Heima er bezt - 01.08.1951, Síða 10

Heima er bezt - 01.08.1951, Síða 10
170 Heima er bezt Nr. 6 Um aðbúnað þeirra og lifnað er þetta sagt:. .. „Fangarnir í tugt- húsinu voru ekki kvaldir með setu í einhýsi, eða yfir höfuð með varðhaldi. Þeir voru meira úti en inni; þeim var komið fyr- ir til vinnu hjá góðum bændum í nágrenninu; þeir voru hásetar á bátum þeirra o. s. frv., og jafn- vel hjá sjálfum stiftamtmann- inum unnu fangarnir. Þannig var Anres Pálsson lengi hjá stiftamtmanni Thodal á Bessa- stöðum. Þeir unnu bæði að kirkju- og skólabyggingu, og ef þeir höfðu enga sérstaka vinnu fyrir aðra, unnu þeir fyrir tugt- húsið við garðahleðslu og grjót- upptekt. Steingarðurinn mikli, sem lá niður með öllu Banka- stræti, er vafalaust byggður af föngunum. Þetta var beint í samræmi við stofnskrá tugthúss- ins. Innivinna var líka fyrirskip- uð, einkum ullarvinna og tóskap- ur. Fangarnir höfðu því allmik- ið frelsi í húsinu; þó máttu þeir ekki fara út úr því leyfislaust. En því var litlu skeytt; þeir gengu um eins og frjálsir menn oftast, stundum tók þó yfir- stjórnin rögg á sig og brýndi fyr- ir fangaverði að hafa góðar gæt- ur á, að fangarnir ekki færu út í leyfisleysi. Þetta athafnafrelsi fanganna hafði ýmsar afleiðing- ar í för með sér. Stundum áttu fangarnir barn saman, og mjög oft kom það fyrir, að þeir löbb- uðu sig burtu, er þeir voru úti, eða beint brutust út í ýmsum til- gangi, og kom það þá í ljós, að hvorki voru hurðir né járnsteng- ur svo sterkar, að þær gætu haldið þeim. Þannig var einn fanganna einu sinni rétt eftir nýár að taka gröf handa öðrum fanga, undir umsjón Arnesar, og hvarf þá alveg og var lengi laus, áður en hann náðist aftur. Oft kom það fyrir, að fangarnir brutust út á næturþeli og fóru í krambúð, brutust þar inn og stálu.“ .......Þeir fangar, sem struku voru látnir hafa sérstak- an búning eftir það; það voru hvítar ermar á treyjunni. Og einn fanganna, Hannes Gríms- son að nafni, er þótti sérlega viðsjárverður, fékk þar að auki festa bjöllu á höfuðið (hvernig er ekki sagt), svo að hann væri því þekkjanlegri, ef hann skyldi strjúka".... Ekki er til efs, að merkastur og frægastur allra fanga í tugthúsi þessu var Arnes Pálsson, sem áður er minnzt á, en hann var sá sami sem fylgdi þeim Eyvindi og Höllu upp í ó- byggðirnar. í bréfabók stiftamt- mannsins segir, að hann hafi verið „den störste af alle For- brydere i det isl. Tugthus“. Hann var margfaldur þjófur, en mun þó hafa fengið tífallt þyngri dóma en tilefni var til, því að ýmislegt er vitað honum til máls- bóta. Hann var dæmdur til að „kagstrýkjast, brennimerkjast á enni og erfiða í því íslenzka tugt- húsi í járnum sína lífstíð“. En sem betur fer hefur mannaum- ingjanum verið þyrmt, því svo mikið er víst, að hann endaði vist sína þar sem dyravörður tugthússins, sökum góðrar fram- komu og án þess hann þyrfti að vinna nokkuð annað, — jafnvel gegn þóknun. Eftir tuttugu og fimm ára vist í þessu hvíta húsi sótti Arnes um lausn. Árið eftir veitti konungur honum lausnina, og lifði þessi nafnkunni fangi seinustu ár sín sem niðursetn- ingur úti í Engey, unz hann dó þar rúmlega hálfníræður árið 1805. „... Hann átti 3 börn laun- getin, meðan hann var fangi...“ En ekki gekk alltaf jafnt slysa- laust til með frumbyggja þessar- ar virðulegu byggingar og til- fellið var með Arnes. Fyrir kom, að föngum var misþyrmt í „Múrnum“, eins og húsið var þá kallað (sbr. „Steininn", en svo var fangelsið við Skólavörðustíg nefnt, af því það var úr hlöðnum steini — ekki múrað). Og með bréfi dagsettu 4. nóv. 1813 skýrði Castenskjold stiftamtmaður tugthússtjórninni frá því, að hann treysti sér ekki til að und- irhalda fangana lengur og hefði sleppt þeim öllum lausum þann dag, 18 að tölu. Voru þeir þá sendir hver á sína sveit, og lauk þar með fyrsta þættinum í sögu þessarar merkilegu byggingar. Með konungsbréfi 3. maí 1816 var tugthúsið þó fyrst lagt niður formlega, — „indtil videre“, en varð samt til langframa; og verður varla farið að skjóta mönnum þar inn héðan af, þótt þeir komust í tusk við lögin. Svo var gefið út kancellibréf 22. apríl 1819 og ákveðið að gera róttæk- ar breytingar á húsinu og dubba það upp í bústað fyrir stiftamt- manninn. Bjuggu allir stiftamt- menn og landshöfðingj ar í tugt- húsi þessu allt fram til 1904, er íslendingar fengu meðferð inn- anlandsmála í eigin hendur, en þá var húsinu breytt í skrifstof- ur fyrir stjórnarráðið. Oft hafa farið fram á því breytingar meiri og minni síðan, og kemst Klem- ens Jónsson svo að orði í Reykja- víkursögu sinni (1929), að það muni „vafalaust standa lengi enn, þótt það sé allsendis óhæfi- legt til þess, og oss eiginlega til mikillar minnkunnar að hafa þar aðalskrifstofur landsins“. .. Um minnkunina má náttúrlega deila, og langt er síðan húsið sprengdi utan af sér þær stofn- anir, sem því var síðast ætlað að hýsa. Því það er nú einu sinni svona, að enda þótt hvíta húsið við lækinn væri á barndómsár- um sínum lítið eftirsótt vistar- vera, og sízt til upphefðar fyrir nokkurn mann að vera boðin þar gisting, hefur svo farið, eftir því sem árin hafa færzt yfir það, að menn hafa fremur óskað eftir að fá þar sess um lengri eða skemmri tíma en vera reknir þaðan út. Það hafa því fá hús í bænum staðið sig jafnágætlega í umróti tímans og átt annarri eins virðingu að fagna á elliár- unum og þessi rislága bygging. Við ættum að hugsa okkur um tvisvar, áður en við látum rífa hana, hvers svo sem framtíðar- skipulag bæjarins kann að krcfj- ast. Elías Mar. Gerist áskrifendur að Heima er bezt Eignist ritið frá byrjun.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.