Bjarmi - 01.11.2001, Side 28
Kanga-kvartettinn gefur út geisladisk
Viðtal: Henning E. Magnússon
Fyrr á árinu kom út geisladiskur sem er
einstakur í sinni röö. Þar er að finna
skemmtilega blöndu af sálmum annars
vegar og hins vegar af lögum sem rekja
upphaf sitt til Afríku. Það er ekki oft sem
slíkan disk rekur á fjörur. Þetta er fýrsti
diskur Kanga-kvartettsins sem státar af
fjórum ungum konum sem tengjast allar
Afríku á einhvern hátt. Þær eru systurnar
Helga Vilborg og Agla Marta Sigurjóns-
dætur og systurnar Heiórún og Ólöf
Inger Kjartansdætur. Helga og Agla eiga
mikið afskyldmennum sem hafa stundað
kristniboð í Kenýu og Eþíópíu og Helga
fór sjálf til Eþíópíu í eitt ár og hjálpaói til
við starfið þar. Heiðrún og Ólöf hafa
búið þarytra langdvölum meó foreldrum
sínum Kjartani Jónssyni ogValdísi Magn-
úsdóttur kristniboðum. Þær eru því aó
fást við tónlist sem þær hafa einstaka
þekkingu á og sérstök tengsl við.
Þær hófu samstarf árið 1996 eftir að
Helga Vilborg kom heim frá Eþíópíu.
Hún hóaði þeim saman til aó syngja
nokkur lög að utan á fundi hjá
Kristilegum skólasamtökum. Síðan
sungu þær aftur saman um jólin. Það
varð strax mikil eftirspurn eftir meira og
þess vegna fóru þær að æfa reglulega og
verkefnin hafa ekki látið á sér standa.
Afhverju völduð fið nafnið Kanga?
— Við vildum hafa eitthvað sem tengdi
okkur við Afríku þar sem við vorum að
syngja tónlist þaðan. Vió komum alltaf
fram í Kangaklæðum þegar við vorum að
syngja, þannig aó Kanga varð að nokkurs
konar einkennisklæðnaði.
Hvenœr kviknar hugmyndin að pví að gefa út
geisladisk?
— Mjög fljótlega. Fólk fór aó spyrja okk-
ur hvort vió hefðum gefió út disk og
hvort við ætluðum þá ekki að fara að
gera það.
— Þegar við vorum farnar að heyra þetta
aftur og aftur fórum vió að spá í þetta og
vorum nokkuð lengi aó velta þessu fyrir
okkur.
— Síðan fórum við að biója fyrir þessu.
Við áttum ekki krónu meó gati en vissum
að þaó kostaði mikið að gera geisladisk.
Við vissum í raun ekki hvernig við áttum
að snúa okkur. Þannig að
þetta átti sér nokkuð langan
aðdraganda.
Hversu langan? Hvað líður lang-
ur tími frá pvíað pið ákveðið að
gera diskinn og par til hann
kemur út?
— Ætli það hafi ekki verió
tvö til þrjú ár.
— Vió byrjuðum samt að
safna áður en við ákveð-
um að gefa út disk. Það
fór allt í einn sjóð sem
vió ákveðum síðan í að
nota í útgáfuna.
— Við vorum farnar að
syngja svo víða, okkur
vart.d. boóið að syngja
í Lionsklúbbum, og vió
fengum af og til borgun fyrir. Þannig að
við tókum þá ákvörðun að gefa allt til
kristniboðsins og þannig varð sjóðurinn
til.
Nú hafið pið sungið mjög mikið og víða. Þegar
pið hafið haft sem mest að gera hvað hafið pið
pá verið að syngja oft?
— A tímabili vorum við að syngja a.m.k.
einu sinni í viku yfir veturinn.
— Við vorum alltaf bókaóar langt fram í
tímann.
— Það merkilega við þetta allt saman var
að við vorum ekki að reyna að koma okkur
á framfæri. Við trúum því að það hafi ver-
ið Guð sem hafi gefió okkur þessi tækifæri.
Eitt afpvisem vekur athygli við geisladiskinn er
hversu langur og tilkomumikill listinn er af
peim hjóðfcerum sem Ásgeir Óskarsson leikur
á. Útsetningar á Afríkulögunum eru mjög
skemmtilegar. Hvernig kom pað til að hann fór
að vinna meðykkur?
— Þetta byrjaði allt með því að Páll Pálsson
kom til okkar að fyrra bragði, vió trúum því
að Guð hafi sent hann til okkar. Hann ber
hag kristniboðsins fyrir brjósti, pabbi hans
var kristniboði. Hann vildi gefa út plötu og
hann hélt utan um þetta og hafði sam-
band við hina, þar á meðal Ásgeir.
— Við vissum í raun ekkert um það hvern-
ig átti að gefa út disk en hann vissi allt
um það. Þannig að hann hélt utan um
þetta og við sungum bara.
Þannig að frumkvœði Þáls hafði úrslitaáhrif?
— Já, algjörlega. Hann kemur eiginlega
og spyr hvort við viljum gefa út disk. Við
spuróum hvort það væri hægt. Þannig að j
hann gat gert þaó mögulegt.
— Hann kom okkur í samband við Gunn-
ar Smára upptökumann sem er afar fær
og einnig við alla aðra, hljóðfæraleikara,
útsetjara og alla sem þurfti til. Þannig að
hann gjörir þetta mögulegt með því að
vera framleióandi plötunnar.
— En Ásgeir hafói líka mikinn áhuga, við
hittum hann einu sinni og lánuðum hon-