Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.08.1951, Blaðsíða 13
Nr. 6 Heima er bezt 173 snotru húsi, er stæði eitt sér og umhverfis það væri laglegur blóma- og trjágarður, sem hún væri, því miður, allt of löt að sinna um. Fannst henni undur fallegt þar, að hún sagði, og kvaðst una lífinu hið bezta. Við skóla þann, er maður hennar, A. Boucher, kennir við, eru 600 nemendur. Þetta er aðeins eitt af mörgu er við ræddum saman sitjandi hlið við hlið eins og aldavinir, í hásetaklefa Pólstjörnunnar. Mas og hlátrar samferðafóiks- ins glumdi allt í kringum okk- ur, en við gáfum því engan gaum. Þröngt var á bekknum, en við það sátum við aðeins þéttar saman og fannst okkur það sízt til óþæginda. Maður hennar, er hafði verið ofan þilja, kom nú niður. Ræddumst við öll þrjú við um hríð. — Skömmu síðar skauzt ég upp á þilfar. Hafði fengið mig full- mettan af líkamlegum og and- legum hita í káetunni. Nálguðumst við nú óðum Æðey, stærstu eyju á ísafjarð- ardjúpi og mestu varpey Vest- fjarða. Gat að líta bát á floti inn undan eynni, og stefndi Pól- stjarnan beint á bátinn. Voru þar komnir hinir góðkunnu Æðeyjarbræður, Ásgeir og Hall- dór Guðmundssynir. Bættu þeir þremur í hópinn hjá okkur á Stjörnunni. Voru það hjón með barn sitt, telpu á að gizka 6 ára, er dvaldið höfðu í Æðey í sum- arleyfi sínu, og voru nú á leið heim aftur til Reykjavikur. Fögur var Æðey til að sjá að vanda með sína skrúðgrænu, á- völu varphóla, eins og fagurt men, smarögðum sett, í dökkri basaltumgerð á bláu brjósti Ránar drottningar. En minnti þó um leið, sökum frjósemi sinnar og hlunninda, á hring- inn Draupni, er Óðinn lagði forðum á eldinn við bálför Baldurs hins góða, og hafði þá náttúru, að hina níundu hverja nótt drupu af honum 8 gull- hringar jafnhöfgir. Næsti viðkomustaður var hið landskunna Reykjanes með sína sundlaug, jarðhita,. gróðurhús, héraðsskóla, sinn Þórodd skáld frá Sandi og Aðalsteina hvorn Reykhólar, gesta- tjtílcl i hlaðvarp- anum. fram af öðrum. Var þar rennt upp að traustri trébryggju. Þar varð lítil viðstaða. Gengu þar samt nokkrir í land. Þar steig einnig Baldur Johnsen, héraðs- læknir á ísafirði, um borð í trillu frá Reykjarfirði, er beið hans þar reiðubúin, eins og hinn líknandi kærleikur, til að flytja sjúkum hinn læknandi máttugleika. Læknirinn kom lítið við sögu á leiðinni inn Djúpið. Lá hann í koju mestan hluta leiðarinnar. Sennilega _ sofið. Lækna skortir manna mest magnan svefns og næðis. Á stað aftur að fáum mínút- um liðnum. Dvölin oftast skömm á hverjum viðkomustað hjá Djúpbátnum. Stjarnan klýfur að nýju hinn bláa báruflöt áleiðis til Arn- gerðareyrar. Klukkan 12.30 er lagst í lægið á Arngerðareyri og farþegar fluttir í land á árabát. Bryggja er þar engin enn sem komið er. Er slíkt þó alveg óvið- unandi, bæði sökum þess að þessi staður er, sem stendur, endastöð bílferðanna yfir Þorskaf j arðarheiði, en einnig með tilliti til þess, að síðan Inn- Djúpsmenn fóru að fá hinar stóru og þungu jarððyrkjuvélar, liggur oft við slysum við upp- skipun á þeim, ekki hvað sizt ef illt er í sjó, eins og gefur að skilja. Annars ber nauðsyn til, hvað áhrærir áætlunarferðir bíla yfir áður nefnda heiði, að framlengja veginn til Melgras- eyrar, ef ekki út til Bergsels ut- an Kaldalóns, þar sem lending- arstaður er talinn mjög hag- stæður. Þangað gangi svo hraðskreið ferja yfir Djúpið án viðkomustaða, nema endastöðv- anna — ísf j arðar—Bergsels. Ég var ekki fyrr stiginn á land á Arngerðareyri, en til mín snarazt frænka mín, Jóhanna Þórðardóttir, frá Laugabóli, sem búsett er á Arngerðareyri. Gáf- uð og glettin eins og systkini hennar og frændfólk flest. Kall- ar hún sig piparjunku kinn- roðalaust að öðru leyti en því, að gægzt geta rauðir lokkar niður með vöngunum. Bauð hún mér þegar til miðdegisverðar. Mun það vera siður hennar í hvert sinn og Dj úpbátinn ber að landi að renna árvökrum augum yfir hópinn, er í land stígur og at- huga, hvort ekki sé þar einhver frænka eða frændi á ferð, eða einhver kunnugur, sem væri svo skemmtilegt að geta gert eitt- hvað gott, því frændrækin er hún og gestrisin svo af ber. Býr hún ein út af fyrir sig í óvist- legu húsi að ytri sýn, gömlu vörugeymslu- og sláturhúsi og eigi nema í suðurenda þess. Norðurendinn óinnréttaður, kaldur geimur. Stendur það á klöppum fast fram við sjó og fyrir kemur það, ósjaldan, að hinar freyðandi, ísköldu vetrar- öldur slái votum örmum um húsakynni hennar á dimmum, stormæstum skammdegisnótt- um. Þannig býr þjóð vor enn að sumum sínum gestrisnustu og beztu konum. Meðan ég gæddi mér á hinum gómsætu réttum hennar, voru stöðugt að tínast fleiri og fleiri að hennar nægtaríka borði. Að máltíð lokinni færði ég minni alúðlegu frænku mínar

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.