Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 13

Heima er bezt - 01.09.1960, Qupperneq 13
GUÐMUNDUR B. ARNASON: TVÆR SJÓFERÐIR Það vekur ekki mikla eftirtekt nú, þótt menn sjái bát koma öslandi inn fjörðinn móti stormi og kviku með góðum ganghraða. Slíkt hefði þó þótt mikilli furðu sæta á þrjátíu fyrstu árum ævi minnar. Þá urðu menn að nota handaflið, ef mótbyr gerði, knýja hlunn- ana „harðspenntri greip“, spyrna við fótum sem fast- ast og leggjast af alefli á árarnar við hvert áratog. Og þótt allir neyttu orku sinnar til hins ýtrasta, hrökk hún oft ekki til. Þeir voru margir, árabátarnir, sem aldrei náðu landi í aflandsstormum fyrri tíma. Og menn oft þjakaðir og illa farnir, þeir er landi náðu eftir harðan barning. Vegna þeirra, er ekki vita, hve lélegur útbúnaður hinna litlu árabáta var víða hér á landi fyrir síðustu aldamót og hve erfitt það var stundum að komast á þeim örlítinn spöl að settu rnarki, vil ég bregða hér upp tveimur skyndimyndum. Þær varpa nokkru ljósi á hvort tveggja. I. Erfiður spölur. þorra árið 1892 var kornmatur mjög til þurrðar genginn að Lóni í Kelduhverfi. En á Kópaskeri átti faðir minn, Arni Kristjáns- son, kornvörur í pöntun. Hafði hann ætlað að sækja þær á bát strax eftir áramótin. En vegna ótíðar — hríða og umhleypinga — hafði ekki gefið til að ná þeim. En loks kom þó sæmilega álitlegt veður, og þótti þá rétt að freista þess að sækja vörurnar. Lagt var af stað frá Lóni árdegis á sexrónum nóta- bát, sem borið gat 14 tunnur. Faðir minn átti bátinn og var formaður á honum. Hann var við fimmta mann, og voru hásetarnir: Eggert Stefánsson, vinnumaður í Lóni, Jón bóndi Jónsson á Fjöllum og við frændumir Björn Guðmundsson, báðir innan við tvítugt. Við fengum hagstætt veður til Kópaskers, sigldum alla leið í sunnan golu, sem smám saman fór vaxandi. Og eftir að við lentum á Kópaskeri, herti vindinn, svo að ekkert viðlit var að „berja“ inn að Sandinum í fjarðarbotninum. En kæmumst við þangað, var með sömu vindstöðu hægt að sigla vestur með Sandinum, sem hallar heldur til suðvesturs. Af þessari ástæðu gátum við ekki lagt strax af stað aftur heimleiðis, eins og faðir minn hafði ætlað að gera í fyrstu. Eftir alllangan tíma tók vindinn þó að lægja, svo að fært virtist um flóann. Tókum við þá vörumar út í skyndi og bárum þær á bátinn. Varð hann rúm- lega hálf-fermdur af þeim. Komið var að ljósaskiptum, er við lögðum af stað. Höfðum við nokkurn mótvind inn með Núpasveitinni og var ganglítið hjá okkur, því að báturinn var breið- ur og þungur í róðri. Vindurinn gekk smám saman meira til vesturs, svo okkur varð ljóst, að ekki yrði siglt vestur með Sandinum. En þegar við vorum komn- ir inn undir tangann eða Hleinina, norðan við Buðl- ungahöfnina, hvessti snögglega og gerði rok. Tók þá þegar gang af bátnum hjá okkur. Þykkt var í lofti, nýr máni og komið niðamyrkur. Talsverð undiralda var af norð-vestri, svo að ekkert viðlit var að lenda í Valþjófsstaðafjöru, því að þar era mikil útgrynnsli. En þar mundum við hafa leitað Iendingar, þótt slæm væri, ef kvikulaust hefði verið, því að við vorum þar rétt fram undan. Voru nú aðeins tveir kostir fyrir hendi: Annar var sá að hleypa til Kópaskers, sem þó var ekki álitlegt í þreifandi náttmyrkri og roki, því að skerjótt er við Kópasker, og ekkert til leiðbeiningar við innsiglinguna þar, enda við ekki nægilega kunnug- ir, því að Kópasker hafði þá fyrir skömmu verið löggilt höfn. Hinn kosturinn var að freista þess að komast inn á Buðlungahöfnina, sem ekki mun hafa verið nema 200 faðma vegalengd, en hún er í suðausturhorni Öxar- fjarðarflóans, þar sem sandurinn fyrir botni fjarðarins byrjar að austan. Faðir minn tók þann kost að reyna að „berja“ þenn- an stutta spöl. Rem nú allir eins og kraftar leyfðu. En harla lítið þokaðist þó áfram, og stundum jafnvel hrakti okkur. Eftir að hafa róið lífróður í tvær klukkustundir, komumst við þó loks fyrir tangann og gátum við illan leik lent í Buðlungahöfninni, en lítið afdrep er þar fyrir norð-vestan öldu. Ekki var á okkur þurr þráður, er í land kom. Og þótt við tækjum ekki eins langan barning eins og Þorbjörn Kólka forðum, móti mann- skæðum aflandsstormi, í hinum fræga Sporðagrunns- róðri sínum og hefðum heldur ekki haft tvær fleytur í eftirdragi, eins og hann, munu lófar okkar sennilega ekki hafa verið öllu betur farnir en lófi Þorbjarnar, sem Grímur kveður að verið hafi „heldur sár“ er hann lenti. T. d. hafði öflugasti ræðarinn í bátnum — Jón á Fjöllum — 14 blöðrur í lófum og á fingrum. En það var líka met í það skipti. Við fórum til gistingar að Daðastöðum. En þangað er á að gizka 20 mínútna gangur. Hlutum við þar Heima er bezt 301

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.