Bjarmi - 01.11.2001, Qupperneq 23
jómar kynna
Um þessar mundir er aö koma út nýr
geisladiskur hér á íslandi. Söng-
kona, lagahöfundur og útgefandi er Iris
Guömundsdóttir, framleióandi er Jó-
hann Ásmundsson. Ég hitti írisi og ræddi
vió hana um hana sjálfa og nýja diskinn.
Hver er Iris?
— Ég er 33 ára gömul, tvígift, móðir
tveggja drengja úr fyrra hjónabandi, þeir
heita Aron Örn 14 ára og Gísli Hjálmar
12 ára. Seinni maðurinn minn heitir Sig-
urður Páll Ásmundsson. Ég er búsett í
Vestmannaeyjum þar sem ég ólst upp, er
dóttir Hrefnu Brynju Gísladóttur og
Guðmundar Inga Gunnlaugssonar sveit-
arstjóra á Hellu. Fósturfaðir minn er
1 989 og þá um haustið sótti ég um í jass-
deildina. Ég hóf jass-söngnám þetta
haust og var í skólanum í nær þrjú ár.
Af hverju Jóhann Ásmundsson og hvernig var
ykkar samstarf?
— Ég hef alltaf borið mikla virðingu fýrir
Jóhanni sem tónlistarmanni, kannski til
að byrja með vegna þess að hann var í
Messoforte og sú virðing varð dýpri þeg-
ar ég kynntist honum persónulega fýrir
nokkrum árum. Hann hefur stórt hjarta
sem slær í takt vió tilfinningaþrungna
Gospel-tónlist og ég vissi aó ég var örugg
um skilning og samhljóm við mínar hug-
myndir hjá Jóa. Hann hefur klætt lögin
útsetningum sem gera þennan disk ákaf-
lega fallegan. Samstarfið hefur gengió
Iris - Only a Breath Away
Snorri Óskarsson eða Snorri í Betel eins
og alþjóð þekkir hann. Við hjónin erum
þessa stundina að vinna í húsinu okkar,
en við festum kaup á gömlu einbýlishúsi
meó stórum grónum garði. Annars vinn
ég á skrifstofu vió bókhald og tek aó mér
að syngja, aðallega við kirkjulegar at-
hafnir svo sem brúðkaup og jarðarfarir.
Um þetta snýst líf mitt í Eyjum, um fjöl-
skylduna, húsið, vinnuna og aö þjóna í
söng.
mjög vel í alla staði og ég er einfaldlega
himinlifandi meó útkomuna!
Nú eru textar þinir einlcegir og opinskáir. Eru
þeir byggðir á eigin reynslu?
— Já, þeir eru allir byggóir á minni eigin
reynslu eóa tilfinningum. Það má segja
aó þeir séu viss hluti af sjálfskoðun minni
og uppbyggingu undanfarin ár, eða eins-
konar meðferð.
Hver er bakgrunnur þinn í tónlistinni?
— Ég hóf sólóferilinn 8 ára gömul, sann-
færð um köllun mína. Ég hlustaði mikió
á Gospel-söngkonur og nam stíla og
túlkun sjálf heima í stofu en hóf eiginlegt
nám við Söngskóla Reykjavíkur 17 ára
gömul hjá Önnu Júlíönu Sveinsdóttur og
ári seinna fór ég í einkatíma hjá Elísabetu
Erlingsdóttur. Ég frétti af FIH sumarið
Hvernig varð lagið og textinn Masterþlan til?
— Það varð til eins og öll hin, sent af
himni ofan mértil uppbyggingar og skiln-
ings á ráósályktun Guðs. Lagið hefst á
uppgjafanótt fýrir rúmum tveimur árum
síðan. Þá nótt gaf ég Guði aftur köllun
mína, drauma og þrár. Eftir margra ára
erfiðleika og vansigra í einkalífi mínu var
verkkvíói smám saman að ná yfirhend-
inni og ég þurfti að horfast í augu við
það að ég hékk oróió á stoltinu einu
saman hvað varöaði sönginn. Það eina
sem eftir var af sjálfsvirðingu minni var
bundið við hlutverk söngkonunnar.
Þetta ferli hafði tekið mörg ár og
þessa nótt gafst ég upp í baráttunni
milli stoltsins, hlýðninnar og trausts-
ins á Guð sem þekkir þær fyrirætlan-
ir sem hann hefur í hyggju, fyrirætl-
anirtil heilla en ekki til óhamingju.
Ég fór á hnén og þakkaði Guði fyr-
ir aö hafa leyft mér aó syngja öll
þessi ár og bað hann að fýrirgefa
mér sekt mína og uppgjöf.
„Drottinn gaf og Drottinn tók,
lofað sé nafn Drottins," þannig endaði
ég bænina. Ég söng ekki í heilt ár og all-
an þann tíma þurfti ég aó svara erfiðum
spurningum, t.d.: „Var ég virkilega að
gera hans vilja eóa var þetta bara minn
vilji?" „Meinti ég þetta í fullri hreinskilni
og í einlægni hjartans?“ „Var ég tilbúin
að gefa sönginn alveg upp á bátinn?“ og
svo frv. Ég fór í gegnum visst sorgarferli
en það fór líka í hönd viss uppbyggingar-
tími, ég fékk til baka gildin, ný viðhorf,
sjálfsvirðingin fór að byggjast upp, ég
settist aftur á skólabekk, tók til við að
gera upp mál sem hvíldu þungt á mér og
Guð fór að fjarlægja brestina einn af öðr-
um. I seinna versi lagsins endar setningin:
„Svo gaf hann mér það allt til baka.“
Þetta er þaó sem gerðist í stuttu máli
sagt, hann endurnýjaði köllunina og gaf
mér meira en það, hann gerði allt nýtt og
lagói mér ný Ijóð í munn!
Hvað með framtíðina, er eitthvað áœtlað?
— I dag skipulegg ég bara einn dag í einu
undir náð og handleiðslu Guðs, vitandi
að aðeins þannig get ég verið viss um
vonarríka framtíð, framtíð til heilla en
ekki til óhamingju.
Ég þakka frisi fýrir spjallió og óska
henni til hamingju meó frábæran geisla-
disk. Iris er tilbúin að verða við ósk um
kynningu og sölu á disknum. Hún er í
síma 659-2024.
Hrönn Svansdóttir.
23