Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 33

Heima er bezt - 01.12.1953, Blaðsíða 33
Nr. 12 Heima er bezt 385 Ingólfur stóð fyrir utan hellirinn og hlustaði eftir fótataki þeirra þegar þau voru að fara upp úr gljúfrinu. Hann beið þangað til hann heyrði ekkert lengur. Áin dunaði við klettana. Honum fannst sem myrkrið gripi í sig og vildi draga sig út í víðáttuna. Hann gekk aftur á bak inn í hellirinn og hafði örina á boganum. En svo lagði hann bog- ann frá sér. Hann kom ekki að neinu gagni núna. Hann klæddi sig úr fötunum og kraup undir skinn- teppið. Hann lagðist á grúfu og gróf andlitið í dún- pokann sem hann lá á. Og nú lét hann undan tilfinningum sínum. Hann fór að gráta, gráta með þungum ekka. Hann var ekkert reiður við Jens, en þó gat hann ekki skilið, að Jens skyldi gera þetta. Fara aleinn með Geirþrúði niður í dalinn, án þess að leyfa h o n u m að vera með! Hann hefði getað gengið þetta alveg eins og hún! Að hann Jens skyldi geta verið svona harður! III. 1812. — Þetta er hið mikla neyðarár, sem enn þann dag í dag vekur hroll fjallabændanna. Neyð- arárið og Svarti dauði segja þeir, þegar þeir vilja nefna sérstaklega óhugnanlega atburði, þá tala þeir alltaf mest um ár neyðarinnar. Það var þetta ár, þegar drottinn gleymdi að senda mönnunum vorið. Sólin hækkaði að vísu stöðugt á lofti og um miðjan daginn var stundum hlýtt, en það var eins og Frosti lægi i felum í norðurhlíðum fjallanna og í þröngum dölunum. Kuldabylgjurnar gengu yfir sveitina eins og soltnar úlfahjarðir. Þegar leið á daginn frusu lækir og dýjavætlur til og þelinn þiðnaði ekki úr túnum og ökrum. Og hverja ein- ustu nótt fölnaði nýgræðingurinn, sem sá dagsins ljós fyrr um daginn. Og manneskjurnar ------ Á stórbýlunum í dalnum voru öll geymsluhús harðlæst. En dyr kotanna voru opnar upp á gátt, því að innan dyra var ekkert fémætt til, sem svaraði kostnaði að hafa á brott með sér, hvorki í búri né fjósi, hlöðu eða hesthúsi. Bæði mat og skepnu- fóður vantaði. Börnin voru hormögur. Menn taut- uðu um refsidóm drottins, þegar þeir lögðu frá sér húspostilluna eftir sunnudagslesturinn. Það var bara enginn, sem gat gefið skynsamlega skýringu á því, hvers vegna drottinn væri að refsa mönnunum svona hart. Alls staðar voru menn að veiða fugla og héra, en gekk misjafnlega. Það var einasta leiðin til þess að forðast algerða hungursneyð. Skothvellir dundu í fjöllunum og snörur voru lagðar fyrir fuglana. Hérunum fækkaði og fuglarn- ir voru næstum því horfnir eftir stuttan tíma. Útlagarnir í Svartadjúpi voru staddir svipað og dýr í gildru. Það leið varla sá dagur, að þeir yrðu ekki varir við menn með byssur og fuglasnörur. Nú höfðu þeir sjálfsagt drepið hvern einasta fugl I sveitinni og sóttu því lengra til fjalla. Ef til vill voru þeir að vona, að þeir rækjust á einstaka villi- hrein, en þeim skjátlaðist, því að villtu hreindýrin héldu sig í Tynsethéraðinu. Geirþrúður í Króki var á rjúpnaveiðum í skógar- kjarrinu upp frá sveitinni. Það var vika liðin sið- an hún var í Seljadalnum. Og hafði orðið sér til skammar! Hvað myndu þeir, fjallabúinn og dreng- urinn, ekki hugsa um hana? Hann var raunar föngulegur náungi, og skemmtilegur áð tala við. En hvað myndi hann hugsa um hana? — Hún var á leiðinni niður af ásunum. Þangað hafði hún farið til að sjá hvort hún sæi nokkurn reyk. En hún varð ekki vör við neitt. Hún hafði lofað honum að segja engum frá, að hún hafði hitt hann, og hún hafði ekki spurt um ástæðuna til þess að hann vildi leyna því. Hún ímyndaði sér að hún þekkti hana. Margt hafði verið rætt um þjófnaði úr seljunum. Og eitt sinn hafði verið brotin rúða í Haugsselinu. En hún skyldi þegja! Hún fékk einn héra og tvær rjúpur þegar þau skildu um kvöldið. Það var ein lítil og mögur rjúpa í snörunni þenn- an dag. Það var allt og sumt. Það var þungbært að snúa heim á leið með svo rýra veiði. Snjórinn var horfinn fyrir löngu en loftið var þrungið af kuldavætu. Og nú var komið langt fram í júní- mánuð-------— Hún sat við eldinn og plokkaði rjúpuna. Það var komið kvöld og hún bjóst við Geirmundi á hverri stundu. Ó, bara að hann hefði nú einhverja ögn með sér í bakpokanum, hún óskaði sér ekki annars en ósköp lítið af byggi, já, bara smáögn! Þannig hugsaði hún. Og loksins heyrði hún fótatakið hans fyrir utan. Hún lagði frá sér prjónana og gekk á móti honum. Bakpokinn hékk tómur á þrekvöxnum herðum hans. — Þú örmagnast ekki undir byrgðinni, sagði hún og reyndi að brosa. Hann svaraði ekki. Gekk bara framhjá henni og inn, til þess að fá sér að drekka. Hann var þyrstur — hafði gengið hratt. Hann kom auga á rjúpuna. — Er þetta allt? spurði hann. Röddin var dimm. Og áður en hún fékk tóm til að svara, sagði hann: — Við verðum að líta eftir fiskisnörunum strax. Hann kastaði pokanum upp í rúmið og gekk út á undan henni. Geirþrúður vissi ekki af hverju það stafaði, en hún varð alltaf svo einkennilega ótrygg, þegar Geirmundur kom heim. Henni fannst það vera einna líkast slæmri samvizku, af því að hann varð að hlaupa alla hina löngu leið til Oddabúgarðsins og heim til sín, varð að strita og sveitast guðs- langan daginn, án þess að hún gæti rétt honum hjálparhönd. Og stundum flaug henni í hug ófagrar hugsanir, ef Geirmundur hefði nú verið frjálsari og öruggari? Þá hefði hann áreiðanlega ekki verið svona þver. O-nei, það var annað en gaman fyrir hann. Hið eina, sem hún gat gert, var að þvo og halda kofanum hreinum og hjálpa honum við veiði í vatninu, sem oft var lítil. Hún setti á sig skýlu- klútinn og hljóp á eftir honum. — Er nokkuð að frétta úr sveitinni? spurði hún hæglátlega. — Nei. Henni fannst hún þurfa að spyrja svo margs ann- ars, en þorði því ekki. Hann hafði um svo margt að hugsa, að það var ekki vert að þreyta hann með spurningum. En — bara að guð gæfi að fiskurinn hefði bitið á! Þá komst Geirmundur alltaf í gott
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.