Heima er bezt - 01.12.1968, Blaðsíða 2

Heima er bezt - 01.12.1968, Blaðsíða 2
Hálfrar alclar fullveldi Um fáa daga í sögu þjóðar vorrar ætti að leika meiri ljómi en 1. desember 1918. Þann dag endurheimti þjóðin fullveldi sitt eftir nær sjö alda ófrelsi.Þess vegna er l.des- ember hinn raunverulegi frelsisdagur íslendinga. Lýð- veldisstofnunin 1944 var rökrétt framhald þess, er gerð- ist 1918. Annað gat naumast orðið. Hálf öld er ekki langur tími í ævi þjóðar. En samt hafa þessi ár orðið viðburðaríkari í sögu vorri en all- ar liðnar aldir íslandssögunnar samanlagðar. Á þessum áratugum hefur þjóðfélagið og þjóðlífið allt umskap- azt svo gjörsamlega, að við sjálft liggur, að vér, sem þá vorum að vaxa úr grasi, þekkjum oss varla lengur. Eða öllu heldur umhverfi og þjóðlíf bernsku vorrar var svo ólíkt nútímanum, að engu er líkara en það iiggi aftur í einhverri órafjarlægri fortíð, enda þótt atburðir þeirra ára standi oss jafn ljóst fyrir hugskotssjónum og þeir hefðu gerzt í gær. Ekkert er því eðlilegra á slíkum minningardegi en staldra við, horfa um öxl og bera saman það sem var og það sem er og spyrja: „Höfum vér gengið til góðs, götuna fram eftir veg?“ Þótt margt hafi að vísu gerzt öðruvísi en oss dreymdi þá í rómantískri bjartsýni aldamótanna, hljótum vér samt að svara spurningunni játandi. Gerum vér það ekki, erum vér vissulega komin í hópinn til nátttröll- anna, sem dagaði uppi og urðu að steini á sínum tíma. Árið 1918 var lokaár heimsstyrjaldarinnar fyrri, sem lagði hinn gamla heim í rústir og skildi við þjóðirnar flakandi í sárum. Vér íslendingar urðum að sönnu furðulítið fyrir beinum harðræðum vegna styrjaldar- innar, og ýmis höpp féllu oss í skaut, en ekki fengum vér þó varizt því, að sú hugarfarsbreyting og þjóðfé- lagsbylting, sem fór um löndin eftir styrjöldina, bærist einnig hingað. Og vér hlutum sem aðrar þjóðir að lúta þeim örlögum, að önnur heimsstyrjöld dundi yfir enn ægilegri en hin fyrri áður en nokkurt jafnvægi hafði skapazt í hugum þjóðanna. Og þótt vart sé liðinn aldar- fjórðungur síðan síðari styrjöldinni lauk, er margt sem bendir til að þriðja holskeflan geti riðið yfir áður en varir. Ef vér viljum skilja þróun og sögu þjóðar vorrar þessi 50 ár verðum vér sífellt að hafa í huga, að hún hefur orðið í skugga og umróti tveggja ægilegustu hamfaranna, sem yfir mannkynið hafa dunið á öllum ferli þess. Og þótt hörmungar og umrót styrjaldanna sjálfra hafi sneitt verulega hjá vorum garði, hefur það skapað oss örðugleika eigi síður en öðrum þjóðum. Og að sumu leyti höfum vér átt við meiri vandamál að stríða. Oss var fyrirvaralítið kastað inn í hringiðu um- heimsins, þar sem vér hlutum að fylgjast með eftir aldalanga kyrrstöðu og einangrun. Allt í einu hlutum vér að sjá um oss sjálfir, og gátum á enga lund varpað áhyggju vorri á aðra þjóð. Og samtímis hlutum vér að beina orku vorri og pólitík að innanlandsverkefnum, og gátum ekki lengur látið viðhorfið til Dana ráða vorri pólitísku sannfæringu. Þegar vér vöknuðum þannig 1. des. 1918 var Ijóst, að flest var enn ógert af því, sem menningarþjóð þurfti að gera, og vér stóðum öllum vorum nágrönnum langt að baki. Vér stóðum á forgömlu frumstigi í atvinnu- háttum og tækni á flestum sviðum. Lífskjör flestra harðla fátækleg og naumast mannsæmandi, og allt sem hétu félagsleg málefni á frumstigi eða alls ekki til. Enda þótt þjóðin sýndi ekki nokkur sérstök ytri hrifningarmerki 1918, er þó víst, að hún var þá ein- huga um að varðveita það fullveldi, sem henni hafði hlotnazt, og að skapa gróandi þjóðlíf, með því að lyfta því Grettistaki, sem nauðsynlegt var, til þess að skapa sér viðunandi lífskjör. Og ef vér lítum á húsakynni nútíðarinnar, vegi og samgöngutæki á sjó, landi og í lofti, vinnuvélar, félagslegt öryggi og daglegar lífsvenj- ur, verður því ekki móti mælt, að hér hefur gerzt krafta- verk. Frá því að vera einangruð, vanþróuð þjóð á hjara veraldar, stöndum vér nú á mörgum sviðum í fremstu röð. Oq' ekki hafa síður gerzt undraverðir atburðir í menningarmálum, um það vitna skólar og hvers kyns menningartæki, bókagerð og gróandi í hvers konar list- um og vísindum, þótt margt sé enn óunnið, sem vér vildum óska á þessum sviðum. Öllu þessu ber að fagna, og hvert spor, sem stigið er fram á við sé oss eggjun til frekari dáða. Og víst er um það, að margt af þessu væri ógert enn, ef vér hefðum ekki notið fullveldis og frelsis on hlotið að standa á eimn fótum. D D Þetta er að vísu aðeins ein hliðin á margflötungi þjóð- lífs vors og ekki verður því neitað, að á ýmsar hliðar þess ber nokkra skugga. Hið gamla, íslenzka þjóðfélag var fátækt og frum- stætt og menning þess einhliða. En þjóðin hafði alið með sér ýmsar dyggðir og mannkosti. Hún var nægju- 406 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.