Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 20

Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 20
372 Heima er bezt Nr. 12 Enginn mundi hafa fórnað jafnmiklu af tíma og kröftum fyrir jörð sína sem Þórður hefur gert, ef hann bæri eigi til henn- ar órjúfandi tryggð og ræktar- semi. En þessi órofa tryggð á rætur sínar í fortíð og sögu. Ég hef aldrei kynnzt bónda, sem var svo gagnkunnugur og sann- fróður um sögu jarðar sinnar eins og Þórður á Tannastöðum. Hann er fæddur þar og hefur alið þar allan sinn aldur. Hann þekkir sögu hvers steins og man upp á hár, hvenær hann hrap- aði ofan úr fjalli. Flestir eru þeir orðnir gráir og mosavaxnir, margir til komnir fyrir hans tíð, en þeir, sem hann hefur eigi lagt að velli, eru vinir hans og kunn- ingjar. Og Þórður geymir í trúu minni þær frásagnir, er hann heyrði ungur, og þær tengja hann við líf. og reynslu forfeðra hans og eldri kynslóða. í ör- nefnalýsingu Tannastaða, sem hann hefur skrifað, segir hann svo um klett einn, sem Hákon nefnist: „Hákon er lítinn spöl til út- suðurs frá túninu. Þórður Er- lendsson, sem þá bjó hér, sá, þegar Hákon hrapaði niður. Valt hann fyrst um möndul sinn, en svo náði hann á sig endakasti og varð þá ærið stórstígur. Hákon er sá eini steinn hér, sem ég fékk aldrei klifið upp.“ Hér er brugðið upp skýrri mynd af löngu liðnum náttúru- atburði. Jafnvel steinninn verð- ur lífi gæddur. En heil saga felst á bak við síðustu setninguna, saga um leik og skemmtun löngu liðinna æskuára. Fróðleikur Þórðar er þó síður en svo bundinn við eina jörð. Hann er með afbrigðum ætt- fróður og mun hafa ritað nokk- uð í þeirri grein á fyrri árum sín- um. Hann er og svo fróður um sögu byggðarlags síns, að furðu gegnir. Byrjaði hann ungur að hlusta eftir sögum eldri kyn- slóða og spyrja sér til um það, sem hann heyrði, en minnið var stáltrútt. Man Þórður gerla fólk, sem fætt var í kringum aldamót- in 1800, og ýmsan fróðleik, er það sagði honum ungum. Hann hefur skráð margar frásagnir af gömlum atburðum og merkum mönnum í sveit sinni, og eru þeir þættir hans prentaðir á víð og dreif í íslenzkum sagnaþáttum og þjóðsögum Guðna Jónssonar. Þess skal getið, að sýslunefnd Árnessýslu veitti honum fyrir nokkrum árum dálitla fjárupp- hæð í viðurkenningarskyni fyrir ritstörf hans. Þórður á Tannastöðum er tví- kvæntur. Fyrri kona hans var Hómfríður Magnúsdóttir frá Litlalandi í Ölfusi, og missti hann hana eftir stutta sambúð. Seinni kona hans er Jensína Ingveldur Snorradóttir frá Þóru- stöðum í Ölfusi, er senn hefur staðið manni sínum á aðra hlið í hálfa öld. Eiga þau þrjú börn uppkomin. Á Tannastöðum er náttúru- fegurð mikil. Að baki rís Ing- Bókaútgáfan Norðri hefur nú gefið út fimmta bindið af hinu mikla ritsafni, Göngum og rétt- um. Er þetta lokabindi verksins. í því eru m. a. viðaukar við fyrri bindin, en auk þess nýtt efni, svo sem lýsingar á fráfærum, með- ferð fénaðar og margt annað, sem nú er fallið í gleymsku, að minnsta kosti meðal yngri kyn- slóðarinnar. Lesendur Heima er bezt munu kannast við nöfn ým- issa þeirra, sem lagt hafa til efn- ið, því að þeir hafa margir skrif- að ritgerðir í blaðið. Með Göngum og réttum höf- um við fengið tæmandi rit um þennan þátt í búnaðarsögu landsmanna. Voru síðustu for- vöð að safna efninu, því að ella var hætta á, að margt af því gleymdist, en göngurnar eru svo merkur þáttur í starfi sveita- bóndans, að fram hjá því verð- ur ekki farið, þegar menningar- saga þjóðarinnar verður skráð. Auk þess, sem ritið er fróðlegt, er það mjög skemmtilegt, enda halda þarna margir færir menn á pennanum. Umfram allt ætti yngri kynslóðin að lesa þetta rit og læra af því, en eins og eðli- legt er, þar sem bæir vaxa svo ört, eins og hér á landi, getur ekki hjá því farið, að hin dag- legu störf sveitafólksins verði eins og lokuð bók fyrir marga, ólfsfjall bratt og hátt með Nón- hnúk og Miðaftansnípu gnæf- andi við himin, en í fangi er Suðurlandsundirlendið með hin tígulegu austurfjöll í fjarska, allt frá Heklu til Eyjafjallajökuls og Vestmannaeyja, sem standa vörð fyrir Landeyjasandi. Við augum blasa blómlegar lendur Flóans með reisulegum bænda- býlum, en í nánd, undir hallan- um frá fjallinu, streymir Ölfusá breið og djúp, ljósgrá af jökul- burði, þó að hún hafi nýlokið við að svelgja allt bergvatn Fljótsins helga. Hér er náttúran síbreytileg á hinu víðáttumikla sjónarsviði, vetur, sumar, vor og haust. Maðurinn einn virðist hér óbreytanegur í ást sinni og tryggð — æviangt. sem í bæjum búa, en gagnkvæm- ur skilningur er undirstaða þess, að þjóðin geti lifað sjálfstæðu lífi. Könnunarsaga íslands hefur áður verið skráð í stórum drátt- um. Það gerði Þorvaldur Thor- oddsen í Landfræðisögu sinni, en hún er löngu ófáanleg og í fárra manna höndum. Ritið Hrakn- ingar og heiðavegir, sem þeír Pálmi Hannesson rektor og Jón Eyþórsson sjá um, er bundið við þetta svið. Þar birtast þættir, gamlir og nýir, um ferðalög yfir óbyggðir landsins, frásagnir ein- stakra manna um svaðilfarir, og stærri yfirlitsgreinar. Nú eru komin út þrjú bindi af safni þessu, hið síðasta í haust og framhald er væntanlegt. í þessu bindi eru lýsingar á fjallvegum, svo sem ritgerð Björns Gunn- laugssonar um Vatnajökulsveg, greinar séra Sigurðar Gunnars- sonar á Hallormsstað um öræf- in, um fund Þórisdals á 17. öld og margt fleira. Frásögn um slysið á Breiðamerkurjökli 1927, skýrslur um mannskaðann á Moefellssheiði og nokkrar frá- sagnir núlifandi manna. Ritið er mjög fjölbreytt að efni og verð- ur vafalaust mikið lesið. Frá- gangur allur er hinn prýðileg- asti. TVÖ MERK RIT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.