóna Guði sem kristniboðar. Margt af því hefur þegar fengið mennt- un sem hægt er að nota, t.d. kennara- menntun og læknismenntun. Það er mikill uppgangur í Kína og yfirvöld sækjast eftir fagmenntuðu fólki af ýmsu tagi, t.d. enskukennurum, fólki í heil- brigðisstéttum, tölvumenntuðu fólki o.s.frv. Ég hef heyrt að yfirvöld sækist sérstaklega eftir kristnu fólki þvi að þau vita að þvi er hægt að treysta. Hægt er að jrjóna Guði þar í slíkum störfum. Ýmsar aðferðir eru notaðar í kristniboði. Svokallað tjaldgjörðarkristniboð þar sem kristniboðinn vinnur fyrir lifibrauði sínu i almennum störfum í kristniboðslandinu, á án efa eftir að aukast til muna á næstu árum. Hægt er að stunda kristniboð á þann hátt í Kina og löndum múhameðs- trúarmanna.“ Hin alþjóðlega kirkja Krists er marg- breytileg og það er auðgandi fyrir kristna kirkju á íslandi að vera í samfélagi við hana. í kristniboðsstarlinu gerist það á sérstakan hátt og bræðrabönd eru knýtt á milli íslensku kirkjunnar og dóttur- kirknanna. Munum eftir því að biðja fyrir Leiíi.

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.