Heima er bezt - 01.09.1960, Page 5

Heima er bezt - 01.09.1960, Page 5
bókinni: „Frá yztu nesjum“, eftir Gils Guðmundsson rithöfund, er sagt frá viðureign hans við Svíana á Sól- bakka sumarið 1897. í annarri bók: „Þrek í þrautum", eftir skáldið Guðmund G. Hagalín, er ýtarlega sagt frá sumum veiðiferðum Guðmundar og ýmsu fleiru, því Guðmundur G. Hagalín var honum nákunnugur. Árið 1899 giftist Guðmundur Guðrúnu Magnúsdótt- ur, ættaðri úr Borgarfirði. Þau hófu búskap árið 1900, í Hjarðardal í Dýrafirði. Árið 1909 flytjast þau að Brekku á Ingjaldssandi við Önundarfjörð. Þar bjuggu þau meðan þróttur entist, og þar dvelja þau enn. Guð- mundur 87 ára í dag en Guðrún rúmum fjórum árum yngri, fædd 2. júlí. 1877. Áður en Guðmundur giftist hafði hann átt fjögur börn með stúlku, sem dvaldi í sjö ár á sama bæ og hann í Borgarfirði. Með konu sinni átti hann sautján böm. Þar af dóu fimm í bernsku. Öllum börnunum komu þau upp af eigin rammleik og tóku jafnvel tvö fóstur- börn. Má af þessu marka hvaða afburðamenn þau hafa verið, hvort á sínu sviði. Róðurinn þyngdist snemma fyrir báðum, en bæði kunnu þau áralagið afbrigða vel. Það leynist engum, sem les fyrmefnd ævibrot. Og allir, sem kynnzt hafa þeim hjónum, börnum þeirra, barnabörnum og barna- barnabörnum, sem voru orðin 185 á 85. aldursafmæli Guðmundar, munu undrast þann glæsilega hóp og þann góða liðsstyrk, sem bætzt hefur á þilfarið, til sóknar á þjóðarskútunni. Það má því með sanni segja að þau Guðmundur og Guðrún eru í hópi þeirra Islendinga, sem með bros á vör geta minnzt margra sigra, á langri ævi, þrátt fyrir skugga sorgarinnar og sárra harma. Um allt land mun Guðmundur Einarsson á Brekku vera þekktur undir nafninu: Guðmundur refaskytta. Af ásettu ráði minntist ég ekki fyrr á þann þáttinn í starfi hans, sem þó varð svo happasæll, að af bar. Og auðvitað munu Vestfirðingar kunna þar á bezt skil, eins og öllum athöfnum hans og öðrum kynnum, eftir Séð heim að Brekku á Ingjaldssandi. Rebbi. að hann fluttist þangað vestur, úr Borgarfirði. Sjálfur held ég, að enginn maður á Islandi, á þessari öld, hafi legið eins margar nætur úti, undir berum himni, og Guðmundur. Eg efast líka um að nokkur, fyrr og síð- ar, hafi kunnað þar betur við sig. Á refaveiðum lá hann úti 2496 nætur. Og hann var ekki aðgerðalaus, því hann banaði 2464 tófum. Guðmundur Einarsson er sá merkilegasti maður, sem ég hef kynnzt um dagana, og er þá mikið sagt. Bréfin frá honum og það, sem þeim fylgdi, hefur oft minnt mig á hinn forvitra Njál, og einnig á göfuglyndi Ingi- mundar gamla. Og hæfni hans, áræði og skjótleiki minnir þráfaldlega á ýmsar vinsælustu söguhetjur vor- ar. Ætti þetta að vekja athygli á íslenzkum afburða- manni.... Meðan þjóð vor elur slíka syni, er hún á réttri leið og hefur réttan skilning á gildi sínu. En girnist hún um of gullnar veigar og góða daga og sem hæst laun fyrir helzt til lítil afrek, ber nauðsyn til að fletta spjöldum fortíðarinnar. Þar er djúpum rúnum rist sú lífsreynsla og athafnir, sem bezt hafa dugað okkur íslendingum á berangursgöngu liðinna alda, þegar eldgos, drepsóttir og ísavetur sóttu á aðra hlið, en á hina ófyrirleitnir eiginhagsmunamenn, sem létu greipar sópa um gullið allt, er til náðist.... í þessu fáorða yfirliti hef ég ekki lýst Guðmundi sjálfum með einu orði, eins og hann leit út á sínum baráttuárum. Samt mun engum dyljast að þar hefur sál og líkami hlotið að vera óvenju vel samhæft og orkan furðuleg. Ástæðan fyrir því að ég sleppi alveg hér að lýsa Guðmundi er sú, að til þess skortir mig bæði orð og hæfni, eins og ég helzt kysi og vert væri. Þeir, sem vilja, geta kynnzt honum síðar, á öllum aldri, þar sem hann kemur til dyranna, í áður nefndum ævibrotum, eins og hann var klæddur, eðlilegur og ófeiminn við hvem, sem að garði bar. Og ég held, að þeir verði líka fáir, sem sjá eftir þeirri stund, sem í það fer að hlusta á gamla manninn, því hann hefur frá mörgu að segja. Ég hygg að sú saga verði flestum minnisstæð, enda gerist hún aldrei aftur. 19. júní 1960. Heima er bezt 293

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.