Heima er bezt - 01.07.1966, Síða 25

Heima er bezt - 01.07.1966, Síða 25
KeppenAur urn „íslandsbeltið“, er tóku þdtt i „íslandsglimu“ 1. april 1901. Fremsta röð frá vinstri: Gisli Jónasson, Jakob Kristj- dnsson, Jóhannes Jósefsson, Karl Sigurjónsson, Jón Pálsson. Önnur röð: Pétur Siggeirsson, Jón Helgason,Baldvin Friðlaugsson, Ágúst Ólason, Sigurður Sigfússon. Þriðja röð: Benedikt Sigurjónsson, Þórólfur Sigurðsson, Þorgeir Guðnason, Sören Sveinbjarn- arson, Jón Sigfússon, Stefán Helgason, Kristján Helgason. Fjórða röð: Hallgrimur Jónsson, Sigurður Jónsson, Jón Sigurjóns- son, Helgi Flóventsson, Ágiist Sigurgeirsson, Emil Tómasson, Þorvaldur Pálsson. gestum var minnisstæðast af því scm þarna fór fram, var glíman. Tóku þátt í henni um cða vfir tuttugu manns. Einn maður var þarna austan af Héraði. Hann var risi stór og sterkur sem tröll, harðlcikinn og grimm- ur. Hann tók þátt í glímunni og lagði bókstaflega hvern cinasta mann, þvi enginn stóðst honum snúning, þar scm hann beitti kröftunum óspart. Þótti Vopnfirð- ingum þetta sárt, sem von var. Þegar enginn fékkst til að glíma lengur við kraftajötun þennan, lagði samkomu- stjórinn fast að Mývctningum, scm þarna voru að bíða eftir skipinu, að rcyna að fclla risann. En þcir svöruðu því, að í þcirra hóp kæmi enginn til grcina, ncma það væri þá Sigurgcir Bjömsson. Var þá lagt að honum að fara á móti kappanum. VTar hann lengi tregur til. En þó varð niðurstaðan, að hann lét undan þrábeiðni manna og fór á móti kappanum. Af þessari viðureign er það stytzt að scgja, að Sigurgcir varðist öllum briigðum kappans, og lagði hann flatan að lokum. \Tar þcssi at- burður svo eftirminnilegur, að hann var lcngi á eftir hafður til frásagnar, cr minnzt var frækinna glímumanna austur þar. Þessar tvær sögur sem hér hefur verið drepið á, gefa fyllilega til kynna, að Mývetningar hafa verið fræknir glímumenn á síðustu öld. Og vissa er fyrir því, að það- an breiddist út þessi þjóðlega íþrótt. Þegar leið á öldina tóku Eyfirðingar og Akureyringar að iðka glímu af miklum áhuga. Hef ég góðar heimildir fyrir því, að þeir sóttust eftir að glíma við Þingeyinga, er þeir komu til Akureyrar í verzlunarerindum eða voru þar við sjó- róðra tíma og tíma. Hafa þeir vafalaust lært mikið af Þingeyingum við þessi kynni. Áhuginn fyrir glímunni fór vaxandi með ári hverju, þar til Akureyringar réðust í það, að stofna glímufélagið „Gretti“, og markar þessi félagsstofnun þáttaskil í sögu glímunnar á íslandi. Fróðir mcnn telja, að glímufélagið „Grettir" hafi verið stofnað árið 1904 cða 1905. Það kom sér upp mjög vönd- uðu bclti, sem kennt var við félagið og nefnt „Grettis- belti“. Tilgangurinn var sá, að haldin skyldi árlega kapp- glíma og „Grettisbeltið“ afhcnt þeim manni, sem hefði flesta vinninga. Eftir árið átti svo handhafinn að skila beltinu, og síðan kcppa um það að nýju, ef hann óskaði eftir. Heima er bezt 245

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.