Heima er bezt - 01.12.1959, Page 25
ÁTTUNDI HLUTI
Geir Einarsson er ungur piltur og glæsilegur, og þar
að auki búfræðingur og prestssonur. Anna húsfreyja
breytir fljótt um verkaskipan eftir komu hans að Aust-
urhlíð. Hún lætur dóttur sína ganga um beina í sinn
stað, en dregur sig í hlé. Lilja er nú skólagengin og kann
fullkomlega til allra húsverka, enda er Anna vel ánægð
með frammistöðu hennar. Lilja hlýðir fyrirskipunum
móður sinnar. Hún gengur að störfum sínum hljóðlát,
en örugg og mistekst hvergi. Ungi prestssonurinn veitir
henni brátt nána athygli. Hann hefur oft séð Lilju áður,
en litla eftirtekt veitt henni fyrr en nú, og honum dylst
ekki, að hún er einhver glæsilegasta unga stúlkan í
sveitinni.
Geir verður tíðhugsað heim til Lilju á meðan vélar
hans rista sundur þúfumar í Austurhlíð. Mynd hennar
verður stöðugt skýrari í vitund hans. En hugur hans
eygir fleira. Austurhlíð gæti borið stórt bú með auk-
inni ræktun, og heimasætan lítur út fyrir að vera efni í
dugmikla sveitakonu, en vitanlega erfir hún óðal föður
síns.
Geir fer að ræða við Lilju, þegar honum gefst tóm
til, og þau verða brátt kunningjar. En hugur hans stefn-
ir að hærra marki en aðeins vináttu hennar, og varla
verða hjónin í Austurhlíð mótfallin því að tengjast við
séra Einar á Grund. Geir tekur sína ákvörðun. Það er
nú löngu komið úr móð að biðja feðurna að gefa dætur
sínar, en Geir kemur þó til hugar að slá upp á grín, en
jafnframt alvöru við hjónin í Austurhlíð og biðja þau
að gefa sér Lilju fyrir konu. Gangi það að óskum, er
honum full alvara, en hafni þau þeirri málaleitan hans,
skal hann láta þau skoða orð sín sem saklausa gaman-
semi.
Geir hefir sléttað stórt landflæmi í Austurhlíð, og
senn er veru hans þar lokið. Ótal beiðnir um vinnu
berast honum stöðugt frá bændum sveitarinnar, og
hann á mikil verkefni fyrir höndum. Er hann hefir
lokið starfi dagsins, gengur hann heim að Austurhlíð,
og Lilja framreiðir kvöldverð fyrir hann og föður sinn
og ber hann á borð inn í baðstofu. Þeir setjast að snæð-
ingi, en Lilja hverfur aftur fram í eldhús til sinna starfa.
Anna húsfreyja gengur til baðstofu og nemur staðar
við gluggann. Hún rennir augunum yfir hið mikla dags-
verk prestssonarins og segir glaðlega:
— Það er falleg slétta sem þú hefir gert í dag, Geir, ég
hlakka til að sjá hana fullgróna. — Geir lítur brosandi til
Önnu.
— Ég vona líka að þið eigið eftir að sjá þau sár, sem
ég hefi gert í jörð ykkar, fullgróin og iðgræn, áður en
Iangt um líður. Það eru víða miklir og góðir ræktunar-
möguleikar hér í Austurhlíð.
Jón hefir lokið við að borða. Hann strýkur ánægju-
lega um skegg sitt og segir hálfglettnislega: — Já, Aust-
urhlíð gæti borið stórt bú. Ég þarf því að eignast dug-
mikinn tengdason, sem vill hagnýta sér það. Sjálfur er
ég farinn að verða lélegur.
Geir brosir. Nú er tilvalið tækifæri fyrir hann að
skýra þeim hjónum frá hug sínum til Lilju, fyrst tal
þeirra féll á þennan veg. Hann snýr sér að Jóni og
segir: — Já, vitanlega þarftu að eignast þróttmikinn
og hagsýnan tengdason í landbúnaði, því dóttir þín
lítur út fyrir að vera efni í dugmikla sveitakonu.
— Hún er tápmikil, stelpan.
Glettni og alvara færist yfir svip Geirs, svo segir
hann: — Ég verð kannske aldrei hagsýnn né dugmikill
bóndi, en mér hefir samt komið það til hugar að biðja
ykkur hjónin að gefa mér Lilju.
Anna verður fyrri til að svara en Jón, og hún segir:
— Enginn ráðahagur yrði okkur kærkomnari, Geir.
Hefir þú fært þetta í tal við Lilju?
— Nei, ekki ennþá, fyrst ætlaði ég að heyra ykkar
vilja.
— Um hann þurftir þú ekki að efast.
Jón rís upp frá borðum og klappar á herðar prests-
sonarins, og hann segir. — Ég sé ekki eftir því að hafa
ráðið þig hingað til mín í vor. Lilju máttu eiga, því er
ekkert til fyrirstöðu. En nú er veru þinni að verða lokið
hér að þessu sinni.
— Já, annað kvöld fer ég heim.
Lilja kemur inn í baðstofuna til þess að taka fram af
borðinu, og samtalið fellur niður. Hjónin í Austurhlíð
ætla ekki að nefna bónorð prestssonarins við dóttur
sína, fyrr en hann hefir sjálfur talað sínu máli við hana.
Þau efast ekki um jákvætt svar hennar, þegar slíkur
maður er í boði. En Geir bíður eftir tækifæri til þess að
ná tali af Lilju einni.
Geir hefir hreinsað moldina af vinnuvélum sínum og
Heima er bezt 425