Bjarmi - 01.11.2001, Page 30
ENGLAND
Var einhver aó tala um langa
predikun?
Olíklegt er aó söfnuóurinn í enska bænum Whalley muni
kvarta yfir löngum predikunum í framtíðinni. Fyrirskömmu
predikaði presturinn þar, Chris Sterry, í 28 klukkustundir
og 45 mínútur. Með því setti hann heimsmet og bætti fyrra
met um eina klukkustund og 15 mínútur.
Sterry hóf predikun sína klukkar hálf sjö á föstudags-
morgni og þegar hann hafói sett metið á laugardeginum
var hann að tala
út frá textanum
um Daníel í Ijóna-
gryfjunni. Til að fá
metið vióurkennt
mátti presturinn
hvorki endurtaka
sig né fara með
bull. Þá mátti
hann aðeins gera tíu sekúndna hlé á máli sínu. Á átta tíma
fresti var honum þó heimilt að taka sér fimmtán mínútna
hvíld.
SVÍÞJÓÐ
Ein milljón hefur eignast nýju
Biblíuna
1,1 milljón Svía hefur keypt sér eða eignast nýju Biblíuna
sem kom út árið 2000 og 2,2 milljónir komast oft í snert-
ingu vió Biblíuna. Þetta kemur fram í könnun sem Sænska
Biblíufélagið hefur nýlega látið gera í tengslum við mark-
aðssetningu nýju biblíuþýðingarinnar. 27% Svía lesa oft
eða nokkuð oft í Biblíunn! en 73% sjaldan eða aldrei. Fleira
ungt fólk (50%) en eldra fólk (42%) reiknar með því að
Biblian verði mikilvæg eða mjög mikilvæg í skólastarfi
framíðarinnar. 10% telja aó hún verði algjörlega áhrifalaus.
ÍSRAEL
Heimsóknum á vefsíóu fjölg-
ar verulega
Heimsóknunm á vefsíóu messíansks safnaðar í Israel fjölg-
aði um 400% á þremur vikum. Þetta átti sér stað eftir aó
meðlimir í söfnuðinum tóku upp á því að setja mióa á aug-
lýsingatöflur í miðborgjerúsalem með vefslóóinni.
Vefsíðan tilheyrir söfnuði kristinna gyðinga sem kallast
Kehilat Yerushalahaim Beit Geulah. Hún inniheldur biblíu-
fræðslu og námsefni, fræöslu um umfjöllun Gamla testa-
mentisins um Jesú Krist, ýmsar afbókum Biblíunnar, m.a.
Jóhannesarguðspjall, og ýmislegt annað fræósluefni, m.a.
um helförina gegn Gyðingum.
INDLAND
5.900 nýir söfnuóir
á Indlandi
Árið 1989 hófst starfsemi í Punjab á Norður-lndlandi und-
ir heitinu Operation Agape. Þaó fór ekki mikið fýrir starfinu
í byrjun en það hefur nú leitt af sér öfluga, evangelíska
hreyfingu. Stofnað var til Operation Agape af litlum hópi
indverskra lækna sem voru kristnir. Nú er starfið byggt upp
sem net 392 kristinna einstaklinga sem eru í forystu í átta
héruóum á Norður-lndlandi. Á síóustu tólf árum hafa orð-
ið til 5.900 nýir söfnuðir sem ávöxtur af starfi Operation
Agape. 5.208 þeirra eru litlir hússöfnuóir sem hittast í
heimahúsum, segir í nýlegri skýrslu frá samtökunum.
FINNLAND
Ný útgáfa af Fræóunum minni
Evangelísk-lútherska kirkjan í Finnlandi hefur nú gefió út
Fræði Lúthers hin minni í nýrri útgáfu. Þar er að finna nýj-
ar útskýringar við hlið skýringa Lúthers. Markmiðið er að
útskýra á einfaldan og skýran hátt hvað kristin trú snýst
um. „Tilgangurinn er að hjálpa okkur aó lifa í trú á Guð og
í kærleika hvert til annars,“ segir í inngangi nýju finnsku út-
gáfunnar. Hana er að finna á sænsku á vefslóóinni
www.evl.fi/svenska. Þess má geta að Fræði Lúters hin
minni komu fýrst út í Þýskalandi árið 1529. Þau voru fýrst
gefin út í íslenskri þýðingu árið 1562.
KÍNA
Leiótogar hússafnaóa gagn-
rýna stjórnvöld
Leiðtogar í hússöfnuðum í neðanjarðarkirkjunni í Kína
hafasentfrá sér yfirlýsingu þarsem þeir gagnrýna fjögur at-
riói í stefnu stjórnvalda í trúmálum. Þetta kom nýlega fram
í tímaritinu Ápne dorer.
í fýrsta lagi halda þeir því fram að stefna stjórnvalda sé
of pólitísk. I Kína gildir trúfrelsi svo lengi sem kirkjan sem
einstaklingurinn tilheyrir uppfýllir skilyrði kommúnista-
flokksins. I öðru lagi benda þeir á að ekki sé mark takandi
á yfirlýsingum stjórnvalda um trúfrelsi í landinu og benda á
máli sínu til stuðnings aó frá árinu 1950 hafi kristnum
mönnum í Kína fjölgaó fimmtánfalt en á sama tíma hafi
viðurkenndum kirkjum fækkað um 40%.
í þriðja lagi tala þeir um að stefna stjórnvalda sé í mót-
sögn við sjálfa sig. Þau ofsæki og ásaki hússöfnuðina fýrir
að vera ólöglegir sértrúarsöfnuóir vegna þess að þeir hafi
ekki vióurkennda kennimenn og trúfræðsluefni. Leiðtogar
hússafnaóanna segja hins vegar að þaó sé vegna stefnu
stjórnvalda að þeir hafi ekki aðgang að Biblíum og fræðslu-
efni og skorti kennimenn og húsnæði fýrir starfsemina.
Loks benda þeir á ranglætið sem felst í því að stjórnvöld
geti hvar sem er rekið áróður fýrir guðleysi en kristnum
mönnum sé einungis leyft að boða fagnaóarerindið í viður-
kenndum kirkjum.
viða'...,
—i verold