Heima er bezt - 01.12.1968, Síða 7

Heima er bezt - 01.12.1968, Síða 7
Svipmynd frá Lourdes. þrýstu sér inn í sál manns og byggju þar um sig til íangrar dvalar. Það hefði verið steinhjarta sem ekki hefði hrifist af sjálfum tónunum, þó orðin skildust ekki, og af þeirri upphefjandi samstillingu, sem fór um sal- inn frá sjálfu fólkinu. Það var eins og andi Guðs fyllti hvelfingu þessa vold- uga musteris hans og að sjálfur Kristur stæði við hlið hvers og eins kirkjugests. Enda sagði hann eitt sinn að hvar sem tveir eða þrír væru samankomnir í sínu nafni þar væri hann mitt á meðal þeirra. En þarna voru tugir þúsunda samankomnir í hans nafni, enda voru áhrifin mjög sterk og ógleymanleg. Oll sú mikla viðhöfn og skraut, sem þarna átti sér stað, með tóni og söng, ásamt reykelsisbrennu, sem fyllti loftið ljúfri angan, fyllti helgidóminn óumræði- legum hátíðleik. Eftir einn og hálfan tíma var sjálfri messugerðinni lokið og þá fór fólkið að streyma út en á meðan hljóm- uðu kirkjuklukkurnar og hljómur þeirra blandaðist djúpum tónum orgelsins. Sessunautur minn og ég tókumst í hendur og ítalska kveðjan hljómaði þítt og innilega: „Af-gúr-í“. Eg svar- aði með íslenzku kveðjunni: „Vertu blessuð og sæl“. Tvær verur höfðu mættst, sem ekki skildu tungutak hvorrar annarrar en þær fundu og skildu að þær áttu eitt og hið sama föðurland sem heyrir himninum til. Ég var nú orðinn viðskila við mitt samferðafólk, en ég vissi að það gerði ekkert til. Einhver mundi hirða mig, lesa á mér mark og númer, sem ég bar í jakkalaf- inu og þá yrði mér skilað á réttan stað. Ég þurfti held- ur ekki að bíða lengi. Ung stúlka í skátabúningi kom til mín og leit brosandi eftir marki á mér, ég gerði það sama á henni og sá þá að hún var frá Hollandi. Hún sagði Skandinafi. — En það var sameiginlegt mark okkar allra frá Norðurlöndum. — Ég svaraði „Is- land“, og benti á mig. „Holland,“ sagði hún og benti á sjálfa sig, svo tókumst við brosandi í hendur. Hún fór dragandi með kerruna mína, en þar sem brattast var voru ótal hendur réttar til hjálpar, svo ferðin gekk greiðlega heim á hótelið, þar sem hún skildi við mig hjá rúminu mínu. Eftir miðdaginn kom hr. Lerche, fararstjórinn okk- ar, til mín og spurði mig hvort ég vildi fara „Kross- veginn“, sem svo er kallaður og var ég fljótur að játa því. Farið var með mig í kerrunni góðu og dró hr. Lerche hana sjálfur. Tveir sjúklingar aðrir voru með í förinni. Þeir voru ævinlega í hjólastólum og svo var í þetta sinn. Heima er bezt 411

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.