Heima er bezt - 01.07.1966, Síða 10

Heima er bezt - 01.07.1966, Síða 10
Pabbi hans Nonna hafði lokið við að skera sér í nef- ið, og láta tóbakið í tóbakspunginn, sem var vel eltur hrútspungur. Hann sat nú á kistunni í eldhúsinu, og var að drekka kaffið, þegar Nonni kom aftur með mikl- um látum, og ljómaði af ánægju. „Eg fæ að fara!! ég er búinn að hlaupa til þeirra allra, og þeir sögðu að ég mætti koma, hinir strákarnir fá líka að fara, en mig vantar stöng og snöru, þú átt litlu stöngina þína enn, get ég ekki fengið hana, hinir strákarnir hafa stöng.“ Þannig lét Nonni móðan mása. „Hver á þá að hjálpa mömmu þinni, ef þú ferð á bjargið?“ spurði pabbi hans, þegar hann komst að. „Ja, það veit ég ekki, en þú færð mikið fleiri fugla, og meira fiður, ef ég fer með, það sérðu.“ Pabbinn hló af ákafa sonar síns, eitthvað þessu líkt var það með hann á hans aldri. Að aflokinni kaffidrykkju fór Nonni með pabba sín- urn niður í hjall, hann ætlaði að fara að líta á vaðina, og undirbúa undir morgundaginn. Vaðirnir voru geymd- ir uppá lofti í hjallinunt á þurrum stað, þar var mikið af vöðum. „Mannavaður“ sem ætlaður var sigmanni. „Fugl- vaður“ sem ætlaður var til að draga fugl, voru það oft- ast vaðir sem ekki var lengur treystandi fyrir sigmann. „Eggjavaður“, það var vaður, sem var notaður við eggja- töku, voru það styttri og liðlegri vaðir, oftast hafðir tvöfaldir. Allir voru vaðirnir úr völdu tjörutógi, sem sló á grænleitum blæ, nokkuð hart og oftast fjórsnúið. Þægilegan ilm lagði af vöðunum, eða svo fannst bjarg- mönnunum. Mannavaðurinn var nú rakinn niður og skoðaður vandlega, því hann hafði ekki verið hreyfð- ur fyrr á þessu ári, en á honum fannst engin veila. Þessi vaður var um 2 tommur í þvermál og 220 m langur. Aleð alla þessa vaði var farið eins og þeir væru dýrgripir, enda mátti segja að þeir væru það. En það var fleira í hjallinum en vaðir, þar héngu há- karlslykkjur, riklingur, rafabelti, harðfiskur, hangi- kjöt, egg í tunnu og rnargt fleira. Eftir að þeir feðg- arnir höfðu gengið frá vöðunum í hæfilegum böggum, skar pabbi hans Nonna sneið af hákarlslykkju og gaf honum, einnig fékk hann riklingsbita með, en Nonni stýfði hvortveggja úr hnefa og þótti gott. Um kvöldið var flest tilbúið til ferðarinnar, en það átti að leggja af stað seinni hluta dags daginn eftir, og vera kominn nið- ur í bjargið þegar sól færi þar að lækka, en þá var fugl- inn spakastur, og svo á morgnana, þegar hann kom að bjarginu þreyttur af flugi. Morgundagurinn rann upp sólríkur og fagur, en Nonni hafði beðið hans með óþreyju, það þurfti held- ur ekki að vekja hann til að sækja hestana með hinum strákunum. Nú hófst mikið annríki í plássinu, um tutt- ugu manns var að búa sig til ferðar. Eftir nónið var far- ið að leggja á hestana, reiðingur var lagður á marga hesta, hnakkar á aðra, loks var allt tilbúið, sigmennirnir voru í þann veg að stíga á bak hestum sínum, en þá bar gesti að garði. Það voru tveir gamlir menn, sem frétt höfðu um bjargferðina, og voru komnir um langan veg, fótgangandi og báðu leyfis um að fara með. Bændumir litu hver til annars eins og hálfvandræðalegh', og svo til sigmannanna, en þeir sögðu einum rómi: „þeir koma með“. Svo stigu þeir á bak hestum sínum og riðu úr hlaði, með stengurnar við hlið sér, og hrosshárssnör- urnar strengdar um höfuðið undir húfunni. Þeir voru riddaralið fararinnar, sem allir litu upp til, ekki sízt strákarnir, sem áttu þann draum fegurstan að verða slík- ir riddarar. Komumönnúm var veittur beini, og komu með því sem síðast fór. Áburðarhestarnir héldu af stað klyfjaðir vöðum, tjöldum og öðrum farangri, með þeim og á eftir fór gangandi fólk, sem var misjafnlega létt á fæti, svo lestin varð nokkuð löng. Það var heitt þennan dag, svo bæði hestar og fólk svitnaði. Eldri konur í hópnum styttu pils sín, svo léttara ættu þær með fóta- burðinn. Stúlkur voru í kjólurn, sem ekki þurfti að stytta, og lá við að konur, sem héldu enn við hin þungu pils, öf- unduðu þær. Rokkbuxur voru þá ekki komnar í tízku, eða aðrar buxur kvenna yzt fata, en betra að svo hefði verið. Stundum var numið staðar, til að kasta mæðinni, því allt var á brattan að sækja. Gudda gamla studdi hendinni á bakið, stundi við og sagði: „Það er velgja af henni í dag, blessaðri, mikill skrattans ræfill er hún Gudda annars orðin, að mása þetta og blása, þó hún labbi hérna útá bjargið í hægð- um sínum, einu sinni gat hún þó labbað hérna á milli nleð 40 fuglana á bakinu án þess að blása.“ Svo tyllti hún sér niður á mosafoldina. „O-já, þetta er allt farið hjá okkur, Gudda mín, unga kynslóðin er að taka við, og verða ekki vandræði úr því,“ sagði gamall maður og teygði úr sér, þar sem hann lá í mjúkum mosanum. Eftir eins og hálfs tíma ferð, voru þó allir komnir á bjargbrún. Sigmennirnir voru þá löngu komnir, búnir að sleppa hestum sínum og setja vaðarhjólið á sinn stað á brúninni. Vaðarhjólið var gjört af tveim meters löng- um fjölum, allbreiðum, sem stóðu upp á rönd hvor á móti annarri, okar festir á þær þversum ofan og neðan, þannig að á milh fjalanna varð 3ja tommu bil. Fremst á milli fjalanna, en þar voru þær hærri, kom Púkken- holtsskífa um 10 tommur í þvermál og lék á ási, en á skífunni rann svo vaðurinn. Hillan, sem fara átti á, hét „Miðlandahilla“, stærsta fuglahilla í Látrabjargi, niður á hana var 210 m sig, sem er lengsta sig sem sigið hefur verið í Látrabjargi. Allur farangur var tekinn af hestunum og þeim sleppt í haga. Hjólmaðurinn tók nú að greiða vaðina og undirbúa sig- ið, með aðstoð þeirra, er hann kvaddi til. „Hjólmaður“ er sá, sem öllu stjórnar á brúninni, hann situr við vað- inn næstur hjólinu, tekur á móti merkjum frá sigmanni, og gefur sínar fyrirskipanir, það var mjög þýðingar- mikið fyrir hvern sigmann, að hafa góðan og öruggan hjólmann. Fimm sigmenn áttu að fara niður í þetta sinn, það voru allt þaulvanir sigmenn, og á léttasta skeiði, þeir sátu saman á brúninni, hver með sína stöng, og höfðu 230 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.