Bjarmi - 01.11.2000, Blaðsíða 25
Hljómar kynna
Jaci Velasquez
Hrönn Svansdóttir
Ung er hún. Þó var hún mun yngri
þegar hæfileikar hennar komu fýrst
í Ijós. Það var áður er hún lærði að ganga
og tala er foreldrar hennar tóku fyrst eftir
því að hún smellti fingrunum í takt við þá
tónlist sem þau voru aó spila.
Jaci Velasquez er fædd 15. október
1979 í Houston Texas í Bandaríkjunum.
Hún var vön að koma fram með fjöl-
skyldu sinni. Eitt sinn er the Velasquez
Family Band kom fram í Houston
hringdi einhver í „Mike Atkins Mana-
gement", og tveimur árum seinna varð
Atkins umboðsmaður hennar og þá leið
ekki á löngu uns hún var komin á samn-
ing hjá Myrrh Records og nú er hún hjá
systurfýrirtækinu Word Records.
Þegarjaci var 16 ára kom út fyrsti
sólógeisladiskur hennar og bar hann
nafnið „Heavenly Place“. Það má segja
aó þessi diskur hafi lagt línuna fyrir það
sem koma skyldi. Hann varð strax mjög
vinsæll og aflaði henni bæði heimsviður-
kenningar og fyrstu og annarra Dove
verðlauna hennar er hún var valin „New
Artist of the Year“ árið 1997 og lagið „On
My Knees" var valið „Song of the Year“
árið 1998. Þessi diskur var 83 vikur á He-
artseekers lista hjá Billboard enda höfðu
fáir selt sinn fyrsta disk eins mikið og
hratt og raun varð með „Heavenly
Place“.
Það leió ekki aó löngu þar til markað-
urinn kallaói á meira og 1998 kom disk-
ur frá henni sem heitir einfaldlega Jaci
Velasquez". Þar var lagið „God So
Loved“ bæði á ensku og spænsku og
gafst það vel. Það var svo ári seinna aó
hún gerði disk einungis á spænku, „Leg-
ar A Ti“. Þennan disk gerði hún til að
heióra afa sinn og ömmu og til að
minna á mexíkanska/spænska arfleið
sína. Þetta opnaði einnig dyr að nýjum
áheyrendum sem tóku henni mjög vel. í
)
Jaci hefur lagt
áherslu á einn
ákveðinn boðskap
og hefur fjallað um
hann á tónleikum, í
viótölum og einnig í
söngnum. Hér er átt
við það sem kallað
er „True Love Waits“
og gengur út á það að sambönd koma
og fara en það borgar sig að bíða eftir
sannri ást og það sem skiptir mestu máli
er langtíma samband þitt vió Guð. Þetta
hefurjaci, sem er ung og einhleyp, til-
einkað sér.
Nú í september kom út í Bandaríkjun-
um nýjasti diskurjaci Velasquez, „Crys-
tal Clear“. Þar er góð tónlistarblanda,
poppið sem hún hefur haft en enn meiri
mið- og suður-amerísk áhrif en hingað til
og þar setur gítarleikur George Cocchinis
mjög sterkan svip á. Diskurinn inniheldur
ellefu lög ogjaci samdi tvö þeirra ásamt
Mark Heimerman. Annað þeirra er lagió
„Escuchame" (Hlustaðu á mig) og er það
blanda af Santana og R&B tónlist. Eitt
lag hefur nú þegar náð miklum vin
sældum og það er lagið „Imagine
Me Without You“.
Jaci hefur náó athygli víða
og ekki einungis innan kristna
geirans sérstaklega þar sem
hún hefur farið á markað í
Mið- og Suður-Ameríku.
Hún hefurstaðið frammi fyr-
ir því að þurfa að aðlaga sig
aö þessu en afstaóa hennar
er skýr: „Ég er tilbúin að
miðla málum með klæóa-
burð eða það sem ég segi,
þið vitið hver ég er. Fyrst og
fremst er ég kristin og þar á
eftir kemur allt annað.“
framhaldi fékk hún
verðlaunin „Promio
Lo Nuestro" (Besti
nýliðinn) árió 2000.
■1