Heima er bezt - 01.12.1959, Blaðsíða 34
VERÐLAUNAGETRAUNIN
SÍÐASTI ÞÁTTUR
HINNAR GLÆSILEGU
VERÐLAUNAGETRAUNAR
STÁLHÚSGAGNASETT (BORÐ
OG 4 STÓLAR) í VERÐLAUN
Já, hcr kemur þá þriðji og síðasti þátturinn í þessari verð-
launagetraun. Hinir þattirnir tveir birtust í október- og
nóvemberblöðunum. En áður en lengra er haldið, verðum
við að benda ykkur á mistök, sem urðu í upptalningu
skuggamyndanna í báðum fyrri heftunum. 1 upptalning-
unni á þeim níu byggingum, sem um er að ræða, er cin
byggingin sögð eiga að vera Dómkirkjan á Hólum, en á að
vera KAÞÓLSKA KIRKJAN I REYKJAVIK. Þar sem nú
eru birtar þrjár síðustu skuggamyndirnar, kemur þetta
ekki að sök, en til vonar og vara skal það fram tekið, að
þær níu byggingar, sem um er að ræða, eru sem hér segir:
Menntaskólinn á Akureyri, IJifröst í Borgar-
firðji, Þjóðleikhúsið, Akureyrarkirkja, Dóm-
kirkjan í Reykjavík, hús Ásmundar Sveinsson-
ar myndhöggvara, Kaþólska kirkjan í Reykja-
vík, Háskóli Islands, Alþingishúsið.
Og eins og þið vitið, er þrautin í því fólgin að segja til
um, hvaða númer á við hvaða byggingu. Þegar þið hafið
ákveðið þetta, skrifið þið númerið og nafn byggingarinnar
í réttri röð á blað, sent þið tnerkið síðan greinilega með
nafni ykkar og heimilisfangi. Ráðninguna setjið þið síðan
í umslag, sem þið auðkennið með orðinu STÁLHÚS-
GAGNAGETRAUN og sendið því næst til HEIMA ER
BEZT, pósthólf 45, Akureyri.
Ráðningamar þurfa að hafa borizt afgreiðslu blaðsins í
síðasta lagi þann 15. febrúar 1960. Allir, sem eru fastir á-
skrifendur að HEIMA ER BEZT, geta tekið þátt í get-
rauninni, en hver áskrifandi má að sjálfsögðu aðeins senda
eina ráðningu til blaðsins. Ef fleiri en ein rétt ráðning
berst, verður dregið um verðlaunin hjá fulltrúa bæjarfó-
getans á Akureyri.
Og þá koma hér að lokum skuggamyndir nr. 7, 8 og 9.
434 Heima er bezt