Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 9

Heima er bezt - 01.09.1960, Síða 9
og skeggi þeirra, sem sátu. Ég setti frá mér töskuna og pokann, gekk að stólnum sem næstur mér var og sagði við hvítklæddan mann, sem þar var að starfi: — Góðan daginn. Klippið þér menn? Hann leit kankvíslega við mér og svaraði: — Góðan daginn. Já, já. Gjörið þér svo vel. Ég vissi ekki almennilega við hvað hann átti eða hvar og hvernig ég ætti að gera svo vel. Sennilega meinti hann að ég mætti setjast, en það var sýnd veiði en ekki gefin, þar sem fyrir var maður í hverjum stól. Ég gekk því um gólf að stóla baki og reyndi að fylgjast sem bezt með því sem fram fór. Mest blöskr- aði mér að sjá hve mennirnir bruðluðu með sápuna. Þar virtist vera um mesta óhóf og meiningarleysi að ræða — og þeir höfðu ekki svo mikið sem skeggbursta, heldur sulluðust í öllu saman með berum höndunum. Ég furð- aði mig á því að nokkur maður skyldi leggja fyrir sig að raka menn og eiga ekki svo mikið sem skeggbursta til þeirra hluta. Þá laust þeirri hugmynd niður í huga minn, að sennilega ættu menn að leggja sér til burstana, en þessir bara gleymt þeirri skvldu. Loks stóð einn nýrakaður upp og ég settist umsvifa- laust í sæti hans. I sömu mund sá ég í speglinum, að stúlka kom aftan að mér og þreif af mér hattkúfinn, sem ég var auðvitað enn þá með á höfðinu. — Afsakið, sagði hún, fór síðan með hattinn minn og hengdi hann á snaga fram við dyr. — Takk fyrir, sagði ég við spegilinn. Stúlkan kom aftur og hafði nú meðferðis hvítan borðdúk, sem hún breiddi á brjóst mér og herðar. — Var það rakstur? spurði hún, þegar ég var orðinn nógu vel dúklagður að hemiar áliti. — Ha — nei, nei, ekki svoleiðis. Ég ætlaði bara.... sko, hann ætlaði bara að klippa mig, stamaði ég. — Já, klipping, takk, sagði stúlkan og var hin roggn- asta. Hún brá nú greiðu í hár mitt og bar hendurnar ótt. Þegar hún þóttist vera nokkurn veginn komin til botns í flókanum, greip hún áhald á borðinu, setti það í gang og gerði sig í alla staði líklega til að hleypa því á hnakkann á mér. Þetta gerðist allt svo fljótt, að ég átti erfitt með að láta hugann fylgja rás viðburðanna. En þegar ég fann þetta undratæki vaða hvissandi upp eftir hnakkagróf- inni, og sá í speglinum að hárflyksurnar þeyttust í allar áttir eins og gras af ljá, þá kipptist ég harkalega við í sætinu og greip báðum höndum um höfuðið, ef ég fengi nokkru bjargað með því móti. Stúlkunni varð felmt við og stöðvaði garganið samstundis. — Almáttugur. Afsakið. Slítur hún hárið? — Nei, e-ekki alveg, svaraði ég. En ég held ég vilji heldur að hann klippi mig, þarna sko, maðurinn. Eg var búinn að minnast á það við hann. Um leið reyndi ég að benda stúlkunni á þann, sem ég ávarpaði fyrstan þarna inni, en áður en ég kom því við, byrjaði hún á nýjan leik og virtist alveg vera búin að ná sér. — Þetta er allt í lagi. Ég er alvön að klippa, sagði hún hughreystandi og lét klippurnar hvæsa á ný. — Jæja — er það, kannski, svaraði ég hálf skömmustu- legur, en reyndi þó að sýnast kaldur og rólegur. Síðan sagði ég eins og til að friðmælast við stúlkugreyið: — Ég hef nefnilega aldrei látið klippa mig fyrr. Við þessi fáu og meinleysislegu orð mín datt svo yfir aumingja stúlkuna að minnstu munaði að henni félli algerlega verk úr hendi. — Hvað eruð þér að segja, maður? Hafið þér virki- lega aldrei verið klipptur áður? — Ja, jú, náttúrlega, ég meinti sko svoleiðis, ég hef ekki verið kiipptur hjá rakara, svona. Það klipptu mig bara menn heima. Stúlkan í speglinum barðist auðsjáanlega vonlausri baráttu við hláturinn. — O, ég skil, sagði hún. Þér eruð sem sagt ekki bæj- armaður. — Ja, jú eiginlega. Ég á heima á bæ fyrir norðan, svaraði ég og varð dálítið miður mín, þegar stúlkan missti hláturinn. Ég heyrði að hún hló en ég sá það ekki því ég lokaði augunum til þess að þurfa ekki að horfast í augu við hana í speglinum. En sá munaður var mér einnig of góður eins og á stóð. Hún tók strax eftir því og spurði nærgætnislega: — Fór hár í augun á yður? Afsakið. Um leið laut hún alveg niður að mér, strauk fingrum um augnalok mín og endurtók afsökun sína. — Nei, nei, flýtti ég mér að segja um leið og ég neyddist til að opna ásjónu mína á ný og mæta eftir- væntingarfullu en dálítið sposku tilliti hennar. — Ég er bara svolítið syfjaður, skrökvaði ég í skyndingu til að útkljá málið. Hún tók nú aftur til við verkið, og bæði þögðu — og ég af öllum lífs og sálar kröftum, staðráðinn í að taka á mig möglunarlaust það ok sem stúlkunni þókn- aðist að leggja á mig. Mér fannst hún vera óratíma að „snurfusa“ á mér kollinn, eftir að klippingunni var að mestu lokið. Loks rauf hún þögnina og spurði: — Hvernig greiðið þér hárið? — Bara svona með venjulegri hárgreiðu, svaraði ég skýrt og skorinort. Hún missti sem snöggvast vald á sér og hló upphátt. Ég kíttaðist neðar og neðar í stólinn og horfði í gaupn- ir mér. — Ég meinti nú eiginlega hvernig þér greidduð hár- ið. Á ég að greiða aftur? sagði stúlkan og reyndi að koma andliti sínu í samt lag eftir hláturinn. — Nei, ég held að það sé nú alveg óþarfi, það er bú- ið að greiða mér svo mikið núna. Takk fyrir, sagði ég. — Jæja, ég greiði þá bara beint aftur, sagði hún og ég sá að hún var farin að aflagast í framan á nýjan leik. Þó hló hún ekki upphátt. — Já, það er bezt, ef það tollir svoleiðis, samsinnti ég. — Á að þvo hárið? spurði hún. — Er það voða skítugt, spurði ég á móti, án þess að líta upp. — Ne-ei, ekki segi ég það, en það hefði gott af þvotti. Heima er bezt 297

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.