Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 4

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 4
THEODOR GUNNLAUGSSON FRA BJARMALANDI: Gué clur Ei munaur uinarsson retas Sumarið 1873, 19. júlí, fyrir réttum 87 árum, fæddist sveinbarn á Heggsstöðum í Andakíls- hreppi í Borgarfjarðarsýslu. Foreldrar sveinsins voru Einar Guðmundsson og Steinþóra Einars- dóttir, sem þar bjuggu. Áður höfðu þau hjón eignazt sex dætur, svo það var áreiðanlega tekið vel á móti snáðanum. Hann dafnaði líka fljótt og varð snemma óvenju kjarkmikill og snar í snúningum, enda varð hann fyrr en varði aðalhjálp föður síns við skepnurnar. Skjótt dró þó ský fyrir sólu. Ellefu ára gamall missir hann föður sinn, sem fórst af slysförum. Sá atburður markaði djúp og óafmáanleg spor í skapgerð drengsins og lífsstefnu alla. Fjögur næstu árin barðist móðir hans samt áfram með sumt af bömunum, og mæddi þá mest á drenginn unga, að sjá um skepnurnar bæði úti og inni, alla tíma árs. Þegar hér var komið sögu varð móðirin að gefast upp, þrátt fyrir afburða dugnað, þar sem skepnunum fækkaði ár frá ári. En framlag Guðmundar sást bezt á því, að þessi árin mátti segja að líkamsvöxtur hans stæði í stað. Svo mjög lagði hann sig fram að hjálpa móður sinni. Laun hans urðu mikilsverð kynni af mönnum og skepnum og móður náttúru, sem átti síðan hug hans allan og hjarta. Á þessum árum komst Guðmundur oftar en einu sinni í mikla lífshættu. Er mér sérstaklega ríkt í huga, Hjónin á Brekku með 12 barna sinna, sem öll eru á lifi. 292 Heima er bezt Guðmundur Einarsson og Guðrún Magnúsdóttir. þegar mannýgt naut réðst á hann. Úr þeim hildarleik komst hann þó óskaddaður, en boli lagði á flótta blóði drifinn og marinn. Þannig endaði það einvígið. Það sem bjargaði Guðmundi þar, eins og oftar, var skjót hugsun og rökrétt, ásamt einstakri dirfsku. Að baki hans stóð líka hulinn verndarkraftur, sem hjálpaði hon- um bæði fyrr og síðar á hinni viðburðaríku ævi. Um þann þáttinn fer ég þó ekki fleiri orðum hér. Fermingarvorið sitt lagði Guðmundur svo út í heim- inn upp á eigin spýtur, með léttan mal á baki. Naut hann þar hjálpar góðra manna, sem varð honum líka máttugur aflgjafi. Og þannig var hann skapi farinn að hann harðnaði og stæltist við hverja raun. Þær virtust þó gera sér leik að því að taka hann í bóndabeygju og halda honum eftir mætti. Samt misstu þær alltaf tökin, eða öllu heldur: Guðmundur smaug úr greipum þeirra áður en þær höfðu áttað sig á. Frá þeim stimpingum og vörnum Guðmundar verður ekki sagt hér. Það yrði of langt mál. Þó verður ekki hjá því komizt að minn- ast örfárra afreka hans, til þess eins, að hver, sem síðar kynnist þeim brotum, sem munu koma fyrir almenn- ingssjónir á þessu ári, úr ævisögu Guðmundar, eigi hægra með að átta sig á sumum snilldarbrögðum hans í lífsglímunni. Áður hafa þó birzt stuttir þættir, bæði í blöðum og útvarpi, úr þessari glímu Guðmundar. í

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.