Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.2000, Síða 28

Bjarmi - 01.11.2000, Síða 28
í fiskabúri ski/ur mikiö eftir s/g Þann 31. ágúst síðastliðinn lagói hópur tíu ungmenna úr Kristilegu skólahreyfingunni af stað til Eþíópíu. Leiðsögumaóur var Guðlaugur Gunnars- son (Gulli) en hann hefur verið kristni- boði í Eþíópíu í 13 ár. Þessi ferð tók 25 daga og ferðuðumst við vítt og breitt um Suðvestur-Eþíópíu. Þessi ferð var engin skyndiákvörðun heldur má segja að hugmyndin hafi vaknað árið 1997. Þá fór hópur til Kenýu undir leiðsögn Kjartans Jónssonar kristniboóa. Þau kölluðu sig KRUNG, eða Kristniboósferð unga fólksins. Hóp- urinn var gríðarlega ánægður með ferð- ina og talað var um að svona ferð þyrfti að fara aftur. Haustió 1999 tók Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) þá ákvöróun að standa aftur fyrir KRUNG-ferð en aó þessu sinni til Eþíópíu. Byrjað var að auglýsa ferðina í samvinnu við Kristilegu skólahreyfinguna og skráðu sig 15 manns á aldrinum 18-34 ára. Þá hófst undirbúningurinn á fullu. Við hittumst reglulega um veturinn og hlýdd- um á fræðsluerindi um kristniboðið og Eþíópíu. Við borðuðum einnig eþíópsk- an mat og skipulögðum fjáröflun sem við stóðum í jafnt og þétt yfir veturinn. Því mióur heltust nokkrir úr lestinni en aðrir bættust vió svo lokatala þátttak- enda í feróinni var eins og áður segir tíu manns auk fararstjóra. Loks rann hinn langþráði dagur upp, 31. ágúst. Eftirvæntingin var gríðarleg. Rétt fyrir klukkan 11 um kvöldið lögðum vió af stað á einkabílum og komum að Flugstöð Leifs Eiríkssonar og hittumst við þar. Þar var einnig staddur annar hópur, Rafiki-hópurinn, sem var að fara í sömu erindagjörðum og við en til Kenýu. Eftir innritun og langar kveójustundir fórum við inn fýrir hliðið og við fórum í loftið klukkan tvö um nóttina. Við áttum eftir að eyða löngum tíma í flugi. Fyrst flugum við til Kaupmanna- hafnar, síðan til Amsterdam og þaðan til Nairóbí í Kenýu. Þar sóttu Ragnar Gunn- arsson og Kristín Bjarnadóttir okkur á flugvöllinn og fóru með báða hópana á kristniboðsstöðina. Eftir smáblund fór- um við í Nairóbí-þjóðgarðinn þar sem við skoðuðum sebrahesta, gíraffa, nas- hyming, Ijón, gasellur og mörg fleiri villt dýr. Eftir gómsæta sebra-máltíð fórum við út ájomo Kenyatta-flugvöllinn í Nairóbí en þaðan flugum við til Addis Abeba í Eþíópíu. Við vorum komin til Addis að kvöldi 2. ágúst og fórum suður á bóginn tveimur dögum síðar. í Addis skiptum við pening- unum okkar yfir í birr sem er gjaldmiðill Eþíópíu. Einnig notuóum við tímann til að kynnast landinu aðeins. Við litum í búðir til að leggja drög að seinni tíma verslun og borðuðum eþíópskan mat á veitingahúsi. Þetta var góður endapunkt- 28

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.