Heima er bezt - 01.12.1953, Page 18
370
Heima er bezt
Nr. 12
TannastaÖir. Ljósra.: Þoi valdur Agústsson.
Tannastaðir í Olfusi og bændur þar
eftir Guðna Jónsson, magister
Við þjóðveginn austan undir
Ingólfsfjalli .í Ölfusi stendur
vinalegur bóndabær fjallsmegin
við veginn hér um bil mitt á
milli Selfossvegar og Sogsbrúar.
Snotur bæjarþil ber við skriðu-
runna fjallshlíðina, en slétt og
víðlent tún breiðist umhverfis
bæinn eins og græn skikkja.
Heima við bæinn ber allt vitni
um sérstaka umhyggj usemi,
hreinlæti og þrifnað. Hvergi
sést rusl eða skran, hvergi van-
kantur á steini. Vegfaranda dylst
ekki, að hér hafa lengi unnið
saman ræktarsamur hugur og
natin hönd. Þetta þekka býli er
Tannastaðir í Ölfusi, en bónd-
inn, sem þar hefur lengi gert
garðinn frægan, er enn á lífi hjá
syni sínum, sem nú er tekinn við
jörðinni. Það er hinn margfróði
öldungur, Þórður Sigurðsson,
sem nú er kominn á 90. aldurs-
ár, en er þó svo ern, að hann hef-
ur gengið að slætti á hverju
sumri allt til þessa. Ætt Þórðar
hefur búið óslitið á Tannastöð-
um á aðra öld, og er jörðin fyrir
löngu orðin óðalseign hans. í
þessum línum ætla ég að gera
stuttlega grein fyrir sögu jarð-
arinnar, og eru heimildirnar að
nokkru leyti frá Þórði sjálfum.
Tannastaða er getið fyrst í
sambandi við jarðakaupin árið
1520. Keypti þá Sœmundur Ei-
riksson í Ási, tengdafaðir Árna
sýslumanns Gíslasonar á Hlíð-
arenda, jörðina fyrir 10 hundruð
í lausafé. Næsti eigandi Tanna-
staða, sem kunnugt er um, var
Andrés lögréttumaður Finnboga-
son á Kröggólfsstöðum um og
eftir 1700, og má rekja eigendur
óslitið síðan. Sýnilegt er, að son-
ur hans, Gunnlaugur Andrésson
á Þúfu, hefur erft Tannastaði
eftir föður sinn, því að víst er,
að dóttir hans, Anna Gunnlaugs-
dóttir, húsfreyja á Þúfu, var
eigandi þeirra. Anna átti fyrr Ei-
rik Brynjólfsson lögréttumanns
á Ölfusvatni, en síðar Odd Þor-
steinsson frá Núpum. Hún missti
Eirík snemma, og var búi þeirra
skipt, áður en hún giftist aftur.
Erfði þá dóttir þeirra, Steinunn
Eiriksdóttir, Tannastaði. Stein-
unn átti fyrr Gísla Sigurðsson
frá Ásgarði, en síðar Magnús
lögréttumann Þórðarson á Núp-
um. Áður en Steinunn giftist
Magnúsi, hefur dánarbúi Gísla,
fyrra manns hennar, verið skipt,
og hlaut þá einkasonur þeirra,
Gísli Gíslason, síðar lengi merk-
isbóndi og hreppstjóri á Vill-
ingavatni, Tannastaði í erfða-
hluta sinn. Gísli á Villingavatni
átti Tannastaðina í meira en
hálfa öld og þótti jafnan ágætur
og mjög sannsýnn landsdrott-
inn. Kona Gísla, Þjóðbjörg
Guðnadóttir frá Reykjakoti, lifði
mann sinn í nokkur ár. Hún gaf
sonarsyni sínum, Gísla Magnús-
syni í Króki í Grafningi, hálfa
Tannastaði, en árið 1910 keypti
Þórður bóndi á Tannastöðum
helming þennan af Gísla eða
þrotabúi hans, sem kallað var.
Hinn helming jarðarinnar erfði
Magnús Gíslason á Villingavatni
eftir foreldra sína, en árið 1896
keypti Sigurður Sigurðsson
bóndi á Tannastöðum þann