Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Page 14

Heima er bezt - 01.12.1953, Page 14
366 Heima er bezt Nr. 12 reyna?“ spurði húsbóndinn og var orðinn dálítið óþolinmóður. „Ekkert, sem mér getur dottið í hug,“ svaraði ég. „Ég skal segja þér, hvernig á stendur," sagði hann þá. „Móðir þessa tryppis týndist í haust, sem leið, og folaldið með henni. Þau fundust ekki allan vetur- inn. En núna fyrir fáum dögum kemur hryssan rakleiðis heim, og folaldið, sem nú var orðið hálf- vaxið tryppi, staulast með henni dauðveikt. Ég skal sýna þér, hvernig tryppið er á sig komið.“ Hann lyfti upp taglinu á tryppinu, og sást þá, að enda- þarmurinn var útbyrðis. Þetta stafaði að líkindum af langvar- andi þrýstingi sökum hægðaleys- is. En það, sem út úr stóð, hafði frosið og rotnað síðan, þegar það þiðnaði. Tryppið virtist vera svo veikt, að það gæti ekki lifað lengi. „Blessaður skjóttu skepnuna undireins," sagði ég. Þá stóð á fætur tengdabróðir bóndans, sem setið hafði þegj- andi og hlustað á okkur. Hann hét Ingimundur Eiríksson og var bróðir Ólafs Eiríkssonar, söðlasmiðs í Reykjavík. Var hann djúpvitur maður og fékkst talsvert við dýralækningar. „Ég er þér ekki samdóma,“ sagði hann og beindi orðum sínum að mér. Þessi hryssa er merkileg og einkennileg skepna. Hún er af úrvalsættum langt aftur og tryppið eins í báðar ættir. Ef það lifir verður það mikils virði. En svo er annað: Þessar skepnur, sem lifa og al- ast upp með okkur mannfólkinu, eins og t. d. hestar og hundar, eru á sína vísu alveg eins skyn- samar og við og alveg eins til- finningaríkar. Þessi hryssa kom ekki heim í allan vetur, heldur hafðist við með folaldið sitt úti í skógum og leið þar vel. Svo veiktist barnið hennar; hún gerir sér grein fyrir því, að eitt- hvað þurfi að reyna. Hún hugs- ar til mannanna, fer heim til þeirra og trystir því, að þeir séu ekki eins ráðalausir og hún sjálf. Hún kemur blátt áfram til þess að leita veiku barni sinu lækninga.“ Svo horfði hann beint framan i mig og hélt á- fram: „Hvað mundir þú gera, ef þetta væri mannsbarn og móðir þess?“ Ég þagði um stund, vissi ekki, hvað ég átti að segja. „Ef mögu- legt væri,“ sagði ég loksins, „mundi ég reyna að koma barn- inu á spítala, þar mætti að minnsta kosti reyna eitthvað.“ „Já,“ sagði Ingimundur, „en nú væri það ómögulegt eins og hér stendur á. Og hvað þá? Mundir þú láta barnið deyja án þess að reyna nokkuð?“ „Ég mundi ef til vill reyna að toga endaþarminn lengra út, skera eða klippa burt það, sem dautt væri og sjúkt og sauma síðan saman eins vel og ég gæti.“ „En hvers vegna ekki að reyna þetta við tryppið?“ spurði hann. Og hann hélt röksemdum sín- um áfram, þangað til ég svæfði tryppið og gerði þetta. Ingi- mundur hjálpaði til og gerði allt, sem ég sagði honum, æðrulaust og rólega. Hann hefði sannar- lega átt að vera læknir. Auðvitað datt mér ekki í hug, að þetta kæmi að nokkrum not- um, bjóst ekki við öðru en að „sjúkingurinn“ yrði látinn næsta morgun. — En ég man það alltaf, hve viðkvæmt og vonríkt hryss- an — móðir tryppisins — hneggj - aði, þegar ég kom upp í básinn hennar eftir viðureignina við tryppið. Hver veit nema Ingi- mundur hafi haft rétt fyrir sér, þegar hann gat þess til, að móð- irin hefði komið með barnið sitt í þeirri von, að því yrði bjargað. Tryppið hresstist og lifði. Þeg- ar ég vissi seinast til, var það fullorðinn og hraustur hestur. III. Kaþólski presturinn. Það var á dimmu haust- kveldi um klukkan ellefu, að ég fékk boð um að koma til fólks, sem átti heima í tuttugu mílna fjarlægð. Það fylgdi boðunum, að kona væri að ala barn og hefði þegar verið veik lengi; var ég því beðinn að hraða mér eins og mögulegt væri. Ég bjó mig í snatri og lagði af stað í bifreið. Allt gekk vel, þangað til ég var kominn tólf mílur að heiman. Þá lágu götu- slóðir í allar áttir, en ekkert sást, sem kallazt gæti vegur. Ég vissi ekki> hver villigatan væri sú, sem velja skyldi. Byggðin, sem ég var að fara yfir, heitir Aberville og er — eða var — heimkynni frakkneskra kynblendinga. Ég sá ljós skína gegnum myrkrið. Það sýndist vera upp á hæð og ekki langt í burtu. Ég afréð að fara þangað og spyrja til vegar. En þangað var lengra en sýnzt hafði. Ég þorði ekki annað en að aka hægt og gæti- lega. Loksins kom ég að húsinu, gekk þangað heim og drap á dyr. Dyrnar voru tafarlaust opnaðar og út kom tígulegur miðaldra maður, sérlega vingjarnlegur. Ég bað hann að segja mér til vegar, eftir að ég hafði sagt, hver ég var, hvert ég ætlaði og í hvaða erindum. „Blessaður vertu,“ sagði mað- urinn, „þangað er ekki nokkr- um lifandi manni mögulegt að rata nema hann sé nauðakunn- ugur. Komdu inn í ljósið og hlýj- una, á meðan ég klæði mig, ég skal koma með þér, ég þekki þetta fólk.“ Maðurinn hafði komið út í dyrnar klæðlaus nema í nátt- kjólnum, og var honum nú auð- sjáanlega farið að kólna. Hann vafði náttkjólnum þéttar að sér, tók í hurðarhölduna, eins og til þess að hraða mér inn, lét aftur og leiddi mig inn í bjart og hlýtt herbergi. „Ég skal flýta mér,“ sagði hann. „Þú getur litið í blað eða skruddu, á meðan ég klæði mig.“ Svo fór hann inn í annað her- bergi. Ég fór að líta í kringum mig. Ég sá, að þetta var lítið bjálka- hús, og leit út fyrir, að maður- inn væri einbúi. Samt var þessi snotri og snyrtilegi bjálkakofi einkar hreinn og vel um geng- inn. Við einn vegginn var bóka- skápur stór og mikill, fullur af alls konar bókum, enskum og frönskum, og fjöldinn allur af blöðum og tímaritum. Ég hafði ekki langan tíma til athugunar, því að maðurinn var undur fljótur að klæða sig, kom inn og sagði: „Þá er bezt að leggja af stað. Vegurinn er seinfarinn.“ Síðan var haldið af stað. Þótt ég stæði aðeins stutta

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.