Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1999, Side 31

Bjarmi - 01.03.1999, Side 31
vel og kostur er: „Ekki alltaf bókstaflega en með fullri virðingu íyrir sögunni eins og hún kemur fyrir í Biblíunni og þannig að áhrif hennar skili sér.“ Söguþráðurinn er kunnur þeim sem þekkja fásögn 2. Mósebókar. Kvikmvnd- in hefst með því að Móse er lagður í körfu í Nílaríljót. Hann elst síðan upp með Ramses, syni Setis, Faraós í Eg- yptalandi. Þeir lifa saman sem bræður í góðu vinfengi þar til Móse fær að vita að hann er ekki Egypti heldur tilheyri hann hinni kúguðu þjóð Hebrea. Þegar Guð kallar hann til að leiða þjóð sína úr ánauðinni í Egyptalandi til Kanaan- lands neyðist hann til að berjast við Ramses, besta vin sinn og bróður, sem þá var orðinn Faraó. Myndinni lýkur síðan þegar Móse hefur tekið við steintöflunum með boðorðunum tíu á Sínaífjalli. Eins og sjá má er það öðru fremur í tengslum þeirra uppeldisbræðra Móse og Ramsesar sem þeir „Draumasmiðju- menn“ taka sér skáldaleyfið. Það felur þó ekki í sér slik frávik frá biblíusög- unni að orð sé á gerandi. í öllum megin- atriðum er frásögn 2. Mósebókar fylgt. Myndin dregur fram þá illsku sem fylgir misbeitingu valds og sýnir að Guð fyrir- lítur kúgun og ánauð. Hún flytur einnig þann boðskap að Guð lætur sér annt um hina kúguðu og niðurbeygðu og heyrir bænir þeirra. Nútíminn er tími myndarinnar. Við verðum stöðugt fyrir áreiti myndefnis bæði í blöðum, sjónvarpi og tölvum. Biblíuefni hefur í mörg ár verið sett fram i formi teiknimynda bæði fyrir blöð og sjónvarp, vissulega með misgóðum árangri. Framleiðendum Egypska prins- ins hefur tekist að gera sögu Biblíunnar af Móse og flóttanum frá Egyptalandi spennandi fyrir „vídeókynslóðina" sem hefur mótast meira af myndefni en skrifuðum texta. Teiknimynd kemur aldrei í staðinn fyrir sjálfan biblíutext- ann, ekkert frekar en önnur form sem notuð eru til að túlka hann. En hún getur vakið áhuga á efni Biblíunnar og miðlað boðskap hennar rétt eins og góð predikun eða hugvekja. Þess vegna er fengur að alvöru teiknimynd um Móse og frelsunina frá Egyptalandi. Trúboðssjóður Bjarma Taktu þátt í að senda Bjarma víðar Bjarmi þarf að ná sem víðast og blaðið þarf á öílugum stuðningi að halda. Fjár- hagur blaðsins er bágborinn um þessar mundir en þó vilja ílestir sem kaupa það að það haldi áfram að koma út. Kristján Einarsson, ljósmyndari blaðs- ins hefur sett fram hugmynd um það sem hann kallar Trúboðssjóð Bjarma. Hugmyndin felur í sér að Bjarmi nái til íleira fólks um leið og fjárhagurinn styrk- ist. Einstaklingum og fýrirtækjum býðst að vera með í að mynda trúboðssjóðinn. Þeir sem vilja vera með greiða ákveðna upphæð á mánuði eða ári. Sjóðurinn stendur síðan straum af kostnaði við að senda eintök af Bjarma á sjúkrahús, bið- stofur, bókasöfn, skóla, elliheimili og víð- ar, eða ef vill til einstaklinga eða á staði sem viðkomandi óskar eftir. Með þessu móti berst boðskapurinn sem blaðið flyt- ur viðar og þeir sem leggja fram framlög í sóðinn verða þannig óbeinir þátttakend- ur í boðun trúarinnar. Áskrifendur og velunnarar Bjarma eru hvattir til að leggja sitt af mörkum og vera með í trúboðssjóðnum. Upphæðin sem hver og einn leggur í sjóðinn þarf ekki að vera há, t.d. nokkur hundruð á mánuði. En hvert framlag stuðlar að þvi að Bjarmi berist viðar og boðskap- urinn um Jesú Krist þar með. Auk þess styrkir þetta íjárhagsgrundvöll blaðsins og gerir það fýsilegri kost fyrir aug- lýsendur þar sem upplagið stækkar. Verum því með. Ég vil vera með í „Trúboðssjóði Bjarma“ Naln: Kennitala: Heimilislang: Upphæð kr.: Póstnr. og staður: | Mánaðarlega | | Ársljórðungslega | | Tvisvaráári | | Einusinniá | Vinsamlegast skuldfæriö Kortanúmer: [~ á greiðslukort mitt Gildistími: □□□□ « - ^ Vinsamlegast innheimtið með gíróseðli ári Krlstilegt tfmarlt Póstfang: Bjarmi - tímarit um trúmól Pósthólf 4060 124 Reykjavík

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.