Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 15

Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 15
Heima er bezt 367 Nr. 12 stund við í þessu húsi, skoðaði ég bækurnar og blöðin nógu vel til þess að sjá, að þær voru eign manns, sem var vel að sér og skólagenginn. Þar var fjöldinn allur af guðfræði- og lækninga- bókum. Þegar við vorum tilbúnir, réð hann ferðinni, — bæði áttinni og hraðanum. Vegurinn var af- skaplegur, en hann þekkti hvern krók og hverja keldu, hvern stein og hvern trjástofn og sagði svo vel til vegar, að hvergi urðu tafir. Á leiðinni sagði hann mér, hver hann var: Þetta hérað var byggt frakkneskum kynblend- ingum, eins og áður er sagt, og hann var kaþólski presturinn, sem „þjónaði“ þeim, eins og það er kallað. Þar var alltaf skipt um presta öðru hvoru. Þessi prestur hét De Rocher (Faðir De Rocher) og hafði þjónað þarna nokkuð lengi. Loksins sáum við ljós fram- undan: „Þarna er nú áfanga- staðurinn," sagði presturinn. Við ókum heim að dyrunum, og þær voru opnar. Lítil stúlka stóð þar og hélt hurðinni opinni. „Guð blessi þig, faðir,“ sagði hún. „Komst þú með lækninn? Mamma er ósköp veik.“ Við gengum inn. Húsakynnin voru þriggja herbergja bjálka- kofi, gamall og hrörlegur. Leir- inn, sem klesst hafði verið á milli bjálkanna, var víða sprunginn og stykki fallið úr, en pappír troðið í rifurnar og götin. Eig- inlega voru herbergin ekki nema tvö, en partur af öðru þeirra var tjaldaður af og notaður sem svefnherbergi handa hjónunum. Ég fór rakleiðis inn til kon- unnar, sem lá þar með háhljóð- um. Eftir að ég hafði skoðað hana, sá ég, að ekki var um ann- að að gera en að svæfa hana og taka barnið með verkfærum. Ég spurði prestinn, hvort ekki væri einhver á heimilinu, sem verið gæti til aðstoðar. „Nei,“ sagði prestur, „hér er enginn nema þessi fimm börn, sem þú sérð, og það elzta er tíu ára. Maðurinn er langt í burtu í skógarhöggi. En ef ég get hjálpað að einhverju leyti, þá er það velkomið." Þegar ég hafði undirbúið verkfærin og konuna, spurði ég prestinn, hvort hann gæti hald- ið fyrir mig svæfingargrímunni, þegar ég væri búinn að svæfa konuna. Hann kvaðst skyldu reyna það. En þegar til kom, fann ég bráðlega, að ég var hér ekki einn um hituna: presturinn aðstoðaði mig í öllu tilsagnar- laust, alveg eins og bezti hús- læknir í sjúkrahúsi. Allt gekk vel, við hagræddum barninu og konunni og bjuggum um þau bæði eftir beztu getu og kring- umstæðum. Sig. Júl. Jóhannesson. Presturinn lagði blessun sína yfir heimilið, og svo kvöddum við. Á leiðinni töluðum við um alla heima og geima: Fyrst og fremst um þetta fátæklega heimili, og um það, hversu mörg væru þau heimili, sem við svipuð lífskjör ættu að búa í þessu góða landi, þar sem náttúran hafði þó lagt allt upp í hendurnar á mönnun- um, sem þeir þurftu til þess að geta látið sér líða vel. Þegar við komum að prests- setrinu, ætlaði ég að kveðja hann, en ekki var nærri því kom- andi, að við skildum, án þess að hann hitaði fyrst á katlinum og gæfi mér kaffi með alls konar kökum og brauði, sem hann hafði búið til sjálfur. Þegar góð- gerðunum var lokið, þakkaði ég honum sem bezt fyrir alla vin- semdina og hjálpina. Daginn eftir fór ég aftur til þess að vita, hvernig öllu liði. Ég nam staðar við dyrnar og klapp- aði á hurðina. Sama litla stúlk- an kom til dyran'na, brosandi út undir eyru og bauð mér inn. Þegar ég kom inn, brá mér held- ur en ekki í brún. Stór og gervi- legur maður í strigabuxum og með strigasvuntu lá á hnjánum á gólfinu með skólpfötu hjá sér og var að þvo gólfið. Maðurinn leit upp, þegar ég kom inn, og ég þekkti andlitið, Það var enginn annar en kaþólski presturinn. Hann stóð upp brosandi, tók þétt í hönd mína og sagði: „Nú líður betur hérna en í gær- kveldi.“ Öllu leið vel. Ég kynntist þessum presti talsvert eftir þetta og dáðist að honum fyrir margra hluta sak- ir: í fyrsta lagi var hann höfð- inglegur og tilkomumikill maður, í öðru lagi var hann svo lesinn og vel menntaður, að hann gat talað með skilningi um hvað sem vera vildi, og í þriðja lagi var hann fús og fljótur til hjálpar, hvar sem hann náði til og hjálp- ar var þörf. Hafi ég nokkru sinni kynnzt sannkristnum manni, þá var það þessi kaþólski prestur. Ég sá það löngu seinna, að hann hafði dáið í bifreiðar- slysi, þar sem hann var á ferð til þess að hjálpa manni úr ein- hverjum vandræðum. IV. Hundurinn. Einu sinni seint um kvöld var ég kallaður til þess að vitja barns, sem sendimaður sagði, að væri dauðveikt. Þetta var sext- án mílur í burtu. Vegir voru með öllu ófærir, en það fylgdi boðunum, að ég þyrfti að koma tafarlaust. Ég vakti mann, sem vann að því að líta eftir járnbrautinni og bað hann að flytja mig þessar sextán mílur og heim aftur. Hann hafði svolítin hjólavagn, sem gekk fyrir gasolíu, jiggers eru þeir kallaðir, þessir litlu vagnar; þeim var rennt eftir járnbrautarteinunum. Þeir voru sérlega léttir, og maðurinn fór afarhratt. Þegar við vorum komnir miðja vegu og fórum framhjá smá-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.