Heima er bezt - 01.12.1959, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.12.1959, Blaðsíða 13
hefði lifað lengur og reynt að hlynna að bróður sínum til hinztu stundar. I Varmadal var svo smíðað utan um bræðurna. Voru kisturnar síðan sóttar þangað austan undan Fjöllum af þeim Eyjólfi Jónssyni á Miðgrund og Sigurði Ólafssyni á Núpi. Nóttina eftir að þeir fóru frá Varmadal, gistu þeir með kisturnar í Steinmóðarbæ. Voru þær settar þar inn í stofu. Að venju var lögð opin sálmabók sín á hvors kistu og valdir samhljóða sálmar í opnuna. Að því búnu var stofunni lokað og enginn umgangur um hana meira, enda gengu menn rétt síðar til náða. ♦ Um morguninn, er kisturnar voru teknar út, fannst mönnum það harla einkennilegt, að þá var búið að skipta um sálma í opnu bókanna. Voru þar komnir allt aðrir samhljóða sálmar en verið höfðu um kvöldið. Sannan- lega hafði þó enginn gengið um stofuna, fyrr en þeir Eyjólfur og Sigurður komu þar inn um morguninn. Sumir héldu því fram, að vindgustur um opinn glugga hefði orsakað þetta. En var þá ekki fráleitt að vind- gusturinn skyldi einnig velja samhljóða sálma í opnu bókanna? — Ekki hefur tekizt að fá upplýst með vissu, hvaða sálmar voru valdir fyrst, er búið var að ganga frá kistunum í stofunni í Steinmóðarbæ, en hitt er full- víst, að um morguninn, er að var komið, var í opnum bókanna á báðum kistunum sálmurinn nr. 345 (í Sálma- bók, útg. 1903): Á meðan engin mæúr neyð, á meðan slétt er ævileið, vér göngum þrátt með létta lund, og leitum ei á Jesií fund. En þegar kemur hregg og hríð, og hrelling þjakar neyð og stríð, í dauðans angist daprir þá vér Drottin Jesúm köllum á. Fleiri eru erindi sálmsins, en þau getur lesandinn séð í nefndri sálmabók. Má með sanni segja, að sálmaval og breyting frá hinum fyrri hafi farið fram á einkennilegan hátt, svo að ekki sé meira sagt, og efni sálmsins mjög í anda hins hörmulega atburðar. Jarðarför bræðranna fór svo fram frá Ásólfsskála- kirkju. Voru þeir lagðir í sömu gröf, og sannaðist þann- ig hugboð þeirra, að þeir myndu hljóta sama legstað. Frá vermannahópnum, sem kominn var að Kotströnd, er það að segja, að ferð þeirra til Reykjavíkur gekk greiðlega. Náðu þeir, sem til Eyjanna ætluðu, umræddri skipsferð og hlutu góða ferð. Margir voru ekki vinnufærir strax eftir suðurkomuna vegna afleiðinga frá veðrinu á Rangárvöllum, kals og ofþreytu, en þeir jöfnuðu sig þó, er frá leið. Skipstjóri sá, er Einar Ingvarsson var ráðinn hjá, varð til dæmis að bíða eftir honum hálfan mánuð, á meðan kalsár hans Steinmóðarbær vorið 1911. greru að nokkru. En lengi bar Einar sár þessi, er greru bæði seint og illa. Jón Stefánsson og Páll Einarsson fóru til Eyja eins og til stóð. Páll drukknaði þar þennan vetur af mb. ís- land, Ve. 118, þann 12. apríl. Jón tók sér síðar bólfestu í Eyjum og drukknaði þar af bát sínum, mb. Haffara, Ve. 116, þann 9. apríl 1916. Eins og áður getur, giftist Þorgerður Jónsdóttir frá Hrútafelli Snorra Þórðarsyni í Steini í Eyjum. Hlífði það henni við kali og jafnvel dauða í ferð þessari, að hún naut sérlega góðrar umönnunar ferðafélaga sinna og var auk þess mjög vel búin að öllum fatnaði, sem áður getur. Varð henni ekki varanlegt mein af erfiðleikum og vosbúðinni í hrakningunum. Um Björn á Efstu-Grund er það að segja, að aldrei varð hann sami maður eftir þessar hörmungar, hrakn- inginn og bræðramissinn. Ekki hefur tekizt enn að hafa upp á nöfnum þeirra Mýrdælinga, sem í þessum hrakningum lentu, utan Eyj- ólfs Grímssonar, Nikhóli. Hefur þó mjög verið reynt til þess, og þá ekki sízt að hafa upp á nafni stúlkunnar, sem með þeim var. Eru þess vegna þeir, sem kynnu að lesa þetta og vita einhverjar upplýsingar um Mýrdæl- ingana, beðnir að láta blaðinu þær í té. Ég hef þá lokið frásögn þessari. Ég hef reynt að vinna úr munnlegum heimildum margra, eins vel og mér var auðið, og skýrt frá því, sem mér fannst máli skipta. Efa- laust hefði mátt hafa frásögnina betur úr garði gerða að stíl og málfari, en ég held hins vegar, að rétt sé með efnið farið og það komi skýrt fram. Bið ég þess vegna væntanlegan lesanda að hafa það að jöfnu. Skráð í marz 1959. Heimildarmenn að frásögninni eru: Þórður Stefánsson, Einar Ingvarsson, Sigurjón Olafsson, Jón Sigurðsson, Vestmannabraut 73, o. fl. LEIÐRÉTTING VIÐ BÓKASKRÁ (HEB 13. tbl.) Bók nr. 50 er Þrir óboðnir gestir Bók nr. 60 er Pilagrimsför og ferðaþœttir Heima er bezt 41 ?>

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.