Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 36

Heima er bezt - 01.09.1960, Blaðsíða 36
450. Hér er ekki um að villast. Þorpar- ar hafa rænt Láka og flutt hann út í seglskipið þarna. Hvað á nú til bragðs að taka? Ég bíð eina klst. Síðan klæði ég mig úr fötunum og syndi út í skipið. 451. Ég varpa mér gætilega í sjóinn, sem er vel hlýr, og stefni út að skipinu. Þetta er ákaflega spennandi ævintýri. Ég veit semsé ekki, hvort þeir hafi séð til mín frá skipinu. Og ef svo væri. .. .! 452. Nei, það hefur enginn séð til mín. Ég syndi að akkerisfestinni og varpa mæðinni sem snöggvast. Síðan klifra ég auðveldlega upp eftir gildri festinni og kemst upp á þilfarið. 453. Ég hlusta með mikilli athygli. Allt er hljótt og kyrrt. Nei, aftur á skip- inu heyri ég karlmannsraddir, sem virð- ast koma neðan undan þiljum. Ég læð- ist hægt og gætilega aftur eftir þil- farinu. 454. Ég verð að reyna að komast að því, hvar þeir hafa látið Láka. Og ég velti þessu fyrir mér. Bezt verður senni- lega að gægjast inn um ljórana. Ég næ í grannan kaðal og renni mér niður eft- ir skipshliðinni. 455. Hérna er ljós í ljóra. Ég gægist inn um rykugan gluggann og sé tvo menn þar inni. Sá eldri er ískyggileg- ur á svipinn. Það er eflaust skipstjórinn. Hinn er grennri og magrari, sennilega bátsmaðurinn. 456. Þaðan sem ég nú er, get ég heyrt hvað þeir eru að spjalla. Skipstjórinn segir hinum, hvað nú skuli gera: „Fyrst strákurinn er kominn um borð, þá skaltu láta létta akkerum undireins," segir hann. „Bezt að vera ferðbúnir í skyndi!“ 457. Ég klifra upp aftur á þilfarið. Og í sama vetfangi rekst ég á einhvern í myrkrinu. Ég verð dauðhræddur. Nú er öllu lokið, hugsa ég. Þessi myrkra- gaur snýr sér snöggt að mér og þrífur í handlegginn á mér. 458. Þetta er ungur maður, eða næst- um drengur, sem hefur handtekið mig. „Hvað ert þú að gera hérna?" segir hann byrstur. Og ég segi honum eins og er: „Ég er að leita að pilti sem heitir Láki og hefur verið rænt...."

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.